Breiðfirðingur - 01.04.1943, Blaðsíða 23
JBREIÐFIRÐINGUR
21
búsettur þar og hefur stundað farmennsku til skamms
tíma.
.Tón heitinn var snemma námfús, en átti þess lítinn
kost að menntast, sökum efnaskorts. Þó var hann einn
vetur á unglingaskóla í Búðardal hjá Sigurði Þórólfs-
syni (síðar skólastjóra á Hvítárhakka); einnig var hann
á jarðyrkjunámskeiðum. Stundaði hann síðan í nokkur
ár barnakennslu á vetrum og jarðyrkjustörf á sumrum.
Var rómað livað liann lót sér annt um að sem mestur
árangur yrði af þeim störfum. Framarlega var .Tón í
ungmennafélagsskap á yngri árum og þótti þar koma
fram, sem annars staðar, heiðarleiki hans og skyldu-
rækni.
Um tvítugsaldur gerðist Jón landnámsmaður í Búð-
ardal, leigði liann þar, ásamt bróður sínum, íbúðarhús
og ræktaði þar umhverfis. Gjörðu þeir bræður það
mest til að útvega foreldrum sínum hæli í ellinni. Jón
keypti síðan hluta bróður sins í húsinu og stækkaði
það um helming.
Árið 1912 í desember kvæntist Jón Ingibjörgu Þor-
valdsdóttur Sívertsen frá Hrappsey. Eignuðust þau eina
dóttur, Hlíf, og er hún búsett í Reykjavík.
Árið 1914 réðist Jón sem sölustjóri hjá Kaupfélagi
Hvammsfjarðar, og nokkru síðar varð liann aðalfram-
kvæmdastjóri þess og gegndi þvi starfi síðan til dán-
ardægurs með einstakri trúmennsku og ósérhlífni.
Ivaupfélag Hvammsfjarðar var á þeim árum varla
nema vísir til félagssamtaka hænda í suðurlireppum
Dalasýslu. Flafði að vísu áður um nokkurra ára skeið
verið pöntunarfélag undir forystu Torfa í Ólafsdal og
annarra framtakssamra manna, en var nýbyrjað að reka
söludeild í smáum stíl og stóð höllum fæti í samkeppni
við kaupmenn, fyrir vöntun rekstrarfjár og aðra erfið-
leika, eins og svo mörg samvinnufélög önnur á þeim
árum.
Húsakostur félagsins var þá (1914) aðeins ein skúr-