Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 76
Hatari eru
frábærir á tón-
leikum segir
Sawako Nevin.
Þessir
strákar eiga
eftir að
verða stórt
nafn!
Móheiður
Guðmundsdóttir
yfirmaður miðasölu
l Av Av Av – ég er mjög spennt að
sjá þessa dönsku stráka á sviði.
l Alma – súper svalur poppari frá
Finnlandi.
l Jimothy Lacoste – ég fékk góða
ábendingu frá Önnu vinkonu
minni varðandi þennan unga
breska rappara.
Sawako Nevin
tengiliður viðskiptaaðila
l Hatari – þeir eru svo frábærir á
tónleikum.
l Fufanu – af því þeir eru svo sætir!
l Trupa Trupa – skemmtileg og
rokkskotin tónlist frá Póllandi.
Hverju mæla starfsmenn með?
Natalie Prass vakti mikla athygli með
fyrstu plötu sinni sem kom út 2015.
Leigh Lust hóf ferilinn sem tónlistarstjóri WNYU útvarps-stöðvarinnar á 9. áratugnum
og hefur unnið hjá nokkrum
stórum útgáfufyrirtækjum, Capi-
tol Records, Elektra Records og
Atlantic Records, í gegnum tíðina.
Hann hefur starfað með þekktum
listamönnum á borð við Butthole
Surfers, Blind Melon og Stereolab,
ásamt mörgum öðrum, en seinna á
ferlinum uppgötvaði hann sveitir
eins og The Avalanches, Sixpence
None the Richer, Jet og Halestorm
og gerði við þær plötusamning.
Nú er hann yfirmaður í þróunar-
deild PledgeMusic, þar sem hann
hefur unnið með listamönnum eins
og The Flaming Lips, Jose Gonzalez,
Chvrches og mörgum fleiri. Í ár er
Leigh að koma á Airwaves í átjánda
sinn og gestir hátíðarinnar geta
fylgst með honum taka viðtal við
tónlistarsérfræðinginn Bob Lefsetz
á CenterHotel Plaza, föstudaginn
9. nóvember.
Hluti af hátíðinni frá byrjun
„Árið 1999 var ég í sjö manna hópi
stjórnenda úr tónlistariðnaðinum
sem var fenginn til Íslands til að
athuga hvort hljómsveitin Dead
Sea Apple gæti náð velgengni
erlendis,“ segir Leigh. „Það var farið
með okkur til Akureyrar á tónleika
og þar spiluðu Dead Sea Apple,
Toy Machine og Carpet, en þessar
hljómsveitir eru einmitt allar að
fara að spila aftur saman á 20 ára
afmælistónleikum núna í ár.
Við vorum öll mjög hrifin. Með
okkur var meðal annars yfirmaður
hjá EMI-útgáfufyrirtækinu og
Magnús Stephensen, yfirmaður
markaðsmála hjá Icelandair í
Bandaríkjunum. Þeir fóru að velta
fyrir sér hvort það væri ekki tilefni
til að reyna að halda heila tón-
listarhátíð,“ segir Leigh. „Magnús
reddaði svo flugskýli á Reykjavíkur-
flugvelli og bókaði nokkrar sveitir,
meðal annars GusGus og Thievery
Corporation, og þannig fæddist
fyrsta Airwaves-hátíðin.
Af því að ég var hluti af þessum
fyrsta hóp hefur mér alltaf liðið
eins og ég sé hluti af hátíðinni,“
segir Leigh. „Framan af hjálpaði ég
líka skipuleggjendum hátíðarinnar
með því að benda þeim á og koma
þeim í samband við listamenn í
Bandaríkjunum sem voru að vekja
athygli. Ég var hálfgerður ráðgjafi
hátíðarinnar og það var mjög
spennandi að finnast maður vera
hluti af þessu.“
Margt sem heillar á Airwaves
Leigh kemur aftur og aftur af
ýmsum ástæðum. „Þetta er uppá-
haldstónlistarhátíðin mín og ég
hef farið á margar. Það er ótrúlega
mikið af hæfileikaríkum listamönn-
um, ég elska landið og það er frá-
bært að hitta aftur alla vinina sem
maður sér alltaf á Airwaves,“ segir
Leigh. „Svo sér maður líka svo mikið
af fjölbreyttri og frábærri tónlist,
bæði íslenskri og annars staðar frá.
Það er líka frábært að geta sökkt sér
í tónlist frá mörgum lítt þekktum
og upprennandi listamönnum og
uppgötva fullt af nýrri tónlist. Það
endurvekur ástríðu mína fyrir tón-
list að mörgu leyti.
Borgin er líka svo lítil og það er
svo stutt á milli tónleikastaða að
maður getur séð 3-4 hljómsveitir
á klukkustund ef maður vill ganga
á milli tónleika,“ segir Leigh. „Ég
reyni að sjá eins mikið og ég get,
finna það sem mér líkar og kafa
dýpra seinna. Það skemmir heldur
ekki fyrir að geta horft á norður-
ljósin á leiðinni á milli tónleika-
staða.“
Leigh segir það ótrúlegt að sjá
hvernig allar mögulegar tegundir
af tónlist koma frá landi sem hefur
færri íbúa en margar borgir í
Bandaríkjunum. „Oft eru ákveðnar
stefnur ráðandi í heilu borgunum
í Bandaríkjunum,“ segir hann.
„En á Íslandi er ekkert eitt íslenskt
„sánd“.“
Spenntur fyrir mörgu í ár
Í ár hlakkar Leigh til að sjá nýjar
erlendar sveitir og hvernig þær
íslensku hafa þróast á milli ára. „Ég
er hrifinn af Fufanu og Sturlu Atlas
og hlakka til að heyra nýju lögin
þeirra,“ segir Leigh. „En það sem ég
er spenntastur fyrir er að sjá sveitir
sem ég hef aldrei heyrt um og upp-
götva glænýja íslenska tónlistar-
menn fyrir slysni. Á Airwaves finn
ég oft alveg fyrir tilviljun eitthvað
sem heillar mig upp úr skónum og
ég elska það.
Á hátíðinni í ár ætlar Leigh að
taka viðtal við Bob Lefsetz, sér-
fræðing í tónlistariðnaðinum og
gagnrýnanda, sem er höfundur
„The Lefsetz Letter“, sem er mjög
vinsælt og áhrifamikið blogg um
tónlist.
„Ég veit ekki alveg hvað við
munum ræða. Viðtöl við hann
eiga það til að öðlast sjálfstætt líf.
En hann var talsmaður streymi-
þjónustu mjög snemma og mig
langar að vita hverju hann spáir
varðandi framtíð streymiþjónustu
og hvort hann haldi að eitthvað
komi í staðinn fyrir þá tækni,“ segir
Leigh. „Mig langar líka mikið að vita
hvernig hann byggði upp fyrirtækið
sitt með tímanum og hvernig það
er að hitta goðin sín og þau þekkja
þig. Það er margt sem mig langar að
ræða við hann og það á örugglega
ýmislegt óvænt eftir að koma upp.
Þetta verður áhugavert spjall og ég
er mjög spenntur.
Ég hlakka líka til að sjá í hvaða
átt nýja skipulagsteymið tekur
hátíðina í ár,“ segir Leigh. „Allir
skipuleggjendurnir hafa sett sitt
mark á Airwaves og ég er mjög for-
vitinn að sjá hvað Sena gerir.“
Airwaves
endurvekur
ástríðuna
Leigh Lust hefur einstaka og djúpa
reynslu af tónlistarbransanum og
hefur verið viðriðinn Airwaves-hátíð-
ina allt frá byrjun. Það er margt sem
heillar hann við hátíðina og hann er
spenntur fyrir átjándu heimsókninni. Leigh Lust hefur verið viðriðinn Iceland Airwaves í langan tíma, eða frá því áður en fyrsta hátíðin fór fram í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli árið 1999. GusGus var ein af sveitunum sem léku á allra fyrstu hátíðinni. MYND/HARI
Leigh Lust er gríðarlega spenntur
fyrir átjándu heimsókn sinni á
Airwaves. Hann vonast til að kynnast
miklu af nýrri og skemmtilegri tón-
list og nýtur þess alltaf að koma til
Íslands. MYND/ICELANDAIRWAVES
Leigh er spenntur að sjá hvernig Fufanu hefur þróast. NORDICPHOTOS/GETTY
Anna Ásthildur
kynningarstjóri
l Snail Mail – frábær rokkgella,
frábær lög.
l Soccer Mommy – plata hennar
Clean er frábær.
l Blood Orange – ég hef lengi
verið aðdáandi og get ekki beðið
eftir því að sjá hann á sviði.
Will Larnach-Jones
rekstrar- og markaðsstjóri
l Aurora – ég hlakka mikið til að
sjá hana aftur á Íslandi
l Hugar – þessir strákar eiga eftir
að verða stórt nafn!
l Natalie Prass – ég elska þessa
afslöppuðu og svölu popptónlist.
10 ICELAND AIRWAVES 3 . N óV E M b E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-8
9
A
0
2
1
4
6
-8
8
6
4
2
1
4
6
-8
7
2
8
2
1
4
6
-8
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K