Breiðfirðingur - 01.04.1943, Page 51
BREIÐFIRÐINGUR
49
í bernsku. Bæði voru þau skákihneigð mjög og vafa-
laust hefur ævi þessara breiðfirzku skáldsystkina ver-
ið sviplík í ýmsu.
Júíana í Akureyjum. Hver var liún? munu margir
Breiðfirðingar spyrja. Eitt sinn var liún þeim þó flest-
um kunn, en nú hefur þorri fólks gleymt henni.
Mér er i barnsminni, þegar amma mín sat á hækjum
sínum og reykti pípu sína að lokinni dagsönn. Hún
hvíldi með hakið við rauðu kistuna í eldhúsinu og raul-
aði vísur. Oft innti ég hana eftir þvi, liver liefði ort vís-
urnar. Hún kunni deili á sumum höfundum, en öðrum
ekki. Oft nefndi hún Júlíönu í Akureyjum. Mér duld-
ist eltki, að þær höfðu þekkzt. Það fór lieldur ekki
frarn hjá mér, að ömmu var einstaklega hlýtt til þess-
arar konu. Ósjálfrátt óx lijá mér löngun til að vita
meira um hana. En amma varðist allra fregna, og við
það varð að sitja.
Júlíana Jónsdóttir hét hún fullu nafni. Borin i þenn-
an heim 1837 eða 1838. Ilafði ekkert af foreldrum sín-
um að segja. Faðir hennar lézt 1859. Alin upp hjá ást-
rikri fóstru, Þorbjörgu Þorsteinsdóttur, f. 1800, d. 1877.
Dvahli á ýmsum stöðum í Breiðafirði og' Strandasýslu.
Var einkum kennd við Kollsá í Hrútafirði og Akureyjar
í Gilsfirði. Fluttist til Ameríku um 1880. Giftist aldrei.
Dó vestur við Kyrraliaf 1918.
Þetta er ævisaga Júlíönu i Akureyjum rituð að liætti
annálsritara. Oft hef ég fundið sárt til þess, að annál-
arnir skuli ekki geta nánar um ýmsar persónur, sem
þar koma við sögu. Þeir vekja aðeins leynda þrá, sem
vér naumast. vitum livers eðlis er. Hugsæi manna verð-
ur að ráða úr því. En Júlíana í.Akureyjum á ekki að
gleymast og hún á heldur ekki að geymast í álögum
annálsrita. Hún barði víðar að dyrum í Breiðafirði fyr-
4