Fréttablaðið - 03.11.2018, Qupperneq 6
Tenerife um jólin
22. desember í 13 nætur
Frá kr.
231.465
BEINT FLUG MEÐ
Frá kr.
174.995
595 1000 . heimsferdir.isBókaðu þína ferð á
iðnaður Verndarsjóður villtra
laxastofna, North Atlantic Salmon
Fund, hóf á fimmtudag kynn
ingarátakið Á móti straumnum.
Er það um kosti þess að stunda
fiskeldi á landi eða í lokuðum
sjókvíum.
„Markmið átaksins er að kynna
kosti fiskeldis í lokuðum sjókvíum,
sem er hvort tveggja í senn öruggt
og umhverfisvænt,“ er haft eftir tals
manni átaksins, Gísla Sigurðssyni
íslenskufræðingi, í fréttatilkynn
ingu,
„Fiskeldi er mikilvæg atvinnu
grein og mun hafa veigamiklu
hlutverk að gegna þegar fram líða
stundir. Ísland er ákjósanlegur
staður til að byggja upp öflugt fisk
eldi en það er mikilvægt að stunda
fiskeldi í sátt við náttúruna og án
þess að það skaði ímynd og orðspor
Íslands,“ er áfram haft eftir Gísla.
Í fréttatilkynningunni segir
að talsverð umfjöllun hafi verið
um fiskeldi í opnum sjókvíum við
Ísland. „Minna hefur farið fyrir
umræðu um heilbrigt og um hverfis
vænt fiskeldi í lokuðum sjókvíum
eða um eldi á landi. Markmið kynn
ingarátaksins er að upplýsa frekar
um neikvæð umhverfisáhrif opinna
eldiskvía í sjó og kosti fiskeldis á
landi og í lokuðum sjókvíum, sem
er hvort tveggja í senn öruggara og
um hverfis vænna.“
Eins og fyrr segir hófst átak
Verndarsjóðs villtra laxastofna
á fimmtudaginn. Var þá haldinn
fundur í Norræna húsinu þar sem
Rögnvaldur Guðmundsson, fram
kvæmdastjóri AkvaFuture, fjallaði
um fiskeldi í lokuðum sjókvíum
og Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri
fiskeldis og fiskiræktarsviðs hjá
Hafrannsóknastofnun, ræddi um
áhættu af erfðablöndun vegna fisk
eldis í opnum sjókvíum. – gar
Verndarsjóður kynnir kosti fiskeldis á landi eða í lokuðum sjókvíum
Sjókvíaeldi á laxi er umdeilt. Myndin er frá Súgandafirði. NordicphotoS/Getty
STJÓrnSÝSLa Reglugerð um endur
aðlögunarstyrk og ferðastyrk til
umsækjenda um alþjóðlega vernd
tók gildi í gær. Umsækjendur um
alþjóðlega vernd geta fengið allt að
þúsund evrur, andvirði tæpra 140
þúsund króna, yfirgefi þeir landið.
Umsækjandi getur fengið frá
hundrað að tvö hundruð evrum í
ferðastyrk en upphæð aðlögunar
styrksins er á bilinu tvö hundruð til
átta hundruð evrur.
Hæsta upphæð fá þeir sem koma
frá Afganistan, Íran, Írak, Nígeríu
og Sómalíu. Einstaklingar frá Alsír,
Egyptalandi og Marokkó fá næst
mest. Aðrir umsækjendur eiga ein
göngu rétt á ferðastyrknum. – jóe
Ríkið styrkir
flóttamenn til
brottfarar
SaMFÉLaG Stuðningur við sölu á
bjór og léttvíni í matvöruverslun
um eykst milli ára samkvæmt nýrri
könnun Maskínu. Rúm 38 prósent
vilja leyfa sölu bjórs í matvöru
verslunum en rúm 33 prósent voru
fylgjandi því á síðasta ári.
Viðhorfin eru svipuð þegar kemur
að léttvíni en tæp 38 prósent eru
fylgjandi sölu þess í verslunum.
Nánast jafn margir eru andvígir sölu
á léttvíni í matvöruverslunum eða
rúm 46 prósent og lækkar það hlut
fall um 12 prósentustig milli ára.
