Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Page 31
 Veitingar og rómantík 7. september 2018 KYNNINGARBLAÐ Landnámssetrið í Borgarnesi verð-ur sífellt vinsælla með hverju árinu og þar næra gestir bæði líkama og sál. Veitingastaðurinn í Landnáms- setrinu hefur slegið í gegn, ekki síst með sínu ferska og ljúffenga hádegishlað- borði sem er á mjög hagstæðu verði. Veitingastaðurinn er fjölskylduvænn og notalegur og er opinn alla daga frá kl. 10 til 21. Hollustuhlaðborðið er alla daga frá 11.30–15.00. Á hlaðborðinu eru fjölbreyttir grænmetisréttir, salöt, heit súpa og ilmandi nýbakað brauð. Borgnesingar eru nú orðnir fastagestir á staðnum í hádegismat og fjölmargir aðrir sækja þangað líka. Í setrinu eru tvær sögusýningar sem veita einstaka innsýn í fortíð þjóðarinn- ar á afar lifandi hátt með áhrifamiklum myndverkum. Á Egilssögusýningunni eru gestir leiddir í gegnum nokkurs konar völundarhús inn í ævintýraheim sögunnar. Landnámssýningin byggir á þeim einstöku heimildum um upphaf Íslands- byggðar sem er að finna í Íslendinga- bók og Landnámu. Bækurnar voru skrifaðar á 12. öld, sennilega báðar af Ara fróða. Það eru ekki margar þjóð- ir sem eiga svo nákvæmar skrifaðar heimildir um uppruna sinn aðeins um 200 árum eftir að atburðirnir áttu sér stað. Efni sýningarinnar byggir á þess- um heimildum en engin ábyrgð er tekin á sannleiksgildi þeirra. Með lýsingu og lifandi myndum er leitast við að skapa spennandi andrúmsloft, auk þess sem þar er að finna fágætt líkan af Íslands- fari eftir Gunnar Marel Eggertsson. Dagskráin á Söguloftinu er nú að fara í fullan gang með haustinu. Frá árinu 2006 hafa á milli 20 og 30 rit- höfundar troðið þar upp með einhvers konar sýningar. Í kringum mánaða- mótin september/október verður Vilborg Davíðsdóttir með fjórar auka- sýningar á hinni vinsælu dagskrá sinni um Auði djúpúðgu. Einar Kárason heldur jafnframt áfram með Grettissögu sína og Finnur Torfi Hjörleifsson verður með dagskrá byggða á eigin verkum þann 8. nóvem- ber. Snemma í desember verða KK og Ellan síðan með jólatónleika. Nánari upplýsingar um alla viðburði á Söguloftinu og miðasala á þá er á vefsíðunni landnam.is. Fallegar gjafavörur Í Landnámssetrinu er rekin verslun með fallegri og vandaðri gjafavöru. „Þessar vörur eru ekkert endilega fyrir útlendinga heldur henta þær prýðilega sem gjafir handa Íslendingum líka. Við leggjum áherslu á íslenska hönnun og erum líka með afurðir handverksfólks úr héraðinu,“ segir Sigríður Margrét. Góður vettvangur fyrir hópa Í Landnámssetrinu er hægt að bjóða upp á alls kyns afþreyingu fyrir fyr- irtæki og hópa og staðurinn hentar prýðilega fyrir ráðstefnur, árshátíðir og hópefli. Fundaraðstaða á fallegu pakkhúslofti er fyrir allt að 80 manns en fyrir allt að 30 manns ef þátttak- endur sitja við borð. Vinsælt er að fara í ratleiki úti við í nágrenni Landnámsset- ursins. Ratleikurinn er í snjallsímum og hægt að aðlaga þrautir og spurningar hópnum. Ítarlegar og fróðlegar upplýsingar um þjónustu og dagskrá Landnáms- setursins er að finna á vefsíðunni land- nam.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 437-1600 og fyrirspurnir má einnig senda á netfangið landnam@ landnam.is. LANDNÁMSSETRIÐ: Hollustuhlaðborð og sívinsælar sýningar á Söguloftinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.