Ægir - 01.10.2018, Síða 126
126
„Það eru miklar áskoranir frá degi til
dags í sjávarútveginum og mikilvægt
fyrir þjónustufyrirtæki eins og okkar að
fylgja þróuninni. Frá því upp úr síðustu
aldamótum hefur útgerðarfyrirtækjum á
Íslandi fækkað um 60% og veiðiaðferðir
breyst gífurlega. Þetta kallar á stöðugar
breytingar hjá þjónustuaðilum eins og
okkur. Þess vegna höfum við m.a. verið
að fjárfesta í búnaði til að þjónusta fisk-
eldið betur og ég sé fram á mikinn vöxt
á því sviði sjávarútvegsins á næstu ár-
um,“ segir Pétur Björnsson, stjórnarfor-
maður Ísfells í samtali.
Ísfell er sem kunnugt er einn helsti
söluaðili og framleiðandi á veiðarfærum
á Íslandi auk þess sem nokkur útflutn-
ingur er til nágrannalandanna. Ísfell
ehf. er með átta starfsstöðvar á Íslandi
og eina á Grænlandi. Höfuðstöðvar fyrir-
tækisins eru í Hafnarfirði en að auki er
fyrirtækið með starfsemi á Akureyri,
Sauðárkróki, Húsavík, Ólafsfirði, Flat-
eyri, í Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum.
Hjá Ísfelli starfa um 60 manns og stöðugt
er unnið að því að bæta og þróa þjónust-
una. Vöruval Ísfells er breitt enda má
segja að Ísfell sé stærsta vöruhús sjáv-
arútvegsins á Íslandi.
Vaxandi atvinnugrein
Ísfell hefur lengi boðið upp á ýmsan
búnað fyrir fiskeldisstöðvar og er með á
lager íhluti og vottaðan búnað eins og
tóg, lása, kósa og höfuðhlekki ásamt
breiðu úrvali annarrar rekstrarvöru. Þá
sérpantar Ísfell sérhæfðan búnað að
þörfum hvers og eins fyrirtækis t.a.m.
eldispoka, sláturnætur, fuglanet, botn-
festibúnað, flot og fleira. Ísfell er með
fiskeldisþjónustustöð á Flateyri og hefur
þjónustan þar verið styrkt undanfarið
m.a. til að sinna víðtækari verkefnum. Á
næstu misserum mun Ísfell taka í notkun
öfluga þvottastöð í Hafnarfirði en stöðin
verður búin fullkomnasta búnaði sem
völ er á sem gefur möguleika á að sinna
öllum gerðum af pokum og um leið
tryggja bestu mögulegu meðhöndlun.
„Fiskeldi er klárlega vaxandi atvinnu-
grein og við viljum vera í stakk búnir að
bjóða upp á meiri þjónustu með auknum
afköstum samfara þeim vexti sem fyrir-
sjáanlegur er í eldinu. Að vísu eru blikur
á lofti og hefur sjókvíaeldið ekki farið
varhluta af neikvæðri orðræðu til að
gera atvinnugreinina tortryggilega, en
ég vona svo sannarlega að menn nái
skynsamlegri lendingu. Þessi atvinnu-
grein á að geta orðið samfélaginu til
heilla ef rétt er að málum staðið. Sjókvía-
eldi er vaxandi atvinnugrein hjá ýmsum
þjóðum og hún á að geta orðið það hér á
landi líka,“ segir Pétur ennfremur.
Á dögunum keypti Ísfell meirihluta
hlutafjár í rafeindafyrirtækinu Maris í
Reykjanesbæ sem áður hét Tæknivík. „Í
þessu fyrirtæki er harðsnúið lið tækni-
manna og áhersla lögð á tækniþjónustu
við seiðaeldisstöðvar með sérhæfðum
tæknibúnaði sem stjórnar t.d. fæðugjöf,
hitastigi, vatnsmagni o.s.frv. Við sjáum
þarna tækifæri til að sækja fram í fisk-
eldinu og erum að setja upp starfsstöð í
Þorlákshöfn til að þjóna betur landeldinu
sem þar er í miklum vexti.“
Starfsfólk með reynslu
„Styrkleiki Ísfells liggur í góðu dreifing-
arneti í gegnum starfstöðvarnar heima
og erlendis, miklu úrvali veiðarfæra og
góðum birgjum um víða veröld. Síðast en
ekki síst höfum við á að skipa úrvals
starfsliði sem leggur sig fram um að
þjónusta viðskiptvinina sem best. Þar
stendur í brúnni nýráðinn framkvæmda-
stjóri, Guðbjartur Þórarinsson, sem býr
að mikilli reynslu og þekkingu sem ég
veit að á eftir að reynast vel í þeim
verkefnum sem fram undan eru,“ segir
Pétur Björnsson, stjórnarformaður Ís-
fells að lokum.
isfell.is
Ísfell
Stóraukin þjón-
usta við fiskeldið
Pétur Björnsson stjórnarformaður Ísfells við mynd af bátnum Kristni ÞH 123 sem
hann réri á sem ungur maður. Hann segir fiskeldi framtíðaratvinnugrein ef rétt
er að málum staðið.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands