Fréttablaðið - 03.11.2018, Síða 28
Vinalega verslunarmiðstöðin
í miðbæ Hafnarfjarðar
MIÐ – LAU 3. nóv.31. okt.
TaxFree er 19,35% afsláttur
Að sjálfsögðu fær Ríkissjóður sinn VSK.
Leikfangaland er 3 ára og gefur því
öllum krökkum nammipoka
og andlitsmálun.
Afmæli
bókinni eru vitnisburðir fólks sem
Þóra Kristín hefur talað við. Þeirra
á meðal er Kristinn Kristinsson,
félagsmálastjóri í Ölfusi.
„Það er fjarstæðukennt að ætla
að hjón í Þorlákshöfn hafi tekið
það upp hjá sjálfum sér að ættleiða
stálpað barn frá Indlandi sem þau
höfðu aldrei séð áður og fá sent
nánast í pósti til landsins. Sagt er að
það hafi verið þrýst á þau að gera
þetta. Þau eru að öllum líkindum
jafnmikil fórnarlömb í þessu og
Hasim sjálfur,“ er haft eftir Kristni
í bókinni.
Fólk er skuldbundið til að ganga
frá ættleiðingu gangi það til hennar.
Í yfirlýsingu fósturforeldra hans
segir að þau lýsi yfir eindregnum
vilja til að ættleiða Hasim ekki. Þá
segist þau ekki óska eftir neinum
félagslegum eða lagalegum tengsl-
um við hann.
Öll skjöl um Hasim hurfu
„Atburðarásin sem fór af stað var
harðneskjuleg,“ segir Þóra Kristín.
„Þegar ættleiðingin er ógilt fer
Hasim í umsjá barnaverndarnefnd-
ar Ölfushrepps sem fer þá með for-
ræði hans. Hvorki dómsmálaráðu-
neytið né Íslensk ættleiðing hafa
viljað bera ábyrgð á stöðu Hasims,“
segir Þóra Kristín og segir það fljótt
hafa komið í ljós að þeir voru margir
sem vildu ekki ræða málefni hans.
„Margir vildu ekki ræða mál Hasims
og reyndu einnig að koma í veg fyrir
að bókin kæmi út. Til dæmis hurfu
öll skjöl um Hasim úr skjalageymslu
Ölfushrepps. Þegar hann loksins
mátti fá þau afhent, þá voru þau
bara horfin. Það voru sko ekki allir
á því að þessi saga yrði sögð,“ leggur
Þóra Kristín áherslu á.
„En okkur fannst það nauðsyn-
legt því saga Hasims á mikið erindi í
dag,“ segir hún. „Öll þessi flóttabörn
sem eru á vergangi í heiminum. Við
höfum ekki skilning á því að það
er ekki hægt að leggja allt á börn.
Það er mýta að þau aðlagist fljótt
og gleymi erfiðleikum sínum. Við
verðum að vanda okkur þegar við
tökum á móti þeim og reyna að
skilja hvaðan þau koma og úr hvaða
aðstæðum, það er ekki bara hægt að
skila þeim þegar illa gengur,“ segir
Þóra Kristín.
Hún segir að eftir að hafa kynnst
Hasim finnist henni enn nöturlegra
að hugsa til þeirra barna sem komi
til Íslands á flótta undan stríði og
öðrum hörmungum. „Þessi börn
eru kannski mánuðum eða árum
saman í skóla á Íslandi, að strita
við að ná fótfestu, læra framandi
tungumál og eignast vini. Þá koma
einhverjir kerfiskallar og -kellingar
og ákveða með einu pennastriki að
flytja þau út í skjóli nætur og henda
þeim í yfirfullar flóttamannabúðir.
Það gæti orðið erfitt að glíma við
reiði og sárindi þessara barna síðar
meir þegar þau verða fullorðnir ein-
staklingar.“
Fékk skjól hjá kennurum
Hasim segir skólastjórnendur og
kennara hafa reynst sér vel á Íslandi.
„Gæfa mín var hversu gott fólk var
í skólanum í Þorlákshöfn og svo
seinna í Austurbæjarskóla,“ segir
hann frá.
„Kennarar í Þorlákshöfn tóku
Hasim í fóstur. Þeim þótti vænt
um hann og þegar fósturforeldrar
hans vildu hann burt af heimilinu,
þá fékk hann skjól hjá þeim,“ segir
Þóra Kristín. „Það gekk svo reyndar
ekki lengur að hann byggi í Þorláks-
höfn, það var of erfitt fyrir hann,“
segir hún frá. „Seinna varð hann
svo aftur heppinn þegar skólastjórn-
endur og kennarar í Austurbæjar-
skóla tóku hann að vissu leyti undir
sinn verndarvæng. Þó að þá hafi
hann þurft að búa einn í herbergi
hér í Reykjavík. Innan um vega-
lausa. Það var þá sem ég hitti hann
Hasim, þegar hann gekk í Austur-
bæjarskóla.“
Hasim segist hafa vitað að Þóra
Kristín væri blaðakona og vildi
segja henni sögu sína. „Mér leið svo
hræðilega illa með þetta allt saman
og vildi held ég einhvern veginn
losna við þetta allt saman,“ segir
hann.
Eins og eldspúandi dreki
„Hann var í bekk með syni vin-
konu minnar. Hann var svo rosa-
lega reiður, mér fannst hann eins
og lítill, svarthærður eldspúandi
dreki. Hann var svo reiður að hann
lyftist frá jörðinni þegar hann tal-
aði. Ég sá að hann var ofboðslega
sært barn,“ segir Þóra Kristín sem
segist þá hafa hugsað sér að skrifa
með honum unglingabók, það hafi
hins vegar þurft að líða lengri tími.
Það hafi verið of erfitt að ná til hans
þarna og málið of viðkvæmt. „Fyrir
tæpu ári leiddi ég hugann að því
hver örlög hans hefðu orðið, hafði
upp á honum og við fórum að ræða
saman,“ segir Þóra Kristín sem tal-
aði auk þess við fjölda annars fólks
sem kom að málum og studdist við
þær skriflegu heimildir sem voru
tiltækar.
Í Reykjavík bjó Hasim á nokkrum
stöðum. Til dæmis í athvarfi fyrir
vegalausa unglinga í miðborginni.
„Um tíma var hann í herbergi í
Mjölnisholti þar sem bjuggu rónar
við hliðina á honum. Þar bjó hann
á meðan hann sótti tíma í Austur-
bæjarskóla. Hann borðaði núðlur
úr Bónus og þurfti að bjarga sér á
allan hátt,“ segir hún. „Hann lendir
í því að verða svolítill götustrákur í
Reykjavík. Verður sveitarómagi hjá
Ölfushreppi og býr aleinn í leigu-
herbergi í Reykjavík.“
Einmana og reiður
Hvernig getur svona gerst? Varðar
þetta ekki lög?
„Þetta er harðneskjulegt. Það voru
margir sem vissu þetta og sáu þetta.
En kennarar bæði í Þorlákshöfn og
svo í Austurbæjarskóla höfðu auga
með honum sem var bót í máli,“
segir Þóra Kristín frá og á við Guð-
mund Sighvatsson skólastjóra og
Nínu Magnúsdóttur kennara. Þá
var félagsmálafulltrúi Ölfushrepps
einnig í sambandi við hann.
„Ég mætti oft í skólann án nestis
og ekki tilbúinn. Þá sagði hann Guð-
mundur: Komdu hingað, Hasim
minn. Og hjálpaði mér. Þau studdu
við mig þegar ég átti engan að. Þegar
ég lét ófriðlega í skólanum var ég
sendur til hans. Hann tók á móti
mér, auðvitað skammaði hann mig.
En hann gerði það af alúð þannig
að ég fann að ég gat áfram treyst á
hann,“ segir Hasim.
Hann segist hafa verið ákaflega
einmana. Og reiður. „Ég hélt ég
væri að hefja nýtt líf þegar ég kom
til Íslands. Ég þyrfti ekki að hafa
áhyggjur framar. Á sama tíma var ég
enn að hugsa til Indlands og þess lífs
sem ég átti þar. Ég var rótlaus, reiður
og treysti engum,“ segir Hasim.
„Hann varð alltaf reiðari og
reiðari, það varð sífellt erfiðara að
hjálpa honum,“ segir Þóra Kristín.
„Þetta er ekki alveg að baki þótt
ég lifi góðu lífi í dag. Ég fæ enn mar-
tröð þar sem ég er einn í herbergi
þar sem rónarnir eru allt í kringum
mig. Jólin voru erfiðust. Þá er tími
fjölskyldunnar og þá voru allir
uppteknir,“ segir Hasim. „Ef ég vildi
hitta einhvern þá var það kannski
ekki hægt. Og þegar það var frí í
skólum og svona. Mér fannst það
erfitt,“ segir hann.
Tekur föðurhlutverkið alvarlega
„En svo kynnist hann stúlku og fjöl-
skylda hennar býður hann velkom-
inn í þeirra líf. Þau reyndust honum
ákaflega vel,“ segir Þóra Kristín. Þá
átti hann góða vini eins og lögreglu-
mann í Reykjavík sem var tilsjónar-
maður á sambýlinu þar sem hann
bjó. Hann tók Hasim undir sinn
verndarvæng og hefur alltaf verið
til taks að hennar sögn.
„Ég á íslenskan son. Hann er átján
ára og býr með móður sinni á Akur-
eyri. Ég er þakklátur þeim, ég treysti
þeim vel og veit að hann hefur það
gott.
Ég tek föðurhlutverkið alvarlega.
Ég reyni að veita börnum mínum
það sem ég fékk aldrei. Öryggi. Ég
fæ að vísa þeim rétta leið og finnst
ég heppinn.“
Hasim er hér fyrir miðju með mömmu sinni á Indlandi, bróður og frænda. Myndin er tekin skömmu áður en hann var
settur í lestina til Kalkútta. Hann var bara sex ára gamall og grét í lestinni. Hann endaði á barnaheimili í borginni.
Um tíma var hann í
herbergi í mjölnisholti
þar sem bjUggU rónar
við hliðina á honUm.
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-4
4
8
0
2
1
4
6
-4
3
4
4
2
1
4
6
-4
2
0
8
2
1
4
6
-4
0
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K