Fréttablaðið - 03.11.2018, Qupperneq 16
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Fólk fyllist
ónotum þegar
fyrirtæki
auglýsa
innfluttan
varning sinn
úr nýkomn-
um vörugámi
á „gamla
genginu“.
Slíkar til-
kynningar
voru síbylja
fyrir fáum
áratugum.
Ég uppfærði stýrikerfið á símanum mínum í vik-unni. Slíkt væri vart í frásögur færandi ef ekki hefði hrikt í stoðum sjálfsmyndar minnar í kjölfarið.
Um síðustu helgi var eiginmaðurinn sendur í útlegð
út á róló með grislingana tvo á meðan móðirin var
heima og kláraði að skrifa bók. Einbeitingin var rofin
þegar vídjó barst frá róluvellinum. Ég teygði mig í sím-
ann. Eiginmaðurinn hafði fest á myndband augnablikið
þegar tveggja ára sonur okkar fékk sig svo fullsaddan af
því að pabbi hans héngi á internetinu alla rólóferðina
að hann arkaði upp að pabbanum, sló í buxnavasa hans
og orgaði: „Inn í hér, inn í hér.“ Hann vildi að pabbinn
setti símann í vasann.
Þar sem ég sat í mjúkum skrifborðsstól, með heitt
kaffi og hlustaði á regnið bylja á glugganum var auðvelt
að halda uppeldis-kvarðanum í útópískum hæðum.
„Hangir þú bara í símanum?“ skrifaði ég regnvotum
karlinum til baka. „Ertu ekkert að tala við þau? Mynda
tengsl? Eiga við þau uppbyggileg samtöl um margföld-
unartöfluna; útskýra fyrir þeim hvers vegna himinninn
er blár; kenna þeim að lemja frá sér án þess að hinir full-
orðnu sjái til?“ Engin svör bárust en ég hef eiginmann-
inn grunaðan um að hafa eytt mér af WhatsApp.
Tæknilegar syndir
Ég hef löngum stært mig af því að vera ekki símakona.
Þegar ég endurnýja farsímann felst það iðulega í því að
ég tek við gamla síma eiginmannsins þegar hann fær
sér nýjan. Símaáskrift mín inniheldur lítið gagnamagn,
örfáar innifaldar mínútur – en ótakmarkaðan fjölda af
SMS-skilaboðum sem símafyrirtæki virðast eiga jafn-
erfitt með að koma út og hamborgarhryggjum í janúar.
Ástæða þess að ég er ekki með nefið ofan í símanum
hverja stund er þó ekki sú að ég sé svo dyggðug heldur
einfaldlega að ég sit við tölvu allan daginn þar sem ég
drýgi mínar tæknilegu syndir. Missi ég einbeitinguna
eitt andartak í vinnunni öðlast fingur mínir sjálfstæðan
vilja og skyndilega blasir Facebook við mér á tölvu-
skjánum; strandi ég í verkefni leita ég lausna í myndum
af flekklausum brosum og filteruðum veruleika á
Instagram. Með nýja stýrikerfinu á símanum mínum
fylgdi þjónusta sem mælir hvað ég nota símann minn
mikið. Í ljós kom að þvert á sjálfsmynd mína er ég síma-
kona. Þrátt fyrir að sitja við tölvuskjá í átta til tíu tíma
á dag tókst mér engu að síður að eyða einni og hálfri
klukkustund að meðaltali í símanum á dag. Mælingar
sýna að ég gríp símann á lofti að meðaltali 74 sinnum á
dag; 524 sinnum í viku. Síminn minn pípir 522 sinnum
á viku. Ég fæ 220 skilaboð á WhatsApp, 31 á Facebook,
26 á Snapchat. Ég er með myndavélina á lofti í 37
mínútur á viku. Ég skoða eigin ljósmyndir í 26 mínútur.
Tími í gíslingu
Á morgun stendur Barnaheill fyrir símalausum sunnu-
degi. Er átakinu ætlað að vekja fólk til umhugsunar um
áhrif símanotkunar á samskipti innan fjölskyldunnar
en rannsóknir gefa til kynna að snjallsímanotkun for-
eldra geti haft áhrif á tengslamyndun foreldra og barna
þar sem foreldri er andlega fjarverandi sökum snjall-
símanotkunar.
Nútímafólk þjáist af krónískum tímaskorti. Það er
svo ótalmargt sem okkur langar til að gera en komumst
ekki yfir í annríki hversdagsins. Ég hef til dæmis ekki
horft á heila bíómynd í sjónvarpinu síðan sonur minn
fæddist fyrir tveimur árum. Ég hef einfaldlega ekki haft
tíma. Eða það hélt ég.
Á morgun ætla ég að hafa slökkt á símanum mínum.
