Fréttablaðið - 03.11.2018, Page 94

Fréttablaðið - 03.11.2018, Page 94
Bækur Þetta breytir öllu: kapítalisminn gegn loftslaginu HHHHH Höfundur: Naomi Klein Þýðing: Jóhannes Ólafsson Útgefandi: Salka Þetta breytir öllu: Kapítalisminn gegn loftslaginu, snilldarverk Naomi Klein frá árinu 2014 um loftslagsbreytingar og þær stór- felldu pólitísku, efnahagslegu og félagslegu áskoranir sem fylgja þeim, er loks komin út í íslenskri þýðingu. Í bókinni vefur Klein saman frá- sagnir og upplifun einstaklinga vítt og breitt um það hvernig gegndar- laus neysluhyggja, skyndigróði og vafasamir viðskiptahættir stór- fyrirtækja og þjóðríkja hafa stefnt loftslagi Jarðarinnar í voða. Þetta breytir öllu er með eindæmum yfir- gripsmikið verk, bæði hvað varðar hin margflóknu loftslagsvísindi og það hvernig breytingar á loftslagi plánetunnar – sem við nú þegar finnum fyrir – hafa verið knúnar áfram af óseðjandi hungri nýfrjáls- hyggjunnar. Þannig kveður sannar- lega við kunnuglegan tón hjá Klein í Þetta breytir öllu. Allir þeir sem skrifa um loftslags- málin vita hversu vandasamt það getur reynst að vekja áhuga fólks á málaflokknum. Í raun er ástæðan einföld. Fregnir af loftslagsbreyt- ingum eru iðulega á þann veg að öll von sé úti; að heimsendir sé í nánd. Klein minnist þess hvernig hún sjálf féll í flokk „afneitunarsinna“ með því að leiða hjá sér vandamál loftslagsbreytinga með andvaraleysi eða þeirri afvegaleiddu sannfæringu að tækninýjungar muni leysa öll vandamál okkar. Þetta gerir ferðalag Klein inn í heim loftslagsmálanna aðgengilegt flestum. Einkar lagleg íslenskun Jóhann- esar Ólafssonar á oft flóknum texta og framandi hug- tökum gerir Þetta breytir öllu að frá- bærum upphafs- punkti fyrir þá sem vilja sökkva sér í umhverfis- vísindin. Klein minnir lesandann ítrekað á að enn er hægt að bregðast við og milda áhrif lofts- l a g s b r e y t i n g a . Ljóst er að sú hraða breyting sem þarf að eiga sér stað í samfélagi mannanna verður ekki framkölluð á forsendum þeirrar hugmyndafræði sem verið hefur við lýði á Vesturlöndum undanfarna áratugi. Það sem þarf til, að mati Klein, er að fólk hópi sig saman og berjist í sameiningu f y r i r ra u nve r u - legum aðgerðum. Umfram allt verður að koma böndum á stórfellda losun stórfyrirtækja á g r ó ð u r h ú s a l o f t- tegundum, þá sér- st a k l e g a þ e i r ra 100 fyrirtækja sem bera ábyrgð á 70 prósentum af allri heimslosun síðan 1988. Þrátt fyrir gagn- rýni sína er Þetta breytir öllu ekki lofgerð til hug- myndafræði sósí- alisma. Gildi kapítalisma eru ekki á förum, og Klein er meðvituð um það. Þannig er undirtitill bókarinn- ar, Kapítalisminn gegn loftslaginu, að vissu leyti óheppilegur. Nálgun Klein er frekar sú að varpa ljósi á það hvernig gildi kapítalismans hafa verið afskræmd og keyrð út í öfgar. Fylgifiskur þeirrar þróunar er endurtekinn veldisvöxtur í losun gróðurhúsalofttegunda. Mannkyn var löngu byrjað að umturna nátt- úrulegum ferlum Jarðarinnar áður en kapítalisminn eins og við þekkj- um hann kom fram á sjónarsviðið. Það sem Klein hvetur lesandann til að gera er að horfast í augu við staðreyndir og að krefjast þess að gripið verði til beinna aðgerða hið snarasta. Því baráttan við loftslags- breytingar snýst ekki um að bjarga Jörðinni. Hún mun spjara sig. Baráttan snýst um að tryggja þann rétt komandi kynslóða að þær fái í vöggugjöf loforð um sömu tækifæri og við fengum. Kjartan Hreinn Njálsson Niðurstaða: Tímamótaverk. Inn- blásin frásögn af því hvernig græðgi og skammsýni mannsins hefur stefnt samfélagi Jarðarbúa í hættu. Ekkert er óumflýjanlegt Sýningin fjallar í raun um það hvernig bók verður til – bók um fjöllista-manninn Örn Inga sem var ósmeykur við að vera öðruvísi en aðrir,“ segir Halldóra Arnardóttir listfræðingur