Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Blaðsíða 8
8 16. nóvember 2018FRÉTTIR
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
Greiðslulausnir tengdar
helstu afgreiðslukerfum
Sjálfstandandi greiðslulausnir
og handfrjálsir posar
Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060
T
ryggvi Ingólfsson, sem er
lamaður fyrir neðan háls,
hefur í átta mánuði þurft
að dúsa í litlu herbergi á
Landspítalanum í Fossvogi. Áður
hafði hann dvalið við gott atlæti á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu á
Kirkjuhvoli á Hvolsvelli í ellefu ár.
Í byrjun árs þurfti Tryggvi að fara í
aðgerð á Landspítalanum. Á meðan
hann var fjarverandi skrifaði starfs-
fólk heimilisins undir undirskrifta-
lista þess efnis að það myndi ganga
út ef Tryggvi sneri aftur á Kirkju-
hvol. Hefur fjölskylda Tryggva feng-
ið mismunandi skýringar á þessum
aðgerðum starfsfólks, allt frá því að
Tryggvi væri erfiður í samskiptum
og ylli miklu álagi á starfsfólk, yfir í
að ekki væri hægt að tryggja öryggi
hans á Kirkjuhvoli. Hjúkrunarheim-
ilið gat þó í 11 ár veitt honum þjón-
ustu án þess að nokkurn tímann
hafi verið rætt að öryggi hans væri
ógnað með veru hans þar.
Í stað þess að dvelja í rúmlega
500 metra fjarlægð frá eiginkonu
sinni þá aðskilja rúmlega 100 kíló-
metrar þau. Tryggvi dvelur einn og
yfirgefinn á lungnadeild Landspít-
alans í Fossvoginum og getur ekki
hitt ástvini sína eins oft og hann
langar. Hann segist upplifa sig sem
einskis nýtan pappakassa sem er
hent í geymslu. Fjölskyldumeðlim-
ir telja að um gróft mannréttinda-
brot sé að ræða en engin lausn virð-
ist í sjónmáli. Kostnaðurinn við dvöl
Tryggva í Fossvoginum er ærinn
eða 350 þúsund krónur á dag.
Heppinn að lifa slysið af
Á vordegi einum fyrir tólf árum
breyttist líf Tryggva Ingólfssonar til
frambúðar. Hann var í útreiðartúr
með fjölskyldu sinni þegar hestur
hans hrasaði. Tryggvi féll af baki og
slasaðist alvarlega. „Ég féll af baki
og heyrði þegar hálsliðurinn brotn-
aði. Eftir það er hins vegar allt svart,“
sagði Tryggvi í viðtali við Morgun-
blaðið fyrir áratug. Afleiðingar
slyssins voru þær að Tryggvi lam-
aðist fyrir neðan háls, þar með talin
öndunarfæri, og hefur þurft aðstoð
við allar athafnir daglegs lífs síðan.
Hann mátti teljast afar heppinn að
komast lífs af því þegar slysið átti sér
stað hafði enginn á Íslandi lifað af
svo alvarlegan mænuskaða.
Fyrst eftir slysið dvaldi Tryggvi
á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi og síðan fór hann í endur-
hæfingu á Grensás í tíu mánuði. Í
kjölfarið fékk hann pláss á Kirkju-
hvoli, nálægt heimili hans, en í áð-
urnefndu viðtali við Morgunblað-
ið dásamar Tryggvi þjónustuna og
sagðist njóta bestu mögulegu hjúkr-
unar frábærra starfsmanna.
Ástæða brottrekstrar síbreytileg
Rétt er að geta þess að fjörtíu starfs-
menn starfa á Kirkjuhvoli og því
var aðeins hluti starfsmannanna
ósáttur við Tryggva. Ástæðan fyrir
þessum viðbrögðum starfsfólks var
sögð sú að Tryggvi væri erfiður í
samskiptum. Seinna var því haldið
fram að mannekla á Kirkjuhvoli
væri ástæðan fyrir því að hann gæti
ekki snúið til baka, en síðasta ástæð-
an sem var gefin var sú, sem fyrr
segir, að ekki væri hægt að trygga ör-
yggi hans. Í kjölfarið sagði sveitarfé-
lagið einhliða upp samningi við rík-
ið vegna umönnunar Tryggva.
Í átta mánuði hefur líf Tryggva
verið í biðstöðu og unir hann hag
sínum illa. Hann þakkar starfsfólki
Landspítalans sérstaklega fyrir að
reyna gera allt í sínu valdi til að gera
vist hans þar eins þægilega og hægt
er. Fjölmiðlar fjölluðu um málið
fyrir sjö mánuðum en engin lausn
hefur enn fundist.
„Það hefur ekkert gerst núna í
átta mánuði. Ég hef verið heimil-
islaus í átta mánuði, í fyrsta skipti
á ævinni,“ segir Tryggvi, sem kann
því afar illa að dveljast fjarri eigin-
konu sinni og fimm börnum. „Það
er enginn sem tekur ábyrgð á þessu
máli og það er aldrei neinn sem
ræðir við mig að fyrra bragði. Börn-
in mín hafa verið að krefja yfirvöld
um lausn á málinu og það er í eina
skiptið sem eitthvað fer á hreyfingu,“
segir Tryggvi.
Viðbrögð starfsfólks komu á
óvart
Hann segir að viðbrögð starfsfólks
á Kirkjuhvoli hafi komið honum í
opna skjöldu. „Mér leið mjög vel
á Kirkjuhvoli og var ánægður með
þá umönnun sem ég fékk. Það kom
mér mjög á óvart þegar ég heyrði
að starfsfólk vildi ekki fá mig aftur,“
segir Tryggvi. Hann vísar því alfar-
ið á bug að hann hafi verið erfiður í
samskiptum.
DV hefur ítrekað reynt að fá svör
frá sveitarfélaginu vegna málsins en
án árangurs. Þau svör sem þó ber-
ast eru á þann veg að ekki verði rætt
um einstök mál, eða vísað á aðra
sem einnig neita að tjá sig um mál-
ið. Þá óskaði DV eftir afriti af samn-
ingi sveitarfélagsins, Rangárþings
eystra, við velferðarráðuneytið um
umönnun Tryggva en bárust þá þau
svör að slíkur samningur væri ekki
tiltækur hjá sveitarfélaginu né upp-
sögn hans. n
DV mun fjalla ítarlega um málið
á næstunni á DV.is.
n Tryggvi Ingólfsson hefur þurft að dúsa á Landspítalanum í átta mánuði
n Fær ekki snúa á hjúkrunarheimilið á Kirkjuhvoli „Mér leið
mjög vel
á Kirkjuhvoli og
var ánægður með
þá umönnun sem
ég fékk. Það kom
mér mjög á óvart
þegar ég heyrði
að starfsfólk vildi
ekki fá mig aftur.
HEIMILISLAUS Í FYRSTA SKIPTI
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is