Breiðfirðingur - 01.04.1943, Síða 13
BREIÐFIRÐINGUR
11
í hreppnum lítil og bú þeirra voru þá að sama skapi
smávaxin. Samkvæmt jarðabókinni var búfjáreignin í
breppnum þessi alls: 77 kýr, 31 ungneyti og 117 sauð-
kindur. Hross var þar aðeins eitt, sem Svefneyjabænd-
ur áttu í sameiningu. Samkvæmt búnaðarskýrslunum
1941 voru það ár í hreppnum 73 nautgripir, 1017 sauð-
kindur og 11 liross. Er einkum eftirtektarvert, hve fátt
sauðféð var 1703, og hefir þar orðið mikil breyting, og
augljóst er, að afraksturinn af þessu búfé befir hvergi
nærri nægt til að framfleyta þeim nærri þrjú lmndruð
manns, sem í breppnum bjuggu. En undir afkomu þeirra
runnu aðrar stoðir jafnframt, fiskveiðarnar og hlunn-
indi eyjanna.
Skipakostur Eyjamanna sýnist hafa verið góður. 1
jarðabókinni er skrá yfir 50 formenn i Bjarneyjum, og
voru 21 þeirra fyi*ir skipum, sem heima áttu i Bjarn-
eyjum. í Svefneyjum voru 9 skip, og átti Gunnlaugur
Ólafsson sex þeirra og hélt þremur þeirra út til fiskj-
ar úr Bjarneyjum og Oddbjarnarskeri. I Skáleyjum voru
8 skip, 5 i Hvallátrum og 4 í Stagley. Tvær miklar ver-
stöðvar voru í sveitinni, Bjarneyjar og Oddbjarnarsker.
Auk þess var þá enn heimræði bæði í Flatey, — þaðan
gengu þrjú fjögra manna för, — og i Stagley, og þess er
getið, að heimræði hafi áður verið i Sviðnum og Hval-
látrum, en sé þá aflagt. Bæði Bjarneyjar og Oddbjarnar-
sker bafa verið með stærstu verstöðvum vestanlands
og útgerðin þar verið með miklum blóma. Úr Bjarneyj-
um gengu 50 skip þetta ár, 2 þriggja manna för, 16 fjögra
manna för, 22 fimm manna för og 10 sexæringar. Hefir
verið fjörugt og mannmargt í Bjarneyjum þegar allur
þessi floti hélt þar til. Af þessum skipum voru 29 að-
komuskip, sum úr binum eyjunum og sum utansveitar.
Tveir formennirnir voru t. d. sunnan úr Purkey. Ver-
búðir voru þá 18 í Bjarneyjum, 14 á heimaeyjunni og
4 í Búðey. Úr Oddbjarnarskeri gengu 33 skip, 1 þriggja
manna far, 8 fjögra manna för, 14 fimm manna för, 9