Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Blaðsíða 47
Góðar stundir 16. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Golfklúbburinn Holtagörðum, Holtavegi 10, er í senn heilsárs félagsmiðstöð fyrir golfara og
virkilega notalegur veitingastaður
sem býður upp á frábæran mat á
hagstæðu verði. Á staðnum eru fimm
golfhermar af bestu gerð en stað-
urinn er jafnframt framúrskarandi
sportbar þar sem gott er að fylgjast
með enska boltanum og alls konar
öðrum íþróttaviðburðum á fjölda
sjónvarpa og eru stærri viðburðir
sýndir á risaskjáum.
Í hverjum golfhermi geta verið
allt að átta kylfingar að leika í einu
og það fer vel um allt að 12 manns
við hvern hermi. Gestir geta hvort
tveggja notast við eigin kylfur eða
fengið leigðar kylfur á staðnum.
Einnig er í boði að geyma kylfurnar
sínar á staðnum.
Golfhermarnir henta fólki með alls
konar kunnáttu og byrjendur eru svo
sannarlega velkomnir í Golfklúbbinn
og fá kennslu. Almennt má fullyrða að
hvergi sé betra að æfa sveifluna en í
golfhermum.
Ekki bara fyrir kylfinga
Þeir sem hafa ekki áhuga á golfi geta
líka átt góðar stundir í Golfklúbbnum.
Eins og fyrr segir eru íþróttaviðburðir
sýndir á fjölda skjáa og matseðilinn
hentar öllum og er til dæmis kjörið
fyrir fjölskylduna að eiga góða stund
á staðnum yfir máltíð.
Golfklúbburinn hentar líka vel
fyrir hvers konar hópefli og tekur
á móti hópum frá 10 upp í yfir 100
manns. Hægt er að leigja sér sal
fyrir hvers konar viðburði. Best er að
hafa samband í síma 820-9111 og fá
upplýsingar og tilboð fyrir hópinn eða
viðburðinn þinn.
Á matseðlinum eru fjölbreytt-
ir hamborgararéttir, salöt, steikur,
kjúklingaspjót, fiskréttir og margt
fleira. Verðinu er stillt í hóf en gæðum
jafnframt haldið uppi.
Vert er að minna á að hægt er að
kaupa gjafabréf að Golfklúbbnum á
staðnum fyrir upphæð að eigin vali.
Þetta er til dæmis góð jólagjöf sem
myndi gleðja margan kylfinginn.
Golfklúbburinn er opinn alla daga
vikunnar frá kl. 10.00 til 23.00. Sjá
nánar á vefsíðunni golfklubburinn.is og
Facebook-síðunni Golfklúbburinn. n
GOLFKLÚBBURINN:
Golf allt árið og fyrsta
flokks veitingar
VERÐSTRÍÐ –
KOMDU OG PRÓFAÐU
STRÍÐSTILBOÐ FRÁ 1.290 KR.!
GOLFKLÚBBURINN ER Í STRÍÐI! NÁNAR TILTEKIÐ Í VERÐ-
STRÍÐI VIÐ FRÆGAN, SÆNSKAN HÚSGAGNASALA Í
GARÐABÆNUM. STRÍÐ VINNA SIG EKKI SJÁLF. VIÐ ÞURF-
UM ÞÍNA HJÁLP. GOLFKLÚBBURINN ÚTVEGAR VOPNIN,
ÞÚ MUNN OG MAGA.
VOPNABÚRIÐ ER:
n GÓÐUR MATUR
n GOTT VERÐ – HANGIKJÖT EÐA MEXÍKÓSK KJÚKLINGA-
SÚPA Á 1.290, HÁDEGISHAMBORGARI EÐA FISKUR OG
FRANSKAR Á 1.790 – SÓDAVATN OG GOS ER Á 210.
n HUGGULEGUR STAÐUR
n GÓÐ ÞJÓNUSTA
n MIÐSVÆÐIS – ÞÚ SPARAR EKKI MEÐ LANGFERÐUM
n NÆG BÍLASTÆÐI – EKKI EYÐA TÍMA Í AÐ LEITA AÐ
BÍLASTÆÐI
BEST ER AÐ SANNREYNA FULLYRÐINGARNAR HÉR AÐ
FRAMAN MEÐ ÞVÍ AÐ KOMA OG PRÓFA!
SAMAN VINNUM VIÐ ÞETTA STRÍÐ!
ATH. GILDIR Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST, TAKMARKAÐ
MAGN Í HVERJU HÁDEGI.
ERT ÞÚ AÐ FARA AÐ DJAMMA?
ERT ÞÚ AÐ FARA AÐ DJAMMA? ÞAÐ ER UPPLAGT AÐ
HEFJA KVÖLDIÐ Á SKEMMTILEGRI SVEIFLU Í GOLF-
KLÚBBNUM, Í BOÐI ERU SÉRSTÖK DJAMMTILBOÐ Í GOLF
OG VEITINGAR Á
FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSEFTIRMIÐDÖGUM.
GRUNNPAKKI ER EIN KLUKKUSTUND Í GOLFHERMI OG 8
DRYKKIR Á 10.000 KR. GILDIR FÖSTUDAGA OG LAUGAR-
DAGA FRÁ 17.00. HVER AUKAKLUKKUSTUND KOSTAR 7.000
(GOLF Í 1 KLST. OG 4 DRYKKIR).