Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 12
Við höfum afhent fyrstu sendinguna af 2019 árgerð Mitsubishi Outlander PHEV og óskum nýjum eigendum til
hamingju. Outlander PHEV er langvinsælasti bíllinn á Íslandi, enda sameinar hann flestar óskir bíleigenda í einum bíl.
Umhverfisvænn rafbíll, rúmgóður jepplingur og öruggur fjórhjóladrifsbíll. Nýr Outlander PHEV er með enn skarpara
útlit, lengri akstursdrægni og meira afl, en er þó sparneytnari og umhverfisvænni en nokkru sinni fyrr.
Það kemur ekki á óvart að fyrsta sendingin seldist upp. Nú er ný sending væntanleg og því kjörið tækifæri að
stökkva á vagninn og panta nýjan Mitsubishi Outlander PHEV. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
TIL HAMINGJU! NÝR
BlizzCon, ráðstefna og hátíð banda
ríska tölvuleikjaframleiðandans
Blizzard, hófst í gær og stendur
yfir um helgina. Þótt margir muni
fylgjast með kynningum nýrra leikja
og uppfærslna meðan á hátíðinni
stendur renna trúlega fleiri hýru
auga til eiginlegrar tímavélar sem
Blizzard kynnti á síðasta ári og
býður áhugasömum loks að stíga
inn í í prufuskyni um helgina.
Ráðstefnugestir og handhafar
stafræns aðgöngumiða geta nefni
lega prófað leikinn World of War
craft Classic um helgina og á næstu
dögum. Um er að ræða World of
Warcraft í sinni upprunalegu, fjór
tán ára gömlu mynd en leikurinn
hefur tekið miklum breytingum
með fjölmörgum aukapökkum frá
útgáfu. Þannig má sjá fyrir sér að
tölvuleikjaáhugafólk sem var á tán
ingsaldri þegar leikurinn kom út, en
er nú jafnvel komið með fjölskyldu
og hús, geti upplifað ævintýri for
tíðarinnar á ný.
Lengi hafði verið þrýst á Blizzard
að bjóða upp á þennan möguleika
þangað til verkefnið var loks kynnt
á BlizzCon í fyrra. Fjölmargar ólög
legar sjóræningjaútgáfur leiksins
hafa sprottið upp á netinu og hefur
Blizzard reglulega farið fram á lokun
þeirra við litla hrifningu þeirra sem
haldnir eru einna mestri fortíðar
þrá.
Það vakti misjafna lukku í vik
unni þegar tilkynnt var um að tak
markanir væru á spilatíma núna
þegar leikmenn fá að prófa World
of War craft Classic. Ekki er hægt
að spila í nema klukkutíma í senn
en leikurinn í heild kemur út næsta
sumar. – þea
Hverfa aftur til fortíðar
Tækni
Rússneskir tölvuþrjótar virðast hafa
komist yfir og boðið til sölu einka
skilaboð 81.000 Facebooknotenda.
BBC greindi frá málinu í gær og
sagði að Rússarnir héldu því fram að
í heild hefðu skilaboð 120 milljóna
notenda verið til sölu. Þá tölu dró
miðillinn hins vegar í efa.
Flestir notendanna eru frá Rúss
landi og Úkraínu en þó er einhverja
að finna í gögnunum sem eru frá
Bretlandi, Bandaríkjunum, Brasilíu
og víðar. Skilaboð hvers notanda
voru seld á um tíu krónur íslenskar
en síðan var tekin niður eftir að
BBC setti sig í samband við tölvu
þrjótana.
Auglýsing um að hægt væri að
kaupa þessi gögn birtist fyrst á
enskumælandi spjallborði í sept
ember þegar notandi sem kallaði
sig FBSaler sagðist búa yfir skila
boðum 120 milljóna Facebooknot
enda. BBC fékk netöryggisfyrirtækið
Digital Shadows til að skoða þessa
staðhæfingu og komst fyrirtækið að
því að skilaboðum 81.000 notenda
hefði verið stolið og að einnig hefði
verið hægt að stela skilaboðum
176.000 notenda til viðbótar.
Að sögn BBC setti miðillinn sig í
samband við seljandann og sagðist
hafa áhuga á að kaupa skilaboð
tveggja milljóna notenda, spurði
hvort málið tengdist annaðhvort
Cambridge Analytica hneykslinu
eða öryggisbresti sem greint var
frá í september þegar milljónir
aðganga voru í raun opnar tölvu
þrjótum. Sölumaður undir nafninu
John Smith svaraði og sagði málin
ótengd. Þá sagði hann einnig að
salan tengdist ekki rússneskum yfir
völdum eða nettröllabúum þeirra.
Guy Rosen, stjórnandi hjá
Facebook, sagði í gær að ekki hefði
verið brotist inn í tölvukerfi sam
félagsmiðilsins. Hins vegar væri
viðbótum við netvafra um að kenna.
Fyrirtækið hefði því látið vafrafram
leiðendur vita af málinu til þess að
tryggja að viðbæturnar væru teknar
úr viðbótaverslunum vafranna.
thorgnyr@frettabladid.is
Enn eitt hneykslið hjá
Facebook komið upp
Þótt þessi mynd sé sviðsett er vandamálið raunverulegt. Nordicphotos/getty
Tölvuþrjótar selja einka-
skilaboð tugþúsunda
notenda. Segjast reynd-
ar vera með skilaboð
120 milljóna notenda
miðilsins en BBC dregur
þá tölu í efa. Málið ekki
sagt tengjast Cambridge
Analytica hneykslinu
né öryggisbresti septem-
bermánaðar.
Þessi hefur kannski áhuga á því að spila gamla útgáfu WoW. Nordicphotos/AFp
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-3
A
A
0
2
1
4
6
-3
9
6
4
2
1
4
6
-3
8
2
8
2
1
4
6
-3
6
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K