Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 84
Ástkær pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
Guðmundur H. Norðdahl
tónlistarmaður,
Hrafnistu, áður til heimilis að
Jökulgrunni 2 í Reykjavík,
lést miðvikudaginn 31. október.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn
9. nóvember, klukkan 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á góðgerðarfélög sem tengjast börnum
og dýravelferð.
Brynhildur Þ. Engen Bernhard Engen
Garðar G. Norðdahl Ingibjörg Jóna Gestsdóttir
Vilborg Norðdahl Þórhallur Ágúst Ívarsson
María Norðdahl Þórir Örn Garðarsson
Guðmundur Þór Norðdahl
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristbjargar Ólafsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Vífilsstaða fyrir kærleiksríka umönnun.
Hjördís Jóna Sigvaldadóttir Hjalti Már Hjaltason
Grétar Jóhannes Sigvaldason Róslinda Jenný Sancir
Hjörtur Sigvaldason Sigrún Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Þorsteins Kristjánssonar
frá Gásum,
Suðurbyggð 12 á Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Reynihlíðar
dvalarheimilinu Hlíð fyrir kærleiksríka umönnun.
Minning Þorsteins lifir í hjörtum okkar.
Þórey Ólafsdóttir
Stefanía Þorsteinsdóttir Gísli Pálsson
Kristín J. Þorsteinsdóttir Kristinn Sigurharðarson
Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir Rögnvaldur Ólafsson
Ásdís Alda Þorsteinsdóttir Árni Þór Bjarnason
Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir Sigurþór Guðmundsson
afa- og langafabörn.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Karl Haraldsson
læknir,
Gautlandi 15, Reykjavík,
lést á heimili sínu þann 19. október
síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju, þriðjudaginn 6. nóvember, klukkan 13.
Guðrún Bryndís Karlsdóttir Ísak Sverrir Hauksson
Kolbrún Karlsdóttir
Gunnlaugur Karlsson Kerstin Gaudlitz
Haraldur Karlsson Birna Pétursóttir
Teitur Áki, Freyja Sóllilja, Hildur Iðunn, Benjamín Julian,
Brynja Sóley, Guðný Diljá, Sunneva Björk, Philip Etienne,
Simon Freyr og Ernir Snær
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag
útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um
það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing
þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið
og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Elín Sigrún Jónsdóttir,
lögfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Kórar munu syngja, ljóð verða lesin og erindi haldin á samkomunni Vaki þjóð sem haldin verður í Salnum í Kópavogi í dag, þegar þess er minnst að um hundrað
ár eru frá fæðingu Þorsteins Valdimars-
sonar skálds. Dagskráin hefst klukkan
15 með inngangi frænda hans, Þorsteins
Gunnarssonar, sérfræðings hjá Rannís, og
hann mun einnig eiga lokaorðin.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Hamrahlíðarkórinn og Skólakór Kárs-
ness, um ljóðalestur sjá Sigurþór Heimis-
son leikari og nemendur í Lindaskóla,
Kópavogi og erindi flytja Anna Þorbjörg
Ingólfsdóttir, lektor við Háskóla Íslands,
og Bragi Guðmundsson, prófessor við
Háskólann á Akureyri.
„Ég átti heima austur í Teigi í Vopnafirði
þegar ég var að alast upp en ég heimsótti
Þorstein á Nýbýlaveginum sem ungur
maður,“ segir Þorsteinn Gunnarsson
þegar hann er beðinn að rifja upp kynnin
af föðurbróður sínum og nafna, Þorsteini
Valdimarssyni.
„Það var gaman að koma í risherbergið
hans, hann var með flygil þar og fleira
eftirtektarvert. Hann kom líka oft austur,
enda ólst hann upp í Teigi og var alltaf
áhugasamur um okkur börnin þar. Yfir-
leitt kom hann með te og hunang með sér
og gaf okkur að smakka. Hann var mikill
aðdáandi náttúrunnar og heilnæmra
afurða hennar. Ef hann sá einhvers staðar
athyglisvert blóm þurfti hann að skoða
það og sýna okkur krökkunum. Hann
hafði mikinn áhuga á skógrækt og allt það
fagra og smáa í náttúrunni heillaði hann,
eins og ljóð hans bera með sér.“
gun@frettabladid.is
Allt það fagra og smáa í
náttúrunni heillaði hann
Dagskrá í tali og tónum um ævi og störf Þorsteins Valdimarssonar, skálds og þýðanda,
verður flutt í Salnum í Kópavogi dag. Það er aldarminning, Þorsteinn hefði orðið hundr-
að ára 31. október í ár hefði hann lifað. Frítt er inn á samkomuna.
„Það var gaman að koma í risherbergið hans frænda á Nýbýlaveginum, hann var með
flygil þar og fleira eftirtektarvert,“ segir Þorsteinn. Fréttablaðið/aNtoN briNk
Lítið eitt um ævi og störf Þorsteins Valdimarssonar skálds
Þorsteinn Valdimarsson fæddist í Bruna-
hvammi, einu af heiðarbýlum Vopna-
fjarðar en óx úr grasi í Teigi í sömu sveit.
Foreldrar hans voru Guðfinna Þorsteins-
dóttir, sem orti undir skáldanafninu Erla,
og Valdimar Jóhannesson, bóndi.
Þorsteinn varð stúdent frá MR og
guðfræðingur frá HÍ. Stundaði tónlistar-
nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og
einn vetur í Vínarborg. Dvaldi í Leipzig í
Þýskalandi í tvö ár en bjó lengstan aldur
við Nýbýlaveg í Kópavogi. Hann kenndi
við Stýrimannaskólann í Reykjavík í nær
tvo áratugi.
Eftir Þorstein liggja átta ljóða-
bækur, Villta vor, Hrafnamál, Heimhvörf,
Heiðnuvötn, Limrur, Fiðrildadans, Yrkjur
og Smalavísur.
Hann var líka tónskáld og hafa verið
gefin út 32 sönglög eftir hann. Að auki
vann hann mikið að þýðingum, meðal
annars á söngljóðum. Hann þýddi óper-
ur og söngleiki svo sem Carmen, Zorba,
Orfeus og Evridís, Amal og næturgestirnir
og einnig tvö af stórum söngverkum
Bachs, Jólaoratoríuna og Mattheusar-
passíuna.
Bókasafn Kópavogs er með opna
sýningu um ævi Þorsteins og störf. Hún
stendur til 19. nóvember.
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r40 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-3
5
B
0
2
1
4
6
-3
4
7
4
2
1
4
6
-3
3
3
8
2
1
4
6
-3
1
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K