Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Blaðsíða 32
Góðar stundir 16. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Kærleikurinn ræður ríkjum að Þverholti 5 í Mosfellsbæ, en þar er Kærleikssetrið til húsa.
Starfsemina stofnaði Friðbjörg Ósk-
arsdóttir árið 2005 og býður hún þar
upp á fjöldann allan af meðferðum,
námskeiðum, hugleiðslustundum og
hópvinnu til þess að heila líkama og
sál. „Í Kærleikssetrinu fjöllum við um
allt sem lýtur að þroska manneskj-
unnar, jafnt andlegum, sálrænum og
líkamlegum þroska, því það er ekki til
sú manneskja sem er bara líkamleg.
Öll erum við í senn líkamleg, andleg
og sálræn og við þurfum að virkja alla
þessa þætti,“ segir Friðbjörg.
Aðventan, tími gleði og notalegra
stunda
„Ég vil minna fólk á aðventunni á að
spenna ekki bogann of hátt heldur að
leyfa sér að njóta. Aðventan er yndis-
legur tími og hans á að njóta. En það
eiga ekki allir jafn gott á aðventunni.
Sumir upplifa missi sem veldur mikl-
um sársauka. Þá er mikilvægt að loka
sig ekki af, heldur þarf að leita í um-
hverfi á meðal fólks þar sem manni
líður vel. Við Íslendingar erum gjarnir
á að kyngja tilfinningunum og dylja
þær innra með okkur. Ég tala um
magasvæðið okkar sem ruslafötu því
þar geymum við óunnar tilfinningar.
Maður verður að viðurkenna tilfinn-
ingarnar, bæði góðar og slæmar, og
vinna með þær. Og margir gera sér
ekki grein fyrir að þeir þurfi stuðning í
vanlíðaninni. Það er engin skömm í að
líða illa. Við verðum að geta losað. Þá
getur verið gott að koma í Kærleiks-
setrið,“ segir Friðbjörg.
Ýmislegt í boði fyrir alla
Kærleikssetrið er með opnar hug-
leiðslustundir, námskeið, fyrirlestra,
skyggnilýsingar, heilun og opið hús
svo aðeins eitthvað sé nefnt. „Við
erum með barnahópa og að mínu
mati mætti kenna einstaklingum
slökun og sálarrækt mun fyrr. Helst
í grunnskóla. Þetta starf hefur gefist
mjög vel og eru börnin og ekki síð-
ur foreldrarnir afar ánægðir með
árangurinn,“ segir Friðbjörg. Kærleiks-
setrið býður upp á einkatíma í heilun
og ráðgjöf, nuddtíma, markþjálfun,
reiki, miðlun, tarotspá og íkonamyndir
með leiðsögn. Svo er vinahópum boð-
ið upp á notalega kvöldstund með
ýmsum skemmtilegum uppákomum.
Kjarninn
Eftir áramótin gefst tækifæri til að
skrá sig í hópa Kjarnans. „Grunnur
kennslunnar hjá Kærleikssetrinu er
einmitt kjarnavinna, sem er sjálfs-
vinna. Aðaláhersla er lögð á að
tengjast kjarnanum til að styrkja
sjálfsmyndina. Einnig er farið í
tengingu við æðra sjálfið. Við lærum
að tengjast hæfileikum okkar og
innri þekkingu sem við höfum öðlast
í gegnum líf okkar, bæði núverandi
og fyrri líf. Við munum auka næmn-
ina og eflum hæfileikann í að hlusta
á innsæið, sem er í raun það eina í
lífinu sem er fullkomlega treystandi,“
segir Friðbjörg.
Gjafabréf frá Kærleikssetrinu:
Gjafir frá hjartanu
„Mér þykir rosalega mikilvægt að
velja gjafir frá hjartanu en forðast
það að velja gjafir vegna peninga.
Gjafir sem koma beint frá hjartanum
hafa miklu meira innihald en þær
gjafir sem koma út frá peninga-
hugsun.“ Gjafabréfin hjá Kærleiks-
setrinu eru alltaf vinsælar jólagjafir.
„Fólki líður svo vel þegar það kemur
hingað og það vill að ástvinum sín-
um líði jafn vel. Gjafabréfin eru full-
komnar gjafir handa þeim sem vilja
gera vel við ástvini sína.“ Í Kærleiks-
setrinu er einnig rekið lítið gallerý
þar sem meðal annars eru til sölu
hugleiðsludiskar, reykelsi, myndlist
og skart.
Dagskrá framundan
Skyggnilýsing 22. Nóvember kl. 20.
„Nærandi morgunstund“ Laugar-
dagur 1. desember 2018 kl. 10–12.
Síðan eru opnar hugleiðslu-
stundirnar öll miðvikudagskvöld kl.
19.30 og eru allir velkomnir í þessar
yndislegu stundir. Til að finna kyrrð
og innri frið. „Þetta er góður undir-
búningur fyrir jólahelgina,“ segir
Friðbjörg.
Nánari upplýsingar má nálgast
með
Kærleikssetrið er að Þverholti
5, Mosfellsbæ. Sími 567-5088 og
862-0884
netfang: kaerleikssetur@kaer-
leikssetur.is
Heimasíða: kaerleikssetrid.is og
Facebook: Kaerleikssetrid.Mosfells-
bae. n
Það er alltaf gott að
koma í Kærleikssetrið
Salurinn í
Kærleikssetrinu.
Hjörtur Magni og Friðbjörg
“Heilunarmessa” í Fríkirkjunni.
Málverk af Yöntru. Við
erum stundum með
málverkasýningar.
Frá skyggnilýsingafundi í Kærleikssetrinu.