um viðburðinn Lífið er LEIK-fimi// Life’s PLAY-fullness sem hefst í Listasafninu á Akureyri klukkan þrjú í dag. Þar er um gjörning að ræða sem felst í rannsóknum á því mikla og fjölbreytta framlagi til listarinnar sem Örn Ingi Gísla- son lét eftir sig, bæði í föstu formi og frásögnum fólks. Úr þeim efni- viði ætlar Halldóra að vinna bók á næstu vikum. Hún er bæði í hlut- verki dóttur og sýningarstjóra og eiginmaður hennar, Javier Sánchez Merina arkitekt, er hönnuður sýn- ingarinnar. „Þessi sýning hefur verið í bígerð síðan 2016. Erni Inga var boðið að halda hana og dagsetningarnar standa. Hann ætlaði náttúrlega vera meðal okkar sem þátttakandi en dó fyrir rúmu ári þannig að við hjónin tökum við keflinu,“ segir Halldóra sem hefur búið á Spáni síðustu þrjá áratugi. „Pabbi vildi hafa Javier með í ráðum, var sjálfur ekki búinn að skipuleggja neitt eða gera lista yfir verk sín og það er Javier sem á hugmyndina að því að setja ekki upp venjulega sýningu heldur rannsóknarverkefni og búa til úr því bók, meðan á sýningu stendur, því Örn Ingi var þekktur fyrir gjörninga og ýmsar uppákom- ur. Þetta verður því þriggja mánaða gjörningur sem byrjar núna um helgina og endar 27.  janúar með kynningu á bókinni,“ lýsir Hall- dóra sem kveðst verða á staðnum allan tímann, lokuð inni við sitt skrifborð! Það sem gestir sjá í dag, 3. nóv- ember, er haugur af fjársjóðs- kössum sem smátt og smátt verður tínt upp úr, að sögn Halldóru. Hún ætlar að hefjast handa strax, ásamt fyrrverandi nemendum Arnar Inga, við að skrásetja myndir, sortéra og hengja upp. Net er á veggjum og fullt af krókum svo auðvelt er að breyta. „Safnið breytist í rann- sóknarstofu, við verðum íklædd hvítum sloppum og með hanska. Einnig koma margir samferða- menn föður míns með innlegg,“ segir hún. „Þannig verður það af og til og engir tveir dagar verða eins.“ Halldóra segir einn gjörning föður síns verða endurvakinn nú á opnuninni. „Hann er innblásinn af gjörningi frá 1979-80, með fólki frá Reykjavík og Sviss og fyrrverandi nemendum. Svo verður gjörn- ingahátíð eftir viku, þá frumflytur Þórarinn Stefánsson píanóleikari tónverk sem Kolbeinn Bjarna- son samdi í tilefni sýningarinnar. Seinna verður námskeið í forvörslu, málþing um skólamál og myndlist og líka innlegg frá Hólmavík.“ Dagskráin verður síbreytileg enda um mikið púður að ræða, að sögn Halldóru. „Pabbi var oft í útvarpinu og hér verður sérstakur sími við hlið hægindastóls, þar getur fólk hlustað á pabba meðan það horfir á mig vinna,“ tekur hún sem dæmi og hlær. „Svo verður sjónvarpsefni og kvikmyndir á skjáum, bæði klippt og óklippt efni. Þetta er stór sýning, hún teygir sig um fimm sali safnsins.“ Sýningin er opin alla daga næstu þrjá mánuði milli klukkan 12 og 17 og Halldóra hvetur fólk til að líta við sem oftast. Safnið breytist í rannsóknarstofu Yfirlitssýning á verkum eftir Örn Inga Gíslason fjöllistamann (1945-2017) verður opnuð í dag í Listasafn- inu á Akureyri. Hún nefnist Lífið er LEIK-fimi//Life’s PLAY-fullness og verður gjörningur í anda hans. Hinn tilkomumikli tannlæknastóll Arnar Inga er á staðnum. Örn Ingi ætlaði að halda sýningu á þessum tíma en var kallaður annað. Fjársjóðskassar verða það fyrsta sem mætir augum fólks í dag í Listasafninu. Hjónin Javier Sánchez Merina og Halldóra Arnardóttir tóku við keflinu af Erni Inga. FréttAbLAðIð/ANtoN brINK Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 3 . N ó v e m B e r 2 0 1 8 L a u G a r D a G u r50 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð menning 0 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :0 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 4 6 -3 0 C 0 2 1 4 6 -2 F 8 4 2 1 4 6 -2 E 4 8 2 1 4 6 -2 D 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.