Fréttablaðið - 27.10.2018, Síða 98
V igdís Hrefna Páls-dóttir er meðal leik-ara í sýningunni Sam-þykki eftir breska leikritaskáldið Ninu Raine í leikstjórn
Kristínar Jóhannesdóttur. Leikritið
var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu síðast-
liðið föstudagskvöld. Vigdís Hrefna
fer með hlutverk leikkonunnar Zöru.
Aðrir leikarar eru Stefán Hallur Stef-
ánsson, Birgitta Birgisdóttir, Snorri
Engilbertsson, Hallgrímur Ólafsson,
Kristín Þóra Haraldsdóttir og Arndís
Hrönn Egilsdóttir.
Varð uppnumin
Vigdís Hrefna segir verkið verið
svarta kómedíu. „Það fjallar um hóp
af fólki, aðallega lögfræðinga. Fólk
sem starfar við rökflutning og leggur
upp úr því að vera málefnalegt og
hafa stjórn á tilfinningum sínum, en
þegar öllu er á botninn hvolft er það
sjálft jafnhamslaust í viðbrögðum
sínum og skjólstæðingarnir sem það
er að verja.
Þetta er að mínu mati leikrit um
siðferði. Siðferði í vináttu, siðferði í
hjónabandi og siðferði í starfi. Verk-
ið fjallar mikið um hjónabandið,
trúnað og traust sem og skilning sem
þarf að vera til staðar í hjónaband-
inu. Einnig fyrirgefninguna, hvað
hægt er að fyrirgefa og hvað ekki.
Þegar ég las leikritið varð ég upp-
numin. Það er ekki oft sem maður
les verk og hugsar, ég þekki þetta
fólk. Ég held að áhorfendur eigi eftir
að eiga mjög auðvelt með að spegla
sig í persónum verksins.“
Næmur leikstjóri
Vigdís Hrefna segir æfingaferlið hafa
verið einstaklega skemmtilegt og
ber mikið lof á leikstjóra sýningar-
innar, Kristínu Jóhannesdóttur. „Við
Kristín erum að vinna saman í fjórða
skiptið. Hún er einstakt ljúfmenni
og það hefur verið reglulega gaman
að fylgjast með henni leikstýra. Hún
er afar næmur leikstjóri sem veitir
manni mikið frelsi en veit um leið
hvað hún vill ekki. Hún skapar með
framkomu sinni traust og virðingu
í vinnu. Leikhópurinn er líka ein-
staklega góður og samrýmdur. Sum
okkar hafa unnið saman í mörg ár,
en svo eru nýjar konur í húsinu,
Kristín Þóra og Arndís Hrönn, sem
eru yndisleg viðbót.“
Engin málamiðlun
Samþykki er ekki eina verkið sem
Vigdís Hrefna leikur í um þessar
Leikrit um siðferði
Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikur í Sam-
þykki. Varð uppnumin þegar hún las
leikritið. Næst er leikrit eftir Jón Gnarr.
Leikhúsið er nánast eins og fjölskylda manns, segir Vigdís Hrefna. FréttabLaðið/Sigtryggur ari
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
mundir í Þjóðleikhúsinu því hún
fer með hlutverk Lovísu mömmu í
Ronju ræningjadóttur sem gengur
fyrir fullu húsi. „Það er stórkostlegt
að leika fyrir fullum sal af börnum
og ótrúlega gefandi,“ segir Vigdís
Hrefna. „Það var farin ákveðin djörf
leið í þessari sýningu, þar er sterkur
fókus á alvöruna og dramatíkina í
verkinu og að þarna séu persónur af
holdi og blóði. Þarna er engin mála-
miðlun á ferðinni sem ég tel vera af
hinu góða. Börn elska dramatík og
óhugnað og mér finnst við stundum
svipta þau því að fá að vera hrædd.
Ég á tvær stelpur, önnur er 13 ára og
hin 5 ára, og þær höfðu báðar mjög
gaman af sýningunni sem mér finnst
góðs viti því þær eru með ólíkar
þarfir.“
Næsta verkefni Vigdísar Hrefnu
á fjölum Þjóðleikhússins verður í
Súper eftir Jón Gnarr sem frumsýnt
verður á næsta ári. „Þetta er mjög
sérstakt leikrit, afskaplega fyndið
og beitt. Undirtitillinn er: Þar sem
kjöt snýst um fólk, en verkið fjallar
um hóp fólks sem hittist í súper-
markaði.“
Sterk vináttubönd
Vigdís Hrefna segir aðspurð að sér
þyki afskaplega gaman að leika.
„Þetta er gefandi vinnustaður og
hér ríkir mikil samheldni, leik-
húsið er nánast eins og fjölskylda
manns. Það gefur mikið og tekur
mikið. Í æfingaferlinu þarf maður
að vera opinn tilfinningalega því
æfingaferlið er í raun rannsóknar-
ferli um tilfinningalíf persónunnar
og maður notar sínar eigin upplif-
anir og tilfinningar til að nálgast til-
finningar persónunnar. Eðli málsins
samkvæmt verða sambönd því oft
náin í leikhúsinu, vináttuböndin
sterk. Það verður að ríkja traust til
að hægt sé að taka djarfar ákvarð-
anir á sviðinu.“
ÉG Held að áHorf-
eNdur eiGi eftir að
eiGa mJöG auðVelt með að
SPeGla SiG í PerSóNum
VerkSiNS.
Piano ökklaskór
15.996 kr. / 19.995 kr.
Piano ökklaskór
12.796 kr. / 15.995 kr.
Piano ökklaskór
15.996 kr. / 19.995 kr.
Piano ökklaskór
17.596 kr. / 21.995 kr.
Piano ökklaskór
15.196 kr. / 18.995 kr.
Piano ökklaskór
15.996 kr. / 19.995 kr.
Piano ökklaskór
13.956 kr. / 16.995 kr.
Piano ökklaskór
14.396 / 17.995 kr.
Piano ökklaskór
15.996 kr. / 19.995 kr.
20% AFSLÁTTUR
Piano ökklaskór
11.996 kr. / 14.995 kr.
Piano ökklaskór
16.796 kr. / 20.995 kr.
Piano ökklaskór
15.996 kr. / 19.995 kr.
25-28. OKT.
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r50 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
3
-B
C
C
C
2
1
3
3
-B
B
9
0
2
1
3
3
-B
A
5
4
2
1
3
3
-B
9
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K