Breiðfirðingur - 01.04.1943, Page 90
88
BREIÐFIRÐINGUR
sögunni yrði einnig getiö þeirra manna, sem eitthvað liefir
kveðið að i þjóðmálum eða hafa verið forystumenn hér-
aðsins. Hún yrði lýsing á atvinnuskiptingu, atvinnulífi og
iifnaðarháttum kynslóðanna, sem lifað liafa þar og starfað
og liáð baráttu -— oft tvisýna — við hamslaus náttúruöfl,
notið gleði og sorgar, ástar og haturs og loks horið beinin i
skauti átthaga sinna. í þessum bætti sögunnar ætti að geta
um helztu landnámsmennina, sem flestir voru, eins og
kunnugt er, írskir og ekki þeir ómerkustu landnámsmanna
vorra. Þar ætti einnig að segja frá hinum merku afkom-
endum þeirra, eins og Ólafi pá og Ivjartani, þar yrði Sturl-
unga getið og Daða í Snóksdal. Ennfremur mun vonandi
verða sagt þar ýtarlega frá Magnúsi sýslumanni á Skarði
og umbótum þeim, sem hann vann og vildi láta vinna, og
Torfa í Ólafsdal. Hann hafði, eins og kunnugt er, svo rót-
tæk láhrif á búnaðarháttu og búnaðarframfarir í landi
voru, að það mun lengi uppi. í þessum þætti sögunnar
ætli að lýsa breylingum þeim og þróun, sem orðið liefir
í atvinnuháttum og vinnuaðferðum héraðsbúa, ennfrem-
úr livaða áhrif atvinnuskiptingin og lífskjörin liafa haft á
menningu, hugsunarhátt, siðu og framkomu þeirra.
Eg lít svo á, að náttúrusagan þurfi að vera i senn staða-
lýsing og jarðfræðileg þróunarsaga héraðsins. Þar þarf
að vera allýtarleg lýsing á sögustöðum ásamt mvndum
af þeim. Ekki rnó láta niður falla staði, sem einhverra
hluta vegna eru merkilegir, ef til vill vegna fegurðar eða
hrikaleiks, þótt eigi séu þeir sögustaðir. Þá er ekki siður
fróðlegt að fá nákvæma og rétta lýsingu á breytingum
þeim og umbrotum, sem þar bafa orðið frá landnámstið.
Engum getum þarf að því að leiða, að Dalirnir hafa verið
mjög vaxnir skógi til forna, á það benda hin mörgu bæja-
nöfn þar, sem enda á skógur og skógar. Þá finnst mér
ekki ósennilegt, að neðsti liluti sumra dalanna sé gamall
sjávarbotn, þótt eg, sem leikmaður, geti ekki fært á það
sönnur. Margs er að geta í sambandi við fuglalíf og dýra,
og skal ekki farið frekar út í það.