Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Blaðsíða 31
Góðar stundir 16. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Í hjarta miðbæjarins við Tjörnina er Tjarnarbíó, eitt af atvinnuleik-húsum borgarinnar. Húsið var
endurbyggt og opnað að nýju árið
2010 og í dag er þar iðandi mannlíf
og stemning frá morgni til kvölds.
„Hér er gríðarlegur vöxtur, mikill
uppgangur í miðasölu og aukning á
gestafjölda,“ segir Friðrik Friðriksson,
framkvæmdastjóri Tjarnarbíós.
Frá miðjum ágúst til loka maí eru
æfingar í gangi alla daga og sýn-
ingar mörg kvöld í viku. „Við sinnum
allri sviðslistaflórunni. Hér er dans,
barnaleikhús, hefðbundið og óhefð-
bundið leikhús,“ segir Friðrik. „Hér er
mikið líf allan daginn og kósí stemn-
ing á Tjarnarbarnum, kaffihúsinu
okkar.
Tjarnarbarinn er opinn alla daga
frá kl. 10 til 17. Á sýningarkvöldum
er hann opnaður einum og hálfum
klukkutíma fyrir sýningar og er opinn
fram til kl. 23. Alla daga er í boði
vegansúpa sem Marta, veitingastjóri
Tjarnarbarsins, útbýr af stakri snilld.
Úrvalið er fjölbreytt og sem dæmi
hefur verið boðið upp á baunasúpu
og tómatsúpu. Grillaðar samlokur
verða á boðstólum fljótlega. Kaffi
hússins er líka margrómað fyrir
gæði. Einnig má geta þess að með-
limir Einkaklúbbsins fá 2 fyrir 1-til-
boð á súpum. Þegar líður á daginn
breytist Tjarnarbarinn í bar og fyrir
sýningar er Happy Hour-tilboð, sem
lýkur þó hálftíma fyrir sýningar.
„Það er tilvalið fyrir leikhúsgesti
að mæta snemma fyrir sýningar á
Tjarnarbarinn og byggja upp eft-
irvæntingu fyrir sýningu kvöldsins