Ég ætla að gera það fyrir grislingana tvo sem munu
eiga athygli mína óskipta er þeir rífast um hvort fær að
leika sér að tómri klósettrúllu á meðan barnaherbergi
stútfullt af leikföngum stendur óhreyft. En ég ætla líka
að gera það fyrir sjálfa mig. Því mælingar sýna að ég hef
eina og hálfa klukkustund aflögu á degi hverjum. Ég
ætla að endurheimta frítíma minn úr gíslingu farsímans
og horfa á bíómynd. Hvað er miklu af tíma þínum
haldið í gíslingu?
524 sinnum í viku
Ferðaþjónustan hjálpaði til við að hífa Ísland upp úr lægðum fjármálahrunsins. Nú er tími til að setja metnaðarfullar áætlanir á ís.“Þetta eru lokaorð Lex-dálksins í Financial Times í liðinni viku. Fjallað var um Iceland-
air. Slík skrif um íslensk fyrirtæki eru ekki daglegt
brauð. Lex er rótgróinn og einn þekktasti blaðadálk-
ur um viðskipti í heiminum. Umfjöllunin er ákveðin
upphefð fyrir Icelandair.
Hinn nafnlausi höfundur Lex er ekki eingöngu nei-
kvæður í garð Icelandair. Segir félagið eiga eignir sem
hjálpi því að greiða úr vanda sínum og tiltekur háar
tölur. Bent er á að félagið eigi 52 vélar sem megi selja
og leigja aftur til að laga lausafjárstöðuna.
Fram kemur að Icelandair hafi þegar gripið til
aðgerða – breytt áætlunum, sett hótel í söluferli og
skipt yfir í sparneytnari vélar. Fram kemur bjartsýni
fyrir hönd flugfélagsins í umleitunum um breytingu á
lánaskilmálum.
Icelandair er ekki eitt á báti. Rekstrarviðvörun
kom frá Eimskip og Sýn, eignarhaldsfélagi Vodafone,
í vikunni. Allt í samræmi við spár um að heldur fari
að hægja á hagvexti og að verðbólga fari að láta á sér
kræla. Krónudraugurinn er vaknaður til lífsins.
Svartsýnisrausið má þó ekki yfirtaka umræðuna.
Forðast ber að teikna of dökka mynd. Líkt og Iceland-
air, er Ísland að flestu leyti vel búið til að taka til í
hagkerfinu. Undirstöður eru traustar og ríkissjóður
skuldar lítið. Engin teikn eru á lofti um að yfirvofandi
sé áfall sem verði ríkissjóði ofviða.
Rétt eins og hjá fyrirtækjunum í Kauphöllinni sem
fengið hafa áminningu frá markaðnum, þarf ríkis-
stjórnin að bregðast rétt við þeim verkefnum sem
fram undan eru.
Blikur eru á lofti á vinnumarkaði. Samtök atvinnu-
lífsins hampa norrænu módeli, sem er fullkomlega
óraunhæft meðan krónan sveiflast eins og lauf í
vindi. Krónublindan og kæruleysi kjararáðs hefur
skapað frjóan jarðveg fyrir uppþot í verkalýðshreyf-
ingunni. Frá henni heyrast hugmyndir aftan úr grárri
forneskju.
Erfitt er að greina á milli hvor röddin er óábyrgari,
sú sem hæst talar fyrir munn launþega, eða hin sem
mest heyrist í frá hinni hliðinni. Hvorug sér uppvakn-
inginn, krónudrauginn sem við þó þekkjum út og inn
af biturri reynslu. Hann kemur aftur og aftur aftan að
okkur við svona aðstæður.
Fólk fyllist ónotum þegar fyrirtæki auglýsa inn-
fluttan varning sinn úr nýkomnum vörugámi á
„gamla genginu“. Slíkar tilkynningar voru síbylja fyrir
fáum áratugum.
Uppbyggilegustu hugmynd vikunnar reifaði
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson kaupmaður hér í
blaðinu um að laun yrðu greidd í erlendri mynt. Þar
kveður alla vega við nýjan tón.
Útflutningsfyrirtæki gera upp í evrum til að
bæta áætlanagerð. Heimili þurfa líka festu við gerð
áætlana.
Gamla gengið
í Fríkirkjunni í Reykjavík
Helg eru jól
Jólatónleikar til styrktar Kvenlækningadeild 21A,
fimmtudaginn 6. desember kl. 12
Flytjendur:
Valgerður Guðnadóttir, sópran | Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzosópran
Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari og stjórnandi | Kvennakórinn Concordia
Hljómsveit:
Lilja Eggertsdóttir, píanó | Pamela De Sensi, þverflauta | Chrissie Guðmundsdóttir, fiðla
Íris Dögg Gísladóttir, fiðla | Vigdís Másdóttir, fiðla | Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló
Þorgrímur Jónsson, kontrabassi
Miðasala á tix.is og við innganginn | Miðaverð 2500.-
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-1
3
2
0
2
1
4
6
-1
1
E
4
2
1
4
6
-1
0
A
8
2
1
4
6
-0
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K