Fréttablaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 28
Veiga Grétarsdóttir er transkona, hét áður Veigar Grétarsson. Mér fannst hún svo dimmrödduð í sím-anum og get því ekki
orða bundist um hversu dömuleg
hún er, þegar hún mætir í viðtalið á
Kjarvalsstöðum. Hún hlær og dregur
upp tvær myndir, aðra frá því í fyrra,
hina fimm ára. Þær gætu eins verið
af Fríðu og dýrinu. „Ég var aldrei sátt
við myndir af mér, fólk segir að ég
hafi verið myndarleg sem karlmaður
en ég sá karlalega stelpu! Nú hefur
hálsinn mjókkað um svona þrjá
sentimetra og lærin eru orðin fimm,
sex sentimetrum sverari. Hormón-
arnir,“ útskýrir hún brosandi.
Leið þér eins og stelpu þó að lík-
aminn væri strákalegur?
„Kannski ekki eins og stelpu. Ég
hafði samt óstjórnlega þörf fyrir
að klæða mig í kvenmannsföt en
reyndi að bæla þær hvatir niður
eins og ég gat og lét engan vita um
þær. Ég eignaðist einhvern tíma
kvenmannsföt en feluleikurinn var
svo mikill að ég skrúfaði hátalarann
minn í sundur og húsgögnin líka til
að geyma þau þar inni. Ég held ég
hafi verið að nálgast 25 ára aldurinn
þegar ég heyrði orðið transgender í
fyrsta skipti.“
Hún kveðst hafa leikið sér eins
og týpískur strákur þegar hún var
lítil. „Jú, ég átti barbídúkku og mér
fannst mjög gaman að fá að vera
með í saumaklúbbnum hennar
mömmu, þá sat ég og prjónaði.
Reyndar var ég alltaf dugleg í handa-
vinnu, hvort sem það var teikning,
saumar eða smíðar. Ég geri það sem
mér dettur í hug, legg parkett og
flísar, geri við bíla og sprauta. Strax
fjórtán, fimmtán ára var ég byrjuð
að gera við fyrir vini og kunningja í
skúrnum hjá pabba, eins að sprauta
bíla og mótorhjól. Held að ég hafi
alltaf verið pabbastelpa, var bara
fjögurra ára þegar ég var farin að
brasa í skúrnum með honum.“
Veiga hefur farið með túrista um
á kajökum á sumrin og var svo á
skútunni Artika á Grænlandi nú í lok
sumars við leiðsögn, bæði á kajak og
í gönguferðum. Segir það eina bestu
vinnu sem hún hafi komist í. „Þá var
er ég bara í útivistargallanum allan
tímann og ekkert að eyða tíma í
sjálfa mig en þegar ég kom hingað
heim var alveg kominn tími til að
fríska aðeins upp á útlitið.“
Ertu dálítið tvær manneskjur
ennþá?
„Veistu, ég hef pælt í þessu. Ég var
ekki sátt í eigin skinni og langaði
í kynleiðréttingarferli en á sama
tíma hugsaði ég: Nei, þú getur ekk-
ert verið kona því þér finnst svo
gaman að skjóta og sigla og konur
gera ekkert svoleiðis – sem er bara
algjör þvæla. Þá var ég að reyna að
bæla konuna í mér niður og telja
mér trú um að ég væri eðlilegur
karlmaður. En ég er bara mann-
eskja með ákveðin áhugamál, sama
hvað ég er með milli lappanna. Ég lít
á mig sem konu – sem ég er og hef
alltaf verið frá því ég fæddist en ég er
auðvitað alin upp sem karlmaður og
það markar líka hver ég er.“
Hún segir hormónana hafa breytt
ýmsu. „Ég er ekki eins sterk og ég var,
ég finn mikinn mun á því. Er líka
mun viðkvæmari, þarf minna til að
fara að gráta en er miklu rólegri og
afslappaðri. Þegar testósterónmagn-
ið fór minnkandi fór ég að róast.“
Aldrei verið eins hamingjusöm
Veiga segir sína andlegu líðan mun
betri eftir leiðréttinguna. „Ég hef
aldrei átt eins lítið og þénað eins lítið
en aldrei verið eins hamingjusöm.
