Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Blaðsíða 39
Góðar stundir 16. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Snyrtistofan Dimmalimm má með sanni segja að sé falinn gimsteinn í hjarta Árbæjar.
Húsakynnin eru notaleg og starfs-
fólkið veitir faglega, vandaða og
góða þjónustu. „Við leggjum mikið
upp úr því að viðskiptavinir okkar hafi
það gott hjá okkur, geti slakað vel á
og látið amstur dagsins líða úr sér í
róandi og slakandi andrúmslofti hér
á stofunni hjá okkur,“ segir Svana.
„Við bjóðum í raun upp á allt þetta
hefðbundna þegar kemur að snyrti-
og dekurmeðferðum, þ.e. litun og
plokkun, augnháralyftingu, hand- og
fótameðferðir, nudd, vax og fleira
en mig langar sérstaklega að nefna
andlitsmeðferðirnar okkar. Við erum
nefnilega með mjög flott úrval af
andlitsmeðferðum, bæði dekurmeð-
ferðir og róttækari andlitsmeðferðir,“
segir Svana.
Dermatude Meta Therapy – And-
litslyfting án skurðaðgerðar
Dermatude Meta Therapy er með
virkari andlitsmeðferðum sem
Dimmalimm býður upp á. Meðferðin
er algerlega náttúruleg og sárs-
aukalaus. Um er að ræða ósýnilega
örgötun húðarinnar sem virkjar hana
til að laga sig sjálf ásamt því að not-
uð eru virk efni. Meta Therapy örvar
kollagen- og elastínframleiðslu,
gefur raka og næringu og húðin
verður stinnari og þéttari. Meðferðin
vinnur meðal annars á línum, hrukk-
um, örum og litabreytingum. „Þessi
meðferð er frábær kostur bæði fyrir
konur og karla sem vilja virka and-
litsmeðferð. Við mælum yfirleitt með
átta skipta kúr á 12 vikna tímabili, en
samt sem áður er gríðarlegur mun-
ur eftir eingöngu eitt skipti,“ segir
Svana.
Ávextir í andlitið
„Ávaxtasýrumeðferð með C-vítamíni
er önnur frábær andlitsmeðferð sem
við bjóðum upp á. Hún er ekki jafn
róttæk og Meta Therapy en engu að
síður mjög frískandi og góð meðferð.
Þessi er rosalega góð fyrir húð sem
vantar smá ást. Meðferðin er tvífasa
húðflögnunarmeðferð sem er í senn
endurnýjandi og andoxandi. Sýrurn-
ar vinna á fínum línum, hrukkum,
örum og litaflekkjum auk þess að
gefa húðinni raka og ljóma. Með-
ferðin er oft tekin í kúrum og mælum
við oftast með fjórum til sex skiptum.
Annars er meðferðin mjög gott búst
fyrir húðina og er töluverður munur
eftir eitt skipti,“ segir Svana. Einnig er
boðið upp á hefðbundnari andlits-
meðferðir með nuddi, húðhreinsanir,
andlitsmeðferðir með rafmagns-
tækjum og styttri meðferðir eins og
rakameðferð.
Dekurpakkar
„Gjafabréfin okkar hafa notið gríðar-
legra vinsælda í hinar ýmsu gjafir og
nú þegar líður að jólum mæli ég svo
sannarlega með þeim. Tilvalin gjöf
handa þeim sem eiga allt og vant-
ar ekkert nema notalega, slakandi
stund fyrir sjálfan sig. Hægt er að
kaupa gjafabréf í öllum verðflokkum,
velja upphæð, meðferð eða setja
saman sína eigin dekurpakka. Við
aðstoðum auðvitað við val á með-
ferðum og svo er auðvitað alltaf
hægt að skipta út ef handhafi gjafa-
bréfsins vill gera það,“ segir Svana.
Frábært í dekurpakkann
„Í dekurpakkann mæli ég alltaf með
andlitsmeðferðunum okkar, fót-
snyrtingu og svo sérstaklega með
Tranquility Pro Sleep Massage. Þetta
er afar endurnærandi líkamsmeð-
ferð fyrir huga, líkama og sál. Með-
ferðin slekkur alveg á heilanum og
er rosalega flott gjöf fyrir fólk sem er
stressað í jólaösinni eða þarf að kúp-
la sig út. Við leggjum mikið upp úr að
gjafbréf séu falleg gjöf og koma þau
því í gjafapoka með fallegri slaufu.
Einnig erum við með glæsilegar
gjafapakkningar eins og vanalega, á
frábæru verði frá Comfort Zone og
Dermatude vörunum sem við notum
hér á stofunni,“ segir Svana.
Jólagleði
Þess má geta að 1. desember verður
skemmtileg jólagleði í verslunar-
kjarnanum þar sem Dimmalimm
er staðsett. Það verður alls konar
húllumhæ, jólasveinar verða á stjái,
afslættir af vörum og gjafabréfum
og hægt verður að gera góð kaup og
fá ráðgjöf við val á snyrtivörum og
meðferðum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
dimmalimm.is
Hraunbær 102a (fyrir aftan Ár-
bæjarblóm)
Opið er alla virka daga frá 10–18 n
Dekraðu við þig á
Snyrtistofunni Dimmalimm