Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Side 36
36 7. september 2018 Þ að er gríðarlega vinna að ferðast á framandi slóðir með ung börn en við njót­ um hverrar einustu stund­ ar í botn og förum á okkar hraða,“ segir Eva Dögg Jafetsdóttir. Hún og eiginkona hennar, Álfheiður Björk Sæberg Heimisdóttir, eru staddar á ferðalagi í Japan þessa dagana. Þær kalla sig Worldtravel­ moms ( Heimsreisumömmurnar) og bera svo sannarlega nafn með réttu því í sumar sögðu þær upp störfum sínum og flugu á vit ævin týranna með börnum sínum tveimur, Sindra og Söru, sem eru fjögurra og tveggja ára gömul. „Við vorum bún­ ar að ganga með þennan draum í maganum lengi og ákváðum að kýla á það áður en Sindri byrjaði í barna­ skóla,“ segir Eva Dögg. Að hennar sögn hefur ferðin verið frábær hingað til en einnig koma stundir sem reyna verulega á. Ferðin hófst í lok júní í sumar og gæti staðið í allt að ár. „Við sögðum upp í vinnunni, leigðum út íbúðina og lögðum af stað. Við keyptum bara miða eina leið og höfum því ekki ákveðið hvenær við komum heim eða hvert ferðinni er nákvæmlega heitið. Það fer eftir okkur, krökk­ unum og fjárhagnum,“ segir Eva Dögg. Jólin fyrirhuguð á Balí Fyrsti áfangastaður var Taíland en þangað höfðu Eva og Álfheiður farið í brúðkaupsferð árið 2011. „Við elskuðum landið, matinn og menninguna og vildum því gjarnan skoða landið nánar. Okk­ ur fannst líka þægilegt að hefja ferðina á stað sem við höfðum reynslu af, sérstaklega þar sem við erum með ung börn með okk­ ur. Þegar við fórum að skoða fleiri áfangastaði í Asíu þá urðum við sífellt spenntari enda ótrúlega margir staðir sem vert er að heimsækja. Það skemmir ekki heldur fyrir að Asía er frekar ódýr heimsálfa og því langaði okkur að eyða drjúgum tíma þar,“ segir Eva Dögg. Að loknum ljúfum mánuði í Taílandi var förinni heitið til Víet­ nam og síðan til Japan. Örlögin höguðu því þannig að flug þeirra til Japan var fellt niður vegna óveðurs og þá stukku þær á hent­ ugt flug til Suður­Kóreu í staðinn. „Þetta er lítið skipulagt hjá okkur og því getum við gripið gæsina og gripið skemmtileg tækifæri,“ segir Eva Dögg. Fram undan er svo heimsókn til Filippseyja, Singa­ pore, Kambódíu og Indónesíu. „Við vorum síðan búnar að ákveða að eyða jólunum og áramótunum á Balí. Það er enn á dagskrá en við fylgjumst vel með stöðunni varð­ andi náttúruhamfarirnar sem riðu yfir á dögunum.“ Hvað tekur við eftir áramótin er óráðið og segjast Eva og Álf­ heiður ætla njóta þess að hafa dagskrána sveigjanlega. Álfheið­ ur fór sem skiptinemi til Argent­ ínu á árum áður og því er það á stefnuskránni að heimsækja fjöl­ skylduna sem hún dvaldi hjá á sínum tíma. Fyrir utan að njóta alls þess sem áfangastaðirnir hafa upp á að bjóða fyrir ferðamenn hafa Eva og Álfheiður lagt ríka áherslu á að heimsækja leikskóla og ýmis dagvistunarúrræði fyrir börn í hverju landi fyrir sig. „Við erum báðar menntaðir þroska­ þjálfar og höfum mikla reynslu af því að vinna með börnum. Okkur fannst því spennandi að fá innsýn í mismunandi kennsluumhverfi. Okkur finnst jafnframt spennandi að kynna börnunum okkar mis­ munandi aðstæður annarra og leyfa þeim að umgangast önnur börn í gegnum leik. Við förum líka markvisst á leiksvæði og leikvelli í þeim tilgangi að gefa börnunum félagslega útrás með jafnöldrum og kynna fjölmenninguna fyrir þeim,“ segir Eva Dögg. Brjáluð vinna að ferðast með lítil börn Hún segist hiklaust geta mælt með því að ferðast um Asíu með ung börn. „Við vissum svo sannarlega að það yrði áskorun að ferðast með tvö ung börn. Það er brjáluð vinna að vera með svona lítil kríli en þvílíkur lærdómur fyrir okkur öll og yndisleg samvera. Þau koma okkur stanslaust á óvart en auð­ vitað er dagamunur á okkur öll­ um og þá lærum við bara að vinna með það. Það er ótrúlegt hvað þau þurfa að þola mikið áreiti frá fólkinu hérna úti. Það er stans­ laust verið að snerta þau, klípa, stara og taka þau upp svo ekki sé talað um endalausar myndatökur en auðvitað allt gert með góðum huga. Þau hafa verið ótrúlega um­ burðarlynd og viljug en það hafa vissulega komið stundir þar sem þeirra þolmörkum er misboðið og þau draga sig til baka. Með hverj­ um deginum eflast þau og læra að njóta og við nýtum hvert tækifæri til lærdóms því það er ótrúleg lífs­ reynsla að halda svona út í heim í allt aðra menningu og venjur,“ segir Eva Dögg Eitt af því sem stungið hefur í augun er ógrynni af rusli á víða­ vangi. Það fer sérstaklega fyrir brjóstið á hinum fjögurra ára gamla Sindra. „Þetta hefur skap­ að miklar umræður og eftir­ tekt hjá okkur öllum. Við tókum því ákvörðun sem fjölskylda að við viljum leggja okkar af mörk­ um. Við getum að sjálfsögðu ekki breytt heiminum en við getum gert eitthvað. Þess vegna ákváð­ um við að vera alltaf með poka í töskunni og tínum rusl reglulega. Gaman að segja frá því að þegar við vorum í Hue­Vietnam að tína í einn ruslapokann þá rölti einn heimamaður til okkar með eigin poka og byrjaði að tína með okk­ ur,“ segir Eva Dögg. Hægt er að fylgjast með ferða­ lagi fjölskyldunnar á Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum eins og Instagram, Facebook og sérstakri bloggsíðu þeirra. Notendanafnið er worldtravelmoms. FÓLK - FERÐALÖG Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum n Sögðu upp í vinnunni og leigðu út íbúðina n Heimkoman ræðst af fjárhagnum Eva og Álfheiður skelltu sér í heimsreisu með tvö ung börn Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Fjölskyldan á góðri stund.Sara bregður á leik með taílenskum börnum. Eva Dögg og Álfheiður elska að ferðast um á hjóli en því miður er erfitt að leigja hjól með barnasætum á þeim slóðum sem þær hafa ferðast um. Þegar það er hægt þá er um mikinn sigur að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.