Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Qupperneq 28
Veitingar og rómantík 7. september 2018KYNNINGARBLAÐ
BAN KÚNN ER GÍFURLEGA VINSÆLL:
„Íslendingar eru sólgnir í
góðan taílenskan mat“
Hér hefur verið mikið að gera frá fyrsta degi og fólk hefur tekið okkur ennþá betur en ég gerði
mér vonir um. Fyrst var um að ræða
fólk úr hverfinu en svo fór þetta að
berast og núna kemur hingað fólks alls
staðar að. Við fáum meira að segja
pantanir frá erlendum ferðaskrifstof-
um,“ segir Svavar G. Jónsson hjá Ban
Kúnn sem staðsettur er að Tjarnarvöll-
um 15 í Hafnarfirði.
Staðurinn var opnaður í janúar árið
2014. Meðeigandi Svavars er taí-
lenskur eiginmaður hans, Natthawat
Voramool. „Hér er alltaf mikið um að
vera í hádeginu enda hverfið líflegt. Hér
er stórt iðnaðarsvæði en einnig skrif-
stofuhúsnæði og Þjóðminjasafnið er
flutt hingað við hliðina og það er hótel í
götunni,“ segir Svavar.
Sérstakt hádegis- og kvöldverðartil-
boð er afar vinsælt hjá gestum staðar-
ins. Sex réttir eru á borðinu og má
velja þrjá rétti á diskinn. Skipt er um
rétti daglega þannig að það er alltaf
eitthvað nýtt. Í hádeginu kostar þetta
1.750 kr. en á kvöldin 1.990 kr. sem
hlýtur að teljast afar hagstætt verð
fyrir svo góðan mat.
Ekta taílenskur matur – eins og stað-
urinn væri í Taílandi
„Við erum auk þess með 25 rétti á
matseðli. Fyrir utan það eru síðan ótal
margir sértaílenskir réttir sem við get-
um eldað. Fólk getur því komið hingað
og sagt okkur frá uppáhalds taílenska
réttinum sínum og við eldum hann,“
segir Svavar. Að hans sögn er Pad Thai
vinsælasti rétturinn á matseðlinum.
„Hann inniheldur hrísgrjónanúðlur,
grænmeti, kjöt eða rækjur, og síðan
er það leyndarmálið sem allir alvöru
taílenskir veitingastaðir verða að hafa
– en það er sósan,“ segir Svavar. Sósan
í réttinum þykir einstök, uppskriftin
kemur frá langömmu eiginmannsins,
Natthawat, en fjölskylda hans hefur
stundað veitingarekstur á Taílandi
mann fram af manni.
Að sögn Svavars er það útbreiddur
ósiður á taílenskum veitingastöðum á
Vesturlöndum að staðfæra réttina og
setja eitthvað í þá sem á ekki heima í
þeim. Á Ban Kúnn er hins vegar lögð
áhersla á að hafa réttina upprunalega,
nákvæmlega eins og ef staðurinn væri
í Taílandi.
Þess má einnig geta að Ban Kúnn
býður upp á margskonar grænmsetis-
rétti og Vegan-rétti, t.d. er hægt að fá
Pad Thai vegan.
Ban Kúnn er opinn virka daga frá kl.
11 til 21 og um helgar (og á frídögum)
frá kl. 17 til 21. Svavar segir að vinsældir
staðarins kalli eftir að opnað sé fyrr um
helgar en hann þurfi að gæta þess að
starfsfólkið fái næga hvíld.
„Margir hafa líka kallað eftir fleiri
Ban Kúnn-stöðum, í þetta hverfið eða
hitt, en ég segi alltaf nei. Við ætlum að
vera hér og bjóða áfram góðan mat og
persónulega þjónustu. Ban Kúnn þýðir
líka „heima hjá þér“ og hér viljum við að
fólk hafi það notalegt og því líði eins og
það sé heima hjá sér,“ segir Svavar.
Sjá nánar á Facebook-síðunni Ban
Kúnn.