Ég hefði heldur aldrei getað gert það
sem ég er að gera í dag eins og ég var
áður, hafði ekki sjálfstraust í það. Ég
hefði aldrei getað farið í viðtal. Vildi
ekki gifta mig og halda brúðkaups-
veislu því ég þoldi ekki athygli. En
næsta sumar er ég að fara að róa
kajak kringum Ísland og þá mun
Óskar Páll Sveinsson tæknimaður
fylgja mér eftir og gera heimildar-
mynd um það ferðalag en líka um
líf mitt og þær breytingar sem ég hef
gengið gegnum. Kajakleiðangurinn
mun taka mig um þrjá mánuði og ég
ætla að reyna að leggja af stað í byrj-
un maí, eða um leið og veður leyfir.“
Veiga kveðst verða fyrsta íslenska
konan, eftir því sem hún viti best, og
fyrsta transmanneskjan í heiminum
til að fara ein í svona stóran leiðang-
ur á kajak. „Ég ætla að róa rangsælis,
það hefur heldur enginn gert áður.
Það er víst heldur erfiðara en að róa
réttsælis, á nokkrum stöðum við
landið þarf maður að tímasetja sig
upp á strauma, ég á eftir að kynna
mér það betur. Ég ákvað að kalla
verkefnið Against The Current sem
þýðist Á móti straumnum og heim-
ildarmyndin mun heita það. Það er
táknrænt því á margan hátt hef ég
farið á móti straumnum alla ævi.“
Veiga bendir á að hún sé með
Instagram sem heitir Against the
current, þar sé hún byrjuð að setja
inn myndir. Eins ætli hún að opna
Facebook-síðu í kringum verkefnið
og pæling sé að búa til heimasíðu
líka.
Hún ætlar að láta gott af sér leiða í
ferðinni. „Ég er búin að halda þrjá fyr-
irlestra á Ísafirði um sjálfa mig og þá
baráttu sem ég háði. Þeir hafa lukkast
vel. Ég var bara manneskja sem leið
ofboðslega illa, sá ekkert bjart fram
undan og það getur hver sem er lent
í því. Að ég er trans skiptir engu máli
í því sambandi. Við erum mann-
eskjur númer eitt, tvö og þrjú, sama
hvers kyns við erum. Nú er ég komin
í samstarf við Píeta-samtökin og ætla
að safna áheitum fyrir þau í ferðinni.
Þau berjast gegn sjálfsvígum. Það er
málstaður sem snertir mig mikið því
ég var nálægt því á tímabili að taka líf
mitt. Ég stefni að því að halda átta eða
níu fyrirlestra víðsvegar um landið.
Píeta-fólk verður með mér á fund-
unum og ég vonast til að safna sem
mestu fyrir samtök þess.“
Svona verkefni er bæði tíma-
frekt og dýrt og mun Veiga nota
næstu mánuði í undirbúning fyrir
næsta sumar. „Ég þarf að koma
mér í gott form, skipuleggja ferða-
lagið og eins að safna styrkjum. Er
nú þegar komin með nokkra góða
styrktar aðila, þar á meðal Cintam-
ani, Garminbúðina, Íslensku Alp-
ana og Vélasöluna, líka tvo erlenda
aðila sem eru Rockpool, þar fékk ég
nýjan kajak, og svo mun ég fá árar
frá fyrirtæki sem heitir Lendal. Það
er ótrúlegt hvað fólk tekur vel í þetta
hjá mér og ég er hrærð yfir þeim
stuðningi sem ég hef fengið.“
Erfiðast að missa konuna
Meðan Veiga hét Veigar átti hún
konu og saman eiga þær sjö ára
dóttur. Hún minnist þess hversu
afbrýðisöm hún hafi verið þegar
Oflék stundum
strákahlutverkið
Ísfirðingurinn Veiga Grétarsdóttir hefur breyst úr gæja í gellu eftir
kynleiðréttingaraðgerð og er sátt við lífið og tilveruna í dag. En hún
þekkir svartnætti og angist og hyggst róa kajak umhverfis landið
næsta sumar og halda erindi í þágu Píeta-samtakanna.
Veiga segir húmorinn oft koma sér vel í samskiptum. „Ef karlmaður segir „blessaður“ við mig segi ég bara: „Sæl og blessuð!“ á móti og þá er hláturinn skammt undan.“ FréttAblAðið/Ernir
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ÉG eiGnaðist einhVern
tíma kVenmannsföt
en feluleikurinn Var
sVo mikill að ÉG skrúf-
aði hátalarann minn
í sundur oG húsGöGnin
líka til að Geyma þau
þar inni.
Píeta-samtökin
Samtökin sinna forvarnarstarfi
og aðstoða við sjálfsvígs- og
sjálfsskaðavanda.
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-E
9
3
C
2
1
3
3
-E
8
0
0
2
1
3
3
-E
6
C
4
2
1
3
3
-E
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K