Fréttablaðið - 03.11.2018, Page 6

Fréttablaðið - 03.11.2018, Page 6
Tenerife um jólin 22. desember í 13 nætur Frá kr. 231.465 BEINT FLUG MEÐ Frá kr. 174.995 595 1000 . heimsferdir.isBókaðu þína ferð á iðnaður Verndarsjóður villtra laxastofna, North Atlantic Salmon Fund, hóf á fimmtudag kynn­ ingarátakið Á móti straumnum. Er  það  um kosti þess að stunda fiskeldi á landi eða í lokuðum sjókvíum. „Markmið átaksins er að kynna kosti fiskeldis í lokuðum sjókvíum, sem er hvort tveggja í senn öruggt og umhverfisvænt,“ er haft eftir tals­ manni átaksins, Gísla Sigurðssyni íslenskufræðingi, í fréttatilkynn­ ingu, „Fiskeldi er mikilvæg atvinnu­ grein og mun hafa veigamiklu hlutverk að gegna þegar fram líða stundir. Ísland er ákjósanlegur staður til að byggja upp öflugt fisk­ eldi en það er mikilvægt að stunda fiskeldi í sátt við náttúruna og án þess að það skaði ímynd og orðspor Íslands,“ er áfram haft eftir Gísla. Í fréttatilkynningunni segir að talsverð umfjöllun hafi verið um fiskeldi í opnum sjókvíum við Ísland.  „Minna hefur farið fyrir umræðu um heilbrigt og um hverfis­ vænt fiskeldi í lokuðum sjókvíum eða um eldi á landi. Markmið kynn­ ingarátaksins er að upplýsa frekar um neikvæð umhverfisáhrif opinna eldiskvía í sjó og kosti fiskeldis á landi og í lokuðum sjókvíum, sem er hvort tveggja í senn öruggara og um hverfis vænna.“ Eins og fyrr segir hófst átak Verndarsjóðs villtra laxastofna á fimmtudaginn. Var þá haldinn fundur í Norræna húsinu þar sem Rögnvaldur Guðmundsson, fram­ kvæmdastjóri AkvaFuture, fjallaði um fiskeldi í lokuðum sjókvíum og Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri fiskeldis­ og fiskiræktarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun, ræddi um áhættu af erfðablöndun vegna fisk­ eldis í opnum sjókvíum. – gar Verndarsjóður kynnir kosti fiskeldis á landi eða í lokuðum sjókvíum Sjókvíaeldi á laxi er umdeilt. Myndin er frá Súgandafirði. NordicphotoS/Getty STJÓrnSÝSLa Reglugerð um endur­ aðlögunarstyrk og ferðastyrk til umsækjenda um alþjóðlega vernd tók gildi í gær. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta fengið allt að þúsund evrur, andvirði tæpra 140 þúsund króna, yfirgefi þeir landið. Umsækjandi getur fengið frá hundrað að tvö hundruð evrum í ferðastyrk en upphæð aðlögunar­ styrksins er á bilinu tvö hundruð til átta hundruð evrur. Hæsta upphæð fá þeir sem koma frá Afganistan, Íran, Írak, Nígeríu og Sómalíu. Einstaklingar frá Alsír, Egyptalandi og Marokkó fá næst­ mest. Aðrir umsækjendur eiga ein­ göngu rétt á ferðastyrknum. – jóe Ríkið styrkir flóttamenn til brottfarar SaMFÉLaG Stuðningur við sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslun­ um eykst milli ára samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Rúm 38 prósent vilja leyfa sölu bjórs í matvöru­ verslunum en rúm 33 prósent voru fylgjandi því á síðasta ári. Viðhorfin eru svipuð þegar kemur að léttvíni en tæp 38 prósent eru fylgjandi sölu þess í verslunum. Nánast jafn margir eru andvígir sölu á léttvíni í matvöruverslunum eða rúm 46 prósent og lækkar það hlut­ fall um 12 prósentustig milli ára. Enn er mikill meirihluti á móti sölu á sterku víni í matvöruversl­ unum en aðeins rúm 13 prósent eru því fylgjandi. – sar 38 prósent vilja léttvín í búðir Aðeins eitt sveitarfélag uppfyllir lög um ráðningu kennara á leikskólum innan síns sveitarfélags. Að meðal­ tali er 31 prósent kennara á leik­ skólum landsins með menntun sem leikskólakennarar. Formaður Félags leikskólakennara segir mikilvægt að gera starfið aðlaðandi, bæta vinnuað­ stöðu og vinnutíma starfsmanna og hækka laun þeirra. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands frá árinu 2017 voru aðeins 30,9 prósent starfsmanna við upp­ eldis­ og menntunarstörf í leikskólum landsins  með próf sem leikskóla­ kennarar. Oddviti Miðflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, Sigurður Þ. Ragnars­ son, gerði skort á leikskólakennurum í Hafnarfirði að umtalsefni í vikunni og sagði það blekkingu að halda úti faglegu skólastarfi með svo fáa leik­ skólakennara innan vébanda bæjar­ ins. Bæjaryfirvöld sendu í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem þau töldu ummæli Sigurðar og umfjöllun hans ósanngjarna. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir mikil­ vægt að fjölga leikskólakennurum Sveitarfélög standast ekki lög um fjölda leikskólakennara Fjögur sveitarfélög hafa enga menntaða starfsmenn í sínum leikskólum. Fréttablaðið/aNtoN hörgársveit 77,1% hæsta hlutfall menntaðra leikskólakennara 30,9% Vegið landsmeðaltal Hlutfall leikskólakennara nokkurra sveitarfélaga 2017. akureyrarkaupstaður 56,9% Kópavogsbær 35,0% Seltjarnarneskaupstaður 34,6% Mosfellsbær 31,9% reykjanesbær 31,3% Garðabær 29,4% reykjavíkurborg 28,5% hafnarfjarðarkaupstaður 22,5% heiMild: hagstofa Íslands um allt land. „Sveitarfélög hafa verið að taka yngri börn og við náum ekki nægilegri nýliðun til að fjölga leik­ skólakennurum,“ segir Haraldur. „Verkefnið er gífurlegt til að uppfylla lágmarkskröfur laganna. Við þurfum að hafa launin samkeppnishæf við aðra sérfræðinga. Við þurfum að bæta starfsskilyrði kennara með því að bæta við undirbúningstímum og stilla starfsumhverfið nær því sem þekkist á öðrum skólastigum varðandi starf og vinnutíma.“ Í lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda, sem eru frá árinu 2008, er kveðið á um að að minnsta kosti tvö af hverjum þremur stöðugildum við kennslu, umönnun og uppeldi séu mönnuð einstaklingum með m leikskólakenn­ arapróf. Sveitarfélagið sem uppfyllir þetta skilyrði laganna er Hörgársveit í Eyjafirði en 77 prósent starfsmanna á leikskólanum í sveitarfélaginu eru með próf í leikskólakennarafræðum. Fjögur sveitarfélög hér á landi hafa enga menntaða starfsmenn í fræð­ unum á sínum leikskóla. Það eru Eyja­ og Miklaholtshreppur, Borgar­ fjarðarhreppur, Breiðdalshreppur og Mýrdalshreppur. sveinn@frettabladid.is Aðeins eitt sveitarfélag uppfyllir lög um mennt- un og ráðningu kennara við leikskóla sína. Fjögur sveitarfélög hafa engan leikskólakennara í sínum leikskólum. Formaður félags leikskólakennara segir verkefnið gífurlegt að fjölga kennurum. Við þurfum að hafa launin samkeppnis- hæf við aðra sérfræðinga Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskóla- kennara Hæstu upphæð fá þeir sem koma frá Afganistan, Íran, Írak og fleiri löndum. 3 . n Ó v e M b e r 2 0 1 8 L a u G a r D a G u r6 F r É T T i r ∙ F r É T T a b L a ð i ð 0 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :0 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 4 6 -3 F 9 0 2 1 4 6 -3 E 5 4 2 1 4 6 -3 D 1 8 2 1 4 6 -3 B D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.