Enn er mikill meirihluti á móti
sölu á sterku víni í matvöruversl
unum en aðeins rúm 13 prósent eru
því fylgjandi. – sar
38 prósent vilja
léttvín í búðir
Aðeins eitt sveitarfélag uppfyllir lög
um ráðningu kennara á leikskólum
innan síns sveitarfélags. Að meðal
tali er 31 prósent kennara á leik
skólum landsins með menntun sem
leikskólakennarar. Formaður Félags
leikskólakennara segir mikilvægt að
gera starfið aðlaðandi, bæta vinnuað
stöðu og vinnutíma starfsmanna og
hækka laun þeirra.
Samkvæmt gögnum frá Hagstofu
Íslands frá árinu 2017 voru aðeins
30,9 prósent starfsmanna við upp
eldis og menntunarstörf í leikskólum
landsins með próf sem leikskóla
kennarar.
Oddviti Miðflokksins í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar, Sigurður Þ. Ragnars
son, gerði skort á leikskólakennurum
í Hafnarfirði að umtalsefni í vikunni
og sagði það blekkingu að halda úti
faglegu skólastarfi með svo fáa leik
skólakennara innan vébanda bæjar
ins. Bæjaryfirvöld sendu í kjölfarið
frá sér yfirlýsingu þar sem þau töldu
ummæli Sigurðar og umfjöllun hans
ósanngjarna.
Haraldur Freyr Gíslason, formaður
Félags leikskólakennara, segir mikil
vægt að fjölga leikskólakennurum
Sveitarfélög standast ekki lög
um fjölda leikskólakennara
Fjögur sveitarfélög hafa enga menntaða starfsmenn í sínum leikskólum. Fréttablaðið/aNtoN
hörgársveit 77,1%
hæsta hlutfall menntaðra
leikskólakennara
30,9% Vegið landsmeðaltal
Hlutfall leikskólakennara
nokkurra sveitarfélaga 2017.
akureyrarkaupstaður 56,9%
Kópavogsbær 35,0%
Seltjarnarneskaupstaður 34,6%
Mosfellsbær 31,9%
reykjanesbær 31,3%
Garðabær 29,4%
reykjavíkurborg 28,5%
hafnarfjarðarkaupstaður 22,5%
heiMild: hagstofa Íslands
um allt land. „Sveitarfélög hafa verið
að taka yngri börn og við náum ekki
nægilegri nýliðun til að fjölga leik
skólakennurum,“ segir Haraldur.
„Verkefnið er gífurlegt til að uppfylla
lágmarkskröfur laganna. Við þurfum
að hafa launin samkeppnishæf við
aðra sérfræðinga. Við þurfum að bæta
starfsskilyrði kennara með því að
bæta við undirbúningstímum og stilla
starfsumhverfið nær því sem þekkist
á öðrum skólastigum varðandi starf
og vinnutíma.“
Í lögum um menntun og ráðningu
kennara og skólastjórnenda, sem
eru frá árinu 2008, er kveðið á um
að að minnsta kosti tvö af hverjum
þremur stöðugildum við kennslu,
umönnun og uppeldi séu mönnuð
einstaklingum með m leikskólakenn
arapróf. Sveitarfélagið sem uppfyllir
þetta skilyrði laganna er Hörgársveit
í Eyjafirði en 77 prósent starfsmanna
á leikskólanum í sveitarfélaginu eru
með próf í leikskólakennarafræðum.
Fjögur sveitarfélög hér á landi hafa
enga menntaða starfsmenn í fræð
unum á sínum leikskóla. Það eru
Eyja og Miklaholtshreppur, Borgar
fjarðarhreppur, Breiðdalshreppur og
Mýrdalshreppur.
sveinn@frettabladid.is
Aðeins eitt sveitarfélag
uppfyllir lög um mennt-
un og ráðningu kennara
við leikskóla sína. Fjögur
sveitarfélög hafa engan
leikskólakennara í sínum
leikskólum. Formaður
félags leikskólakennara
segir verkefnið gífurlegt
að fjölga kennurum.
Við þurfum að hafa
launin samkeppnis-
hæf við aðra sérfræðinga
Haraldur Freyr
Gíslason, formaður
Félags leikskóla-
kennara
Hæstu upphæð fá þeir
sem koma frá Afganistan,
Íran, Írak og fleiri löndum.
3 . n Ó v e M b e r 2 0 1 8 L a u G a r D a G u r6 F r É T T i r ∙ F r É T T a b L a ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-3
F
9
0
2
1
4
6
-3
E
5
4
2
1
4
6
-3
D
1
8
2
1
4
6
-3
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K