Ægir - 01.10.2018, Side 76
76
Fyrirtækið Faxaflóahafnir sf. var stofnað 1.
janúar 2005 en það á og rekur fjórar hafnir:
Akraneshöfn, Borgarneshöfn, Grundartanga-
höfn og Reykjavíkurhöfn. Faxaflóahafnir byggja
starfsemi sína á 100 ára hafnarsögu, sem er í
senn merkilegur og stór hluti af sögu þeirra
sveitarfélaga sem standa að fyrirtækinu. Án
hafnar hefði búseta eflaust þróast með öðrum
hætti í Reykjavík og á Akranesi, en saga byggð-
arinnar og atvinnulífs er samþætt hafnarstarf-
seminni.
Faxaflóahafnir eru sameign fimm sveitar-
félaga, Akranesskaupstaðar, Borgarbyggðar,
Hvalfjarðarsveitar, Reykjavíkurborgar og
Skorradalshrepps. Það sem gerir fyrirtækið ein-
stakt er að það er lykilaðili í þróun, uppbyggingu
og rekstri mikilvægra innviða í flutninga- og
efnahagskerfi landsins.
Aukin eftirspurn eftir aðstöðu
Nokkur vitundarvakning hefur orðið á undan-
förnum árum meðal almennings og fyrirtækja
um mikilvægi hafna og starfsemi þeim tengdum.
Þetta má m.a. sjá í aukinni aðsókn eftir aðstöðu
á svæðum Faxaflóahafna. Fyrir utan útgerðir,
flutningafyrirtæki og hafsækinn iðnað, stóran
og smáan, hefur á undanförnum árum orðið
mikill vöxtur í hafnsækinni ferðaþjónustu. Þess-
um vexti fylgir aukið mannlíf og menning. Því er
höfnin í rauninni orðin allt í senn sjávarútvegs-
höfn, ferðaþjónustuhöfn, afþreyingarhöfn og
menningarhöfn. Fjölbreytt aðstaða gefur fyrir-
tækinu sóknarfæri á mörgum sviðum mannlífs-
ins og getur á þeim grunni látið gott af sér leiða
í þágu eigenda sinna, almennings og atvinnulífs.
Vettvangur lífsbjargar þjóðarinnar
Hafnir og skip hafa ávallt aðdráttarafl enda
vettvangur lífsbjargar þjóðarinnar. Það er mikil-
vægt verkefni Faxaflóahafna sf. til lengri tíma
að þróa hafnarsvæðin þannig að þau styðji við
hafnsækna starfsemi hvort heldur er í flutning-
um, útgerð, fiskvinnslu, ferðaþjónustu eða ann-
arri starfsemi. Verkefnið er einnig að skapa vett-
vang þar sem almenningur geti notið útivistar
og nálægðar við hafnarstarfssemina. Starfið er
margt en spennandi verkefni framundan!
faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir
Meira en 100 ára
saga að baki
Reykjavíkurhöfn. Án hafnar hefði búseta eflaust þróast með öðrum hætti
í Reykjavík.
Grundartangahöfn er meðal stærstu hafna landsins en hafnargerðin
hófst árið 1977.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands