Fréttablaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 58
ÞROSKAÞJÁLFI ÓSKAST Á YNGSTA STIG SJÁLANDSSKÓLI AUGLÝSIR EFTIR ÞROSKAÞJÁLFA Í 80-100% STARFSHLUTFALL Auglýst er eftir þroskaþjálfa sem mun halda utan um málefni nemenda á yngsta stigi. Þroska- þjálfi er hluti af sérkennsluteymi skólans. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla. Þroskaþjálfi hefur m.a. það hlutverk að halda utan um og framfylgja ráðgjöf fagaðila, aðlaga námsumhverfi og námsefni að nemendum og aðstoða við utanumhald á námsefni einstaklinga í samráði við umsjónarkennara. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að starfa sem þroskaþjálfi • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum á grunnskólaaldri er kostur • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Jákvæðni, sveigjanleiki, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar • Kostur er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af vinnu með börnum á einhverfurófi Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2018. Nánari upplýsingar má finna á ráðningavef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is. Til sölu er lítið handverksfyrirtæki Eitt sinnar tegundar í Reykjavík. Hentar vel fyrir hugmyndaríka og handlagna einstaklinga. Nánari upplýsingar í síma 695 3612 Áskorun frá óbyggðanefnd Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd kröfu um þjóðlendu á svonefndu svæði 10A, Strandasýslu ásamt fyrrum Bæjarhreppi. Krafan nær til þess hluta Drangajökuls sem er innan svæðisins. Tilkynning um kröfuna var birt í Lögbirtingablaðinu 16. október sl. og er útdráttur úr efni hennar nú birtur hér í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998. Kröfulýsingu íslenska ríkisins og gögn sem henni fylgja er hægt að nálgast á vefsíðu óbyggða- nefndar: obyggdanefnd.is, og á skrifstofu nefndarinnar, auk þess sem gögnin eru aðgengileg hjá viðkomandi sveitarfélagi, þ.e. Árneshreppi, og í Hólmavíkurútibúi sýslumannsins á Vest- fjörðum. Upplýsingar um málsmeðferð óbyggðanefndar fást einnig á skrifstofu nefndarinnar og á vefsíðu hennar. Skorað er á þá sem telja til eignarréttinda á því landsvæði sem fellur innan þjóðlendukröfusvæðis íslenska ríkisins að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir óbyggðanefnd, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík, í síðasta lagi 1. febrúar 2019. Með kröfunum þurfa að fylgja þær heimildir og gögn sem aðilar byggja rétt sinn á. Leiðbeiningar um frágang kröfulýsinga, þar á meðal korta, fást á skrifstofu óbyggðanefndar. Að lokinni gagnaöflun og rannsókn á eignarréttarlegri stöðu svæðisins mun óbyggða- nefnd úrskurða um fram komnar kröfur. Í samræmi við ákvæði laga nr. 58/1998 kann yfirlýsingu um framangreinda kröfugerð að verða þinglýst á fasteignir á svæðinu sem tengjast því svæði sem krafan lýtur að. Óbyggðanefnd er sjálfstæð úrskurðarnefnd á stjórnsýslustigi. Hlutverk hennar er skv. 7. gr. laga nr. 58/1998 að: a) kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda, b) skera úr um mörk þess hluta þjóð- lendu sem nýttur er sem afréttur og c) úrskurða um eignar- réttindi innan þjóðlendna. Óbyggðanefnd ÚTBOÐ F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Smáhýsi fyrir Velferðasvið – EES útboð nr. 14349. Verkið felst í hönnun, smíði, flutningi á verkstað, niðursetningu, tengingum og frágangi á nærumhverfi á 20 smáhýsum í Reykjavík. Stærð húsanna skal vera sem næst 25 m2 og ytra og innra byrði húsanna þarf að vera sterkbyggt. Húsin verða staðsett í þyrpingum og skulu bjóðendur miða við fjarlægðir milli byggingahluta við hönnun og staðsetningu húsanna. Gerð er rík krafa um að húsin verði hlýleg að utan sem innan. Húsin skulu uppfylla kröfur byggingarreglugerðar, einangrunarkröfur byggingahluta, brunakröfur byggingahluta og kröfur um hljóðvist. Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá miðvikudeginum 31. október 2018. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framan- greindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 3. desember 2018. Reykjavíkurborg Innkaupadeild Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík Sími 411 1042 / 411 1043 Netfang: utbod@reykjavik.is Ú T B O Ð F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Smáhýsi fyrir Velferðasvið – EES útboð nr. 14349. Verkið felst í hönnun, smíði, flutningi á verkstað, niðursetningu, tengingum og frágangi á nærumhverfi á 20 smáhýsum í Reykjavík. Stærð húsanna skal vera sem næst 25 m2 og ytra og innra byrði húsanna þarf að vera sterkbyggt. Húsin verða staðsett í þyrpingum og skulu bjóðendur miða við fjarlægðir milli byggingahluta við hönnun og staðsetningu húsanna. Gerð er rík krafa um að húsin verði hlýleg að utan sem innan. Húsin skulu uppfylla kröfur byggingarreglugerðar, einangrunarkröfur byggingahluta, brunakröfur byggingahluta og kröfur um hljóðvist. Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá miðvikudeginum 31. október 2018. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 3. desember 2018. _____________________________________________________________________ Auglýst: Laugardaginn 27. október 2018 í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu Vinsamlega hafið fyrirsögnina í minna letri en nafnið á útboðinu. Stærð: 2ja dálka og 8 punkta letur. 6 punkta letur í augl. númer. Samtals 3 cm í haus og fót. Myndmót: Vinsamlegast látið inn í einn ramma og Augl. 20. október 2018 nr. 14361 á reikninginn. Lögmaður Borgarlögmaður Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Starf lögmanns hjá embætti borgarlögmanns er laust til umsóknar. Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum lögfræð­ innar. Áhersla er lögð á símenntun og miðlun þekkingar milli starfsmanna. Embætti borgarlögmanns er í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar eru stöðugildi átta lögmanna auk skrifstofustjóra. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ebba Schram, borgarlögmaður, í síma 411 4100 eða í gegnum tölvupóstfangið ebba.schram@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til 12. nóvember n.k. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknum skal skilað rafrænt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rann út. Helstu verkefni: • Lögfræðilegar álitsgerðir og ráðgjöf til borgarstjórnar, borgarráðs, borgarstjóra, stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar • Undirbúningur dómsmála og málflutningur • Meðferð stjórnsýslukæra • Samningagerð • Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn Reykjavíkurborg • Uppgjör slysabóta á grundvelli kjarasamninga Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði • Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi • Reynsla af málflutningi æskileg • Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti • Skipuleg og fagleg vinnubrögð • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum • Lipurð og færni í samskiptum Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt kjara­ samningi Reykjavíkurborgar við Stéttarfélag lögfræðinga. FAST Ráðningar www.fastradningar.is 2 7 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 1 1 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 3 4 -1 5 A C 2 1 3 4 -1 4 7 0 2 1 3 4 -1 3 3 4 2 1 3 4 -1 1 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.