Fréttablaðið - 27.10.2018, Side 54
Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar á
Keflavíkurflugvelli. Starfsemin felur í sér alla alhliða þjónustu við flugfélög, allt frá hleðslu /
afhleðslu farms, innritun farþega, hleðslu eftirlit, fraktafgreiðslu og ræstingu.
Umsóknafrestur er til og með 4. nóvember 2018.
Áhugasamir sækið um á heimasíðu fyrirtækisins, www.airportassociates.com
Nánari upplýsingar veitir Þórey Jónsdóttir, mannauðsstjóri,
thorey@airportassociates.com
Fræðslustjóri
Airport Associates óskar eftir drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á fræðslu- og
þjálfunarmálum. Hlutverk fræðslustjóra er að hafa heildaryfirsýn yfir þjálfunar- og
fræðslumálum hjá fyrirtækinu, leiða þau og móta. Fræðslustjóri vinnur náið með
deildarstjórum sem og sérfræðingum þjálfunarmála innan deilda.
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón og eftirfylgni með þjálfunar og fræðslumálum fyrirtækisins
• Ábyrgð á utanumhaldi þjálfunar og fræðslu s.s. skráningum
• Tryggja að þjálfunarkröfum sé mætt
• Framsetning og þróun á fræðsluefni og þjálfunaraðferðum
• Umsjón á kerfum og hugbúnaði sem notaður er til þjálfunar og fræðslu
• Skipulagning og utanumhald þjálfunar og fræðslu í samstarfi við flugfélög og mismunandi deildir fyrirtækisins
• Samskipti við flugfélög vegna þjálfunar og fræðsluþarfa
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Þekking á náms- og kennslufræðum
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Mjög góð tölvu- og tækniþekking
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
• Frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Jákvætt viðhorf, þjónustulipurð og mikil samvinnuhæfni
Samstarfsaðili um viðm
óts- og
hönnunarkerfi eykjavíku
rborgar*
* Þessa auglýsingu skor
tir hönnunarstaðal.
R
Rafræn þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar leitar að samstarfsaðila við uppbyggingu á viðmóts-
og hönnunarkerfi fyrir stafrænar lausnir (e. Design System). Við leitum að vefhönnuði / vefstofu
sem hefur reynslu og þekkingu á þessu sviði.
Hönnunartungumálið (e. Design Language) er kjarninn í verkefninu. Hanna þarf fjölda eininga sem
má raða saman til að smíða stafrænar lausnir hjá borginni.
Markmiðið með viðmóts- og hönnunarkerfi er að staðla vinnubrögð, hraða framleiðsluferli, fækka
villum og auka gæði stafrænna verkefna borgarinnar til lengri tíma.
Í kerfinu þarf að huga að hönnun, notendaupplifun, forritun, nytsemi, aðgengi og efnisvinnu. Borgin
er með á sínum snærum teymi sérfræðinga sem mun vinna í náinni samvinnu við þann
samstarfsaðila á sviði hönnunar, sem við leitum nú að.
Samstarfsaðili þarf að:
• Setja sig vel inn í þjónustu, þjónustustefnu og vörumerki Reykjavíkurborgar
• Vinna í nánu samstarfi við viðmótssérfræðinga, forritara og aðra sérfræðinga
• Vera tilbúinn til þess að þróa verkefnið áfram eftir að kerfið er tekið í notkun.
Hæfniskröfur:
• Reynslu af sambærilegu verkefni / verkefnum.
• Þekkingu á smíði og innleiðingu á viðmóts- og hönnunarkerfum eða sambærilegum verkefnum.
• Viðamikla reynslu af hönnun fyrir vefi og aðrar stafrænar lausnir.
Ef þú telur þig vera rétta samstarfsaðilann þá viljum við heyra í þér. Sendu okkur stutta lýsingu á
þinni reynslu og stutta greinargerð um hvernig nálgast má verkefnið. Í framhaldinu fundum við með
þeim sem uppfylla kröfur í þessari auglýsingu. Tilboða verður svo leitað í verkefnið á grundvelli
kröfulýsingar sem verður afhent öllum sem Rafræn þjónustumiðstöð telur koma til greina sem
samstarfsaðilar.
Öllum erindum verður svarað.
Áhugasamir sendi tölvupóst á vefur@reykjavik.is fyrir 3. nóvember 2018.
Íbúðarhótel í miðbæ Reykjavíkur óskar
eftir starfsmanni í gestamóttöku.
Umsóknir um starfið, ásamt upplýsingum um,
nám og fyrri störf, skulu berast á netfangið:
atvinna@frettabladid.is merkt ,,Gestamóttaka-201018“
Gestamóttaka
Svara tölvupóstum
og símtölum
Eftirfylgni með þrifum
Þjónusta við gesti
Önnur tilfallandi verkefni
Starfssvið Hæfniskröfur:
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
Samskiptahæfni og rík þjónustulund
Jákvæðni og sveigjanleiki
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Starfsmaður í gestamóttöku
Um er að ræða vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi búi í eða
nálægt 101 Reykjavík. Skilyrði er að viðkomandi reyki ekki.
Deildarstjóri og
leikskólakennari óskast
Leikskólinn Álfaborg auglýsir eftir deildarstjóra í 100%
stöðu, í tímabundna ráðningu, frá 1. desember 2018 með
möguleika á fastráðningu vegna stækkunar leikskólans.
Einnig óskast leikskólakennari í 100% stöðu í ótíma
bundna ráðningu, sá þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Einnig kemur til greina að ráða í hlutastarf. Í leikskóla
num starfar samstillt, glaðlynt og metnaðarfullt starfsfólk
og mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda og vellíðan
barna.
Auk þess er mikil og góð samvinna á milli leikskólans
og grunnskólans Bláskógaskóla í Reykholti. Álfaborg
er 2ja deilda leikskóli og er staðsettur til bráðabirgða í
tveimur húsum í Reykholti, Biskupstungum, þ. á m. með
aðalaðsetur í Bláskógaskóla. Nýtt húsnæði leikskóla er í
smíðum og er áætlað að taka það í notkun haustið 2019.
• Vakin er athygli á að álagsgreiðslur eru í boði.
• Möguleiki er á að útvega leiguhúsnæði í nágrenninu.
Deildarstjóri
Helstu verkefni:
• Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd
og mati á starfi deildarinnar
• Vinnur að uppeldi og menntun barna
• Foreldrasamstarf
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Góð íslensku kunnátta
• Sjálfstæði frumkvæði og góð samskiptahæfni
• Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki í starfi
• Ánægja af því að starfa með börnum
• Reynsla er æskileg
Leikskólakennari
Helstu verkefni:
• Vinnur að uppeldi og menntun barna
• Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans
• Foreldrasamstarf
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Góð íslensku kunnátta
• Sjálfstæði, frumkvæði og góð samskiptahæfni
• Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki í starfi
• Ánægja af því að starfa með börnum
Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða
annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lieselot Simoen,
leikskólastjóri í síma 480 3045. Umsóknir sendast á
netfangið lieselot@blaskogabyggd.is
Umsóknarfrestur er til 4. nóvember 2018.
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 7 . o k Tó b e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
4
-2
4
7
C
2
1
3
4
-2
3
4
0
2
1
3
4
-2
2
0
4
2
1
3
4
-2
0
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K