Ægir - 01.10.2018, Page 78
„Áherslur okkar hvað fjármögnun í sjáv-
arútvegi varðar eru fyrst og fremst á
flutningatæki, bíla og lyftara en jafn-
framt höfum við tekið þátt í fjármögnun
annars búnaðar, s.s. á flæðilínum og
ýmsum búnaði í fiskiðjuverum. Við hjá
Lykli erum alltaf til þjónustu reiðubúin
að tryggja hagstæða fjármögnun slíkra
tækja og aðstoða þannig viðskiptavinina
að ná hámarkshagræðingu í sínum
rekstri. Þess má líka geta að Lykill lánar
bæði í evrum og krónum,“ segir Sverrir
Viðar Hauksson, sviðsstjóri viðskipta-
sviðs Lykils sem er eina sjálfstæða
eignaleigufyrirtækið hér á landi með yf-
ir 30 ára sögu.
Fjölmargir fjármögnunarkostir
Lykill býður fyrirtækjum fjölbreyttar
leiðir til fjármögnunar sem eru sniðnar
að mismunandi þörfum hvers og eins
viðskiptavinar. Lykill býður t.d. hefð-
bundna kaupleigu og fjármögnunarleigu
auk rekstrarleigu á smærri og stærri
tækjum ásamt Flotaleigu fyrir bíla fyrir-
tækja.
Fjármögnunarleiðir Lykils fyrir fyrir-
tæki og rekstraraðila eru sex talsins.
Fjármögnunarleiga hentar til fjármögn-
unar á vélum og tækjum til atvinnu-
rekstrar, en þó best þeim sem vilja nýta
sér hraðari gjaldfærslu á leigugreiðslum.
Kaupleiga hentar ekki síður til fjármögn-
unar á vélum og tækjum til atvinnu-
rekstrar þar sem vélar og tæki eru eign-
færð í bókhaldinu og samningurinn
færður sem skuld á móti. Rekstrarleiga á
bílum eða atvinnutækjum byggir á því
að Lykill kaupir ákveðinn leigumun í
samráði við leigutaka sem leigir leigu-
muninn í fyrirfram ákveðinn tíma og
hefur fullan umráðarétt yfir honum á
leigutímanum. Leigugreiðslur eru gjald-
færðar og haldast óbreyttar út leigutím-
ann. Flotaleiga eykur öryggi við rekstur
bílaflota og stuðlar að lækkun kostnaðar
sem vinnst með stærðarhagkvæmni Lyk-
ils. Loks eru svo Lykillán og Lykilsamn-
ingar en það eru valkostir þegar kemur
að fjármögnun ökutækja. Þar er t.d.
hægt að fá allt að 90% fjármögnun af
kaupverði til allt að 7 ára fyrir nýja bíla.
Sveigjanleiki er lykilorðið
Sverrir Viðar leggur áherslu á að Lykill
er fjármálafyrirtæki undir eftirliti Fjár-
málaeftirlitsins en lítur ekki síður á sig
sem þjónustufyrirtæki sem veitir snarpa
og úrræðagóða þjónustu til sinna við-
skiptavina.
„Við viljum tryggja okkar viðskipta-
vinum hagstæð kjör til fjármögnunar á
bílum og tækjum og veitum ráðgjöf um
bæði fjármögnunartíma og samnings-
form. Hins vegar lítum við svo á að okk-
ar hlutverki sé ekki lokið þótt búið sé að
ganga frá samningi í upphafi heldur
vinnum við áfram með okkar viðskipta-
vinum að ná besta mögulega árangri í
rekstrinum. Það er ávallt markmiðið með
okkar þjónustu.“
Sverrir Viðar bendir á að í atvinnu-
rekstri á Íslandi séu gjarnan árstíðar-
bundnar sveiflur sem geti þýtt að tæki
standi ónotuð svo vikum skiptir og skapi
litlar sem engar tekjur á meðan. „Þessu
mætir Lykill með því að bjóða upp á
sveigjanlegar afborganir þannig að
greiðslur eru hærri þegar nóg er að gera
en lægri þegar tekjur lántaka dragast
tímabundið saman. Þetta kunna okkar
viðskiptavinir vel að meta,“ segir Sverr-
ir Viðar enn fremur.
lykill.is
Lykill með fjölbreytta
fjármögnun
78
Sverrir Viðar Hauksson, sviðsstjóri
viðskiptasviðs Lykils. „Við kappkostum að
mæta sveiflum í tekjustreymi fyrirtækja með
því að bjóða upp á sveigjanlegar afborganir.“
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands