Fréttablaðið - 03.11.2018, Síða 2
Veður
Norðaustanátt 15-23 m/s og snjó-
koma eða slydda A og NA til, en
rigning syðst. Dregur úr vindi og
úrkomu síðla dags, norðan 8-18 og
stöku él í kvöld. við ströndina.
sjá síðu 48
Hönnunarverðlaun afhent
fjölmiðlar „Alltaf er hætt við að
umræðan verði mjög tilfinninga-
hlaðin og einkennist af upphróp-
unum og gífuryrðum,“ segir Magnús
Haraldsson, geðlæknir á Landspítal-
anum, í leiðara Læknablaðsins þar
sem hann fjallar um fréttir fjölmiðla
af heilbrigðiskerfinu.
„Því miður er fjölmiðlaumræða
um heilbrigðismál oft á afar nei-
kvæðum nótum og orð eins og
úrræðaleysi, niðurskurður, mann-
ekla og fjársvelti eru algeng. Fréttir
af sumarlokunum, kjaradeilum,
biðlistum og miklu álagi á heil-
brigðisstarfsfólk eru nánast daglega
á síðum fjölmiðla,“ rekur Magnús í
leiðaranum.
Magnús segir mikilvægt að fjalla
um málefni heilbrigðiskerfisins
með gagnrýnum hætti í fjölmiðlum.
„Það er afar mikilvægt að umfjöllun
fjölmiðla um þennan málaflokk sé
yfirveguð, byggð á staðreyndum og
að reynt sé að forðast gífuryrði og
upphrópanir,“ skrifar hann.
Þá segir Magnús að reglulega
rati á síður fjölmiðla umfjallanir
um erfið mál einstakra sjúklinga.
„Stundum er um að ræða lýsingar
sjúklinga eða aðstandenda þeirra á
samskiptum sínum við heilbrigðis-
starfsfólk þar sem kvartað er yfir
því að viðkomandi hafi ekki fengið
viðhlítandi þjónustu eða verið
neitað um þjónustu. Jafnframt eru
oft dregnar þær ályktanir að slíkar
lýsingar á högum einstaklinga lýsi
kerfinu eða þjónustunni í heild,“
fullyrðir hann.
Að sögn Magnúsar er alltaf
hætta á því að dregnar séu rangar
ályktanir af því sem eigi að hafa
gerst. „Hætt er við því að fréttir
sem þessar ýti undir ótta og tor-
tryggni hjá fólki sem þarf að sækja
þjónustu heilbrigðiskerfisins,“ segir
hann. „Fréttaflutningur af þessu tagi
er einnig líklegur til að valda heil-
brigðisstarfsfólki miklu hugarangri
og vanlíðan, sérstaklega ef það þarf
að sitja undir óvæginni gagnrýni
í fjölmiðlum og getur ekki komið
fram og tjáð sig um sína hlið á mál-
inu.“
Magnús segir síður fjölmiðla
ekki rétta vettvanginn „til að ræða
eða útkljá“ kvartanir undan heil-
brigðiskerfinu því aðeins önnur hlið
málsins sé rædd. „Alltaf er hætt við
að umræðan verði mjög tilfinninga-
hlaðin og einkennist af upphróp-
unum og gífuryrðum.“
Í leiðara Læknablaðsins er
síðan sagt æskilegt að ritstjórar og
ábyrgðarmenn helstu fjölmiðla
landsins setjist niður með forsvars-
mönnum heilbrigðiskerfisins til að
ræða „hreinskilnislega um hvernig
best sé að fjalla með ábyrgum og
yfirveguðum hætti um heilbrigðis-
mál, þjónustunni til framdráttar,
og hvernig koma megi í veg fyrir
að lýsingar sem oft eru settar fram
í mikilli reiði og geðshræringu séu
gerðar að fréttaefni í fjölmiðlum.“
gar@frettabladid.is
Geðlæknir vill koma
böndum á fjölmiðla
Leiðarahöfundur Læknablaðsins vill að ritstjórar og ábyrgðarmenn fjölmiðla
ræði við forsvarsmenn heilbrigðiskerfisins um hvernig fjalla eigi um heilbrigðis-
mál og hvernig megi koma í veg fyrir að lýsingar séu settar fram í geðshræringu.
