Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Blaðsíða 80
16. nóvember 2018
43. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Er verkið
þá loksins
orðið
ómetanlegt?
FIMM RÉTTA
JÓLAMATSEÐILL
HANGILÆRI
FLATKAKA, RJÓMAOSTUR, PIPARRÓT
GRAFLAX
SÍTRÓNA, SINNEPSFRÆ, DILL
JÓLA SMAKK
GRAFIN GÆS, REYKT GÆS, HREINDÝRAPATE,
HESLIHNETUR, ÍSLENSK BER, RAUÐLAUKUR,
TRUFFLUKREM
NAUTALUND & SVÍNASÍÐA
MEÐLÆTI KEMUR Á BORÐIÐ TIL AÐ DEILA,
STEIKTIR SVEPPIR, SVEPPA KREM, MJÓLKURDUFT
STÖKKAR SMÆLKI KARTÖFLUR, SVARTUR HVÍTLAUKUR
EPLASALAT, SELLERÍ, PORTVÍNS GLJÁI
EPLI & KARAMELLA
HVÍTT SÚKKULAÐI, KANILL, HESLIHNETUR
JÓLA KONFEKT
MATSEÐILL AÐEINS Í BOÐI FYRIR ALLT BORÐIÐ
HÆGT ER AÐ NJÓTA MEÐ EÐA ÁN SÉRVALINNA VÍNA
VERÐ Á MANN:
SUNNUDAGA TIL MIÐVIKUDAGA 8.900 KR,-
FIMMTUDAGA TIL LAUGARDAGA 10.500 KR,-
SÉRVALIN VÍN 7.950 KR,-
---
---
FRAKKASTÍG 8B - SÍMI: 557 7665 - RVKMEAT@RVKMEAT.IS - WWW.RVKMEAT.IS
Lítt þekkt
ættartengsl
Bæjarstjórar
um allt land
Á
sthildur Sturludóttir var
ráðin bæjarstjóri Akur
eyrarkaupstaðar um
miðan september síðast
liðinn til loka kjörtímabilsins.
Alls sóttu 18 einstaklingar um
stöðuna en Ásthildur var metin
hæfust til þess að gegna emb
ættinu. Ásthildur hafði áður
starfað sem bæjarstjóri Vestur
byggðar frá árinu 2010. Ásthild
ur á ekki langt að sækja póli
tíska leiðtogahæfileika sína því
faðir hennar er Sturla Böðvars
son, fyrrverandi samgönguráð
herra og forseti Alþingis. Sturla
starfaði síðast sem bæjar
stjóri Stykkishólmsbæjar fram í
febrúar 2018 en þá settist hann
í helgan stein.
Ferðamenn heimsækja vettvang Næturvaktarinnar
F
jölmargir útlendingar koma
við í versluninni 1011 á
Laugavegi 180 til að skoða
tökustað Næturvaktarinnar.
Þetta segir Daníel Aron Sigurgeirs
son verslunarstjóri sem hefur tekið
það að sér að leiðbeina gestum og
segja þeim frá. Í eitt skiptið fékk er
lend kona kast þegar hún komst að
því hvar hún var stödd.
„Við fáum oft túrista sem spyrja
okkur um upptökurnar á þáttun
um. Í eitt skipti kom hingað kona
frá Asíu sem skríkti og hoppaði um
eins og smástelpa þegar ég sagði
henni að þetta væri upptökustað
urinn,“ segir Daníel í samtali við
DV. „Þetta er besta minningin mín.“
Vinsælt í Asíu og Þýskalandi
Þættirnir Næturvaktin slógu ræki
lega í gegn þegar þeir voru sýndir
á Stöð 2 haustið 2007. Tók þjóðin
ástfóstri við þrjár aðalpersónurn
ar, þá Daníel, Ólaf Ragnar og Georg
Bjarnfreðarson. Í kjölfarið fylgdu
tvær þáttaraðir til viðbótar, Dag
vaktin og Fangavaktin. Þættirn
ir hafa verið sýndir víða um heim
og eiga sér greinilega marga aðdá
endur.
Kom það ykkur á óvart að vin-
sældirnar væru svona miklar?
„Það eru búnir að koma svo
margir að þetta er eiginleg hætt
að koma manni á óvart. Þættirn
ir hafa greinilega verið sýndir víða
um heim. Hingað kemur til dæm
is fjöldi asísks fólks og Þjóðverja.“
Hvað gera túristarnir þarna
inni?
„Þau vilja fá að kíkja inn á smur
stöðina og í kjallarann. Svo taka
þau myndir og ég segi þeim hvern
ig allt var þegar þættirnir voru
teknir upp. Maður er orðinn hálf
gerður leiðsögumaður. Ég myndi
ekki ganga svo langt að segja að
fólk sé í pílagrímsferð en þau sem
hafa séð þættina koma við og eru
yfirleitt mjög ánægð.“ n
E
ftir að álrykið af Banksy
málinu er sest sitja ansi
margir skömmustulegir
eftir. Ljóst er að enginn
kom vel frá málinu nema þá
helst þeir sem sátu á hliðar
línunni. Héldu margir að verk
ið sem Jón Gnarr fékk að gjöf í
borgarstjóratíð sinni væri tug
milljóna króna virði. Gerði
hann lítið til að segja til um
raunverulegt verðmæti verks
ins á sínum tíma en montaði
sig af þessu „einstaka verki.“
Það kom í hausinn á honum
núna.
Þeir sem vildu koma höggi á
Jón Gnarr og stimpla hann
sem þjóf litu hins vegar hjákát
lega út þegar prentaða Bank
syálplatan var sett á slípirokk
inn. Í því fólst staðfesting á
verðleysi verksins. Hafa margir
hælt Jóni fyrir förgunina og
sagt hana listgjörning í sjálfu
sér sem verður að teljast hæp
in ályktun.
Eftir stendur að
enginn kemur
vel frá „Stóra
Banksymál
inu“ nema
þá karlinn á
slípirokkn
um, hann
stóð sig ágæt
lega.
Óþægilegt
fyrir alla