Fréttablaðið - 27.10.2018, Side 92
Kamilla Garpsdóttir er fimm ára en
verður sex ára núna á mánudaginn.
Hún er í skóla í Kópavogi sem heitir
Hörðuvallaskóli.
Hvað er skemmtilegast að gera í
skólanum? Mér finnst skemmti
legast að vera úti. Maður fær að gera
allt í útivist. Fær að vera frjáls. En
það eru samt kennarar úti og passa
að allt gangi vel.
Hvað er uppáhaldsmaturinn
þinn? Grjónagrautur með kanil.
Mér finnst hann bestur. Pabba
núðlur eru líka góðar en mér finnst
tvennt í þeim vont, það er soðin
paprika og eitthvað grænt.
Kanntu að baka? Ég er ekki byrjuð
að læra að baka í skólanum en ég er
í smíði.
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Ég elska að vera úti. Þá get ég leikið
við allar vinkonur mínar.
Áttu þér uppáhaldsbók? Já, það er
einhver svona ævintýrabók. Ævin
týralandið heitir hún.
Hvað langar þig að verða þegar þú
ert orðin stór? Mig langar mest að
verða leikskólakennari.
Hvað er skemmtilegast að gera
með vinum þínum? Mér finnst
skemmtilegast að róla.
Ég elska að
vera úti
þá get ég leikið við
allar vinkonur mínar
Kamilla Garpsdóttir er nýlega byrjuð í
grunnskóla. Hún er ekki byrjuð að læra að
baka í skólanum en hún er í smíði.
Kamillu finnst grjónagrautur með kanil bestur. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Pabba núðlur eru
líKa Góðar en mÉr
finnst tvennt í þeim vont,
það er soðin PaPriKa oG
eitthvað Grænt.
Fagur fiskur í sjó
Í þessum leik eru tveir þátttak-
endur. Annar þeirra heldur hendi
hins í lófa sér og strýkur lófa hans
um leið og hann fer með þessa litlu
þulu. Um leið og hann segir síðasta
orðið – detta – slær hann á hönd
hins – en sá reynir að vera snöggur
og kippa henni að sér áður.
Fagur, fagur fiskur í sjó,
röndóttur á halanum,
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda, gættu þinna
handa.
Vingur, slingur, vara þína fingur.
Fetta, bretta,
og svo skal högg á hendi þína
detta.
(Höfundur ókunnur)
Leikurinn
Tókstu eftir því hvort ég kom
gangandi niður brekkuna eða upp?
spurði prófessorinn nágranna sinn.
Þú komst niður brekkuna.
Gott, þá er ég búinn að borða
hádegismat.
Mamman: Erlendur minn, ertu
búinn að gefa fiskunum í fiskabúr
inu nýtt vatn?
Erlendur: Nei, það er alger óþarfi.
Þeir eru ekki enn búnir að drekka
gamla vatnið.
Amma, veistu að ég er að fara að
eignast lítinn bróður í dag?
Ha, hvernig dettur þér það í hug?
Jú, sjáðu til. Í síðustu viku var
mamma veik og þá eignaðist ég litla
systur. Nú er pabbi orðinn veikur.
Lögregluþjónn stöðvaði ökumann
sem ók einstefnugötu í öfuga átt.
Veistu ekki að þetta er einstefnu
gata? spurði lögreglumaðurinn
ákveðinn?
Jú, svaraði ökumaðurinn. – Ég er
bara að fara í eina átt.
Sigga: Hvers vegna ertu að verða grá
hærð, mamma?
Mamma: Vegna þess að í hvert
sinn sem þú ert óþæg þá gránar eitt
hár
Sigga: Mikið hefur þú þá verið
óþæg. Sjáðu aumingja ömmu.
Brandarar
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
324
„Þar fór í verra,“ sagði
Konráð. „Okkur liggur
á en þurfum að
komast í gegnum þetta
völundarhús fyrst.“
Hann dæsti og bætti við
vonsvikinn: „Við verðum
of sein.“ „Of sein, of sein,“
sagði Kata pirruð. „Hvað
gerir til að vera aðeins of
sein?“ bætti hún við. En
Lísaloppa og Konráð voru
ekki sammála. Þau vildu
mæta á réttum tíma.
Getur þú hjálpað þeim að komast í gegnum völundarhúsið?
?
?
?
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r44 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
krakkar
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
3
-E
9
3
C
2
1
3
3
-E
8
0
0
2
1
3
3
-E
6
C
4
2
1
3
3
-E
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K