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
FULLVELDISKAKAN
Fréttaflutningur af
þessu tagi er einnig
líklegur til að valda heil-
brigðisstarfsfólki miklu
hugarangri og vanlíðan.
Magnús Haraldsson, leiðarahöfundur
Læknablaðsins
Á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi í verkfalli árið 2016. FréttabLaðið/Ernir
viðskipti „Eldislax er notaður alls
staðar um allan heim og er fyrsta
flokks vara,“ segir í yfirlýsingu frá
Klúbbi matreiðslumeistara sem nú
hefur aftur tekið upp samstarf við
Arnarlax.
Uppnám varð meðal liðsmanna
kokkalandsliðsins fyrir tæpum
tveimur mánuðum vegna samstarfs-
samnings sem Klúbbur matreiðslu-
manna gerði við Arnarlax.
Í yfirlýsingu frá fjórtán með-
limum kokkalandsliðsins sagði um
sjókvíaeldi á laxi að það væri „ógn
við villta lax- og silungastofna“ og
hefði „margvísleg neikvæð um-
hverfis áhrif á lífríki Íslands“ og
kvaðst hópurinn draga sig út úr
landsliðinu að svo stöddu.
„Meðlimir kokkalandsliðsins hafa
gefið það út að nota eingöngu afurð-
ir sem framleiddar eru á sjálfbæran
hátt og í sátt við náttúruna og þar
með vilja meðlimir ekki taka þátt
í því að kynna, fyrir hönd Íslands,
vörur sem framleiddar eru með
þessum hætti,“ sögðu kokkarnir.
Klúbbur matreiðslumeistara hélt
nýlega félagsfund þar sem þessi
atburðarás var rædd. „Var það vilji
fundarmanna að ná sáttum við
Arnarlax og ganga báðir aðilar nú
sáttir frá borði. Klúbbur matreiðslu-
meistara harmar að Arnarlax hafi
orðið fyrir ósanngjarnri gagnrýni
vegna málsins.“ – gar
Kokkar
sættast við
Arnarlax
Gengið frá samningi á sínum tíma.
viðskipti Sjón-
varp Símans er
nú í samninga-
viðræðum við
forsvarsmenn ensku úrvalsdeildar-
innar í fótbolta um sjónvarpsréttinn
á deildinni eftir að hafa yfirboðið
Sýn með ofurtilboði, en þetta stað-
festi Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri afþreyingarmiðla
og sölu hjá Símanum, í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Magnús tekur fram að hann megi
ekki tjá sig efnislega um gang við-
ræðna. „Við erum skuldbundnir til
að tjá okkur ekki efnislega um við-
ræðurnar en þær ganga vel.“
Enska úrvalsdeildin hefur undan-
farin ár verið sýnd á Stöð 2 sport, í
eigu Sýnar. Í tilkynningu frá Sýn
kemur fram að ofurtilboð hafi
ráðið úrslitum en vitnað er í Björn
Víglundsson, framkvæmdastjóra
Sýnar. – oæg
Enski boltinn
fer til Símans
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhenti í gær Hönnunarverðlaun Íslands fyrir árið 2018 á Kjarvalsstöðum. Verðlaunin féllu í hlut Basalt
arkitekta þetta árið og voru sigurvegararnir ánægðir með gripinn og milljón króna styrkinn sem honum fylgdi. Þetta var í fimmta skipti sem
verðlaunin eru afhent en Hönnunarmiðstöð Íslands, sem veitir verðlaunin, fagnar að auki tíu ára afmæli í ár. FréttabLaðið/SiGtryGGur ari
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-1
8
1
0
2
1
4
6
-1
6
D
4
2
1
4
6
-1
5
9
8
2
1
4
6
-1
4
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K