Ægir - 01.10.2018, Side 98
98
„Eins og í öllum öðrum rekstri skiptir
miklu fyrir stjórnendur í sjávarútvegi
að hafa góða yfirsýn,“ segir Jón Heiðar
Pálsson, sviðsstjóri sölu- og markaðs-
sviðs Wise. „WiseFish annast utanum-
hald veiða- og veiðiaðferða, hversu
miklu er landað og hvaða tegundum.
Einnig nýtist forritið til að vakta kvóta-
stöðu og halda utan um framleiðsluferla.
WiseFish tengist öðrum kerfum á gólf-
inu eins og Innova hugbúnaði frá Marel
og má láta kerfið tala við jaðartæki svo
sem vogir og handtölvur,“ segir hann.
Verðmætar markaðsupplýsingar
Jón Heiðar bætir við að kerfið bjóði upp
á mikla möguleika á að rekja feril afurða
frá veiðum í gegnum vinnslu- og sölu-
ferli og alla leið til neytandans. „Vefur,
spjaldtölvur, símar og Power BI grein-
ingartól eru nú hluti af stöðluðu kerfi
WiseFish. Við höfum endurskrifað kerfin
frá grunni, nýtum okkur nýjar útgáfur
af Dynamics NAV frá Microsoft og getum
boðið nýja virkni sem byggir jafnframt á
grunnkerfi Microsoft,“ segir Jón Heiðar.
Wise vinnur náið með Samtökum fyr-
irtækja í sjávarútvegi og hefur undan-
farið unnið með þeim að verkefninu „Vit-
inn“ sem snýr að því að útbúa kerfi sem
safnar gögnum um útflutning sjávaraf-
urða á miðlægan stað. Út frá þessum
gögnum er mögulegt að vinna verðmæt-
ar tölfræðilegar markaðsupplýsingar
sem gerir fyrirtækjum kleift að greina
tækifæri á mörkuðum og fá meira fyrir
afurðir sínar. Þessu til viðbótar eru
teknar saman, í gagngrunni, upplýsing-
ar um tolla- og markaðasaðgang ís-
lenskra sjávarafurða á erlenda markaði.
Hróður WiseFish berst víða
WiseFish hugbúnaðurinn hefur verið í
þróun í 30 ár og þróunin hefur fyrst og
fremst verið byggð á innlendum mark-
aði. Seinni ár hefur hróður hugbúnaðar-
ins borist víða og er viðskiptavini Wise-
Fish nú að finna í Ástralíu, Suður-Amer-
íku, Noregi, Þýskalandi og víðar.
Andrés Helgi Hallgrímsson, sölustjóri
WiseFish og ráðgjafi hefur nú um nokk-
urt skeið verið að þróa og vinna með
Euro Baltic sem hefur verið viðskipta-
vinur Wise undanfarin 15 ár. Fyrirtækið
er staðsett í Mukran í austurhluta
Þýskalands og er með stærri verkendum
á síld við Eystrasalt. Félagið er hluti af
Parlevliet & Van der Plas Group í Hol-
landi. Starfsmenn Euro Baltic eru mjög
ánægðir með Wise Fish og þá virkni sem
kerfið hefur uppá að bjóða. Um næstu
áramót verður lokið við að uppfæra
kerfið hjá þeim í nýjustu útgáfu af Wi-
seFish. „Þessi uppfærsla skilar þeim
nokkrum nýjungum í virkni og eins
verða allar tengingar við framleiðslu-
kerfi skilvirkari og einfaldari en var í
gömlu útgáfunni. Reynslan af notkun
Wise Fish hjá Euro Baltic hefur skilað
því að Parlevliet & Van der Plas Group
(P&P Group) hefur ákveðið að innleiða
Wise Fish hjá fleiri dótturfélögum. Wise-
Fish fer í loftið hjá fyrsta dótturfélaginu
um næstu áramót en þá verður kerfið
innleitt hjá CFTO (Compagnie Francaise
Du Thon Oceanique) í Frakklandi,“ segir
Andrés Helgi. Uppistaðan í afla CFTO er
túnfiskur.
„WiseFish kemur til með að leysa af
Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri sölu-
og markaðssviðs Wise. „Það er hag-
kvæmt og þægilegt að vera í áskrift að
Dynamics NAV þar sem rekstrarkostn-
aðurinn er þekktur, greitt er mánað-
arlegt gjald fyrir hugbúnað, uppfærslu
og hýsingu, sem er í fullkomnu og ör-
uggu tækniumhverfi.“
WiseFish
í mikilli útrás
Samstarf með Cargill
Um þessar mundir er starfsfólk Wise að vinna að mjög
spennandi þróunarverkefni fyrir alþjóðlega fyrirtækið Car-
gill í samstarfi við sænska hugbúnaðarfyrirtækið HiQ. „Í
verkefninu sér Wise um að hanna vöruhús gagna (data
warehouse), Tabular teninga og ýmsar þjónustur (API) í ský-
inu. Markmiðið er að taka saman upplýsingar frá fiskeldis-
stöðvum um allan heim til að geta borið saman vöxt, fóður-
nýtingu, áhrif sjúkdóma o.fl. á milli svæða og landa. Við-
skiptavinum Cargill er síðan veittur aðgangur að þessum
þjónustum eða greiningum í gegnum vefsíðu sem heitir
SeaCloud. Cargill sérhæfir sig aðallega í dýrafóðri til mann-
eldis (animal nutrition) ásamt því að koma að framleiðslu,
orkumálum og flutningum,“ segir Stefán Torfi Höskuldsson,
sviðstjóri rekstrar- og tæknisviðs. Cargill er stærsta fyrir-
tæki í heimi í einkaeigu með yfir 150.000 starfsmenn og veltu
yfir 14 þúsund milljarða. HiQ er sænskt hugbúnaðarhús sem
sér um snjallforrit (öppin) og vefgáttir (portals) fyrir Cargill.
Fyrirtækið er með stærri IT fyrirtækjum á Norðurlöndunum
með um 1600 manns í vinnu.