Fréttablaðið - 03.11.2018, Qupperneq 88
Höfundur: Júlía Hilmarsdóttir, 9
ára, Háaleitisskóla við Álftamýri.
Skáldsagan
„Jæja Lísaloppa,“
sagði Kata. „Þú ert
stærðfræðisnillingurinn
í hópnum, hvað heldur
þú að það séu margir
teningar í þessari
kubbahrúgu.“ „Á ég
þá bara að telja þá?“
spurði Lísaloppa. „Það
lærir enginn neitt með
því að láta alltaf þann
besta bara gera hlutina,“
bætti hún við. „Ja, ekki
held ég að ég geti talið
þessa teninga,“ sagði
Róbert vondaufur. “Þið
megið ekki ákveða
það fyrirfram,“ sagði
Lísaloppa. „Svona nú,
allir að reyna. Hvað eru
margir teningar í þessarri
teningahrúgu?“ Þau hin
stundu öll, en byrjuðu
að telja.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
325
Getur þú
talið teninga
na
í teninga-
hrúgunni?
?
?
?
Athugaðu að þeir
teningar sem eru undir
og á bakvið þá fremstu
sjást ekki en þarf þó að
telja með.
Mandý var heima uppi í rúmi. Mamma kom og vakti hana og sagði: „Núna
þarftu að fara í nýja skólann þinn.“
Mandý svaraði með þessu beis-
ikk: „Æ, ég nenni ekki í skólann,
mamma!“
„Þú verður, elskan, þetta er fyrsti
dagurinn þinn í Hallarskóla. Komdu
og fáðu morgunmat,“ sagði mamma
og leiddi hana inn í eldhús.
Mamma hellti morgunkorni og
mjólk í skál og Mandý byrjaði að
borða. Þegar hún var búin að borða,
klæða sig og allt það gekk hún af stað
í glænýja skólann sinn.
„Jæja, krakkar,“ sagði Kristín kenn-
ari glaðlega. „Við byrjum á lestrar-
stund.“ Mandý rétti upp hönd.
„Já, Mandý?“ sagði Kristín. „Hvað
er lestrarstund?“ spurði Mandý.
„Lestrarstund þýðir að við lesum
um stund,“ svaraði Kristín. „Meikar
sens,“ sagði Mandý og byrjaði að
lesa. Hún sá að hinir krakkarnir
hvísluðust á og færðu sig fjær henni.
Framhald í næsta helgarblaði
Skóladagur í Einelti
Elvar Örn Jónsson er 21 árs gamall
og er þekktur fyrir snilldartakta í
handbolta bæði með liði sínu Sel-
fossi og nú nýlega landsliðinu.
Hvernig þótti þér skemmtilegast
að leika þér þegar þú varst krakki?
Mer fannst langskemmtilegast að
vera úti að leika mér í fótbolta og
körfubolta með strákunum. Við
eyddum oftast heilu dögunum úti á
gervigrasvelli.
Hvað varstu gamall þegar þú byrj-
aðir í handbolta? Ég byrjaði tíu ára
hjá Einari Guðmunds á Selfossi. Ég
bjó hins vegar úti í Noregi þegar ég
var fimm til tíu ára og var þar aðeins
að sprikla í handbolta því pabbi var
að þjálfa þar.
Hefur þú alltaf æft á Selfossi? Já,
hér hefur verið frábært starf hjá
handboltadeildinni í gegnum árin.
Er handboltafólk í fjölskyldunni?
Það er mikið af íþróttafólki í fjöl-
skyldunni minni, bæði í frjálsum og
handbolta. Mamma varð 10 sinnum
í röð Íslandsmeistari í borðtennis og
pabbi var í landsliðinu í frjálsum til
dæmis. Svo erum við margir frænd-
ur að spila saman í Selfossi.
Hver er þín helsta fyrirmynd í
handboltanum? Fyrirmyndin mín
hefur alltaf verið Guðjón Valur,
alveg síðan ég var lítill peyi.
Mér fannst hann alltaf svo
geggjaður og finnst það
enn. Svo hef ég líka litið
upp til Jordan út af því
hvernig hans nálgast leikinn
og hvernig hann hugsar.
Er einhver saga bak við
treyjunúmerið þitt? Aðal-
ástæðan var sú að Guðjón
Valur var nr. 9 og ég vildi
vera eins og hann.
Hvernig líður þér í
landsliðinu? Mér líður
mjög vel, strákarnir
hafa tekið mjög vel á
móti mér og það er
ógeðslega gaman að
spila með þeim.
Eiga handboltamenn að borða
eitthvað sérstakt? Bara borða
hollt og nóg af próteini, kolvetnum
og fitu. Það sem ég hugsaði þegar ég
var yngri var að ég þyrfti að borða
nógu mikið, gúffa í mig mat.
Hvaða mat finnst þér best að fá
á þinn disk? Allan matinn sem
mamma eldar, kjötbollurnar sem
amma gerir og lambalærið sem
tengdapabbi grillar.
Mega íþróttamenn borða nammi?
Já, það má fá sér af og til, það er
mjög erfitt að borða alltaf bara
hollan mat, en bara passa sig. Allt
er gott í hófi.
Hvort ert þú kvöld- eða morgun-
svæfur? Ég myndi segja að ég væri
morgunsvæfur. Mér finnst gott að
sofa soldið út ef ég get
Tekurðu lýsi? Ég gerði það þegar ég
var yngri en hef verið latur við það
núna. Ég þarf að fara að rífa mig í
gang aftur því íslenska lýsið er svo
gott fyrir líkamann.
Hefur þú þjálfað krakka? Já, hef
gert það og finnst það gaman.
Gaman að hjálpa þeim að verða
betri og sjá svo árangurinn.
Hvar sérðu sjálfan
þig eftir fimm ár?
Á fullu í atvinnu-
m e n n s k u o g
að spila með
íslenska lands-
liðinu.
Fyrirmyndin mín
hefur alltaf verið
Guðjón Valur
Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson er ný
stjarna í karlalandsliði Íslands í handbolta.
Elvar hefur stimplað
sig rækilega inn
í síðustu leikjum
landsliðsins.
Fréttablaðið/Eyþór
Lausn á gátunni
Tuttugu og einn?
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r44 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
krakkar
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-5
D
3
0
2
1
4
6
-5
B
F
4
2
1
4
6
-5
A
B
8
2
1
4
6
-5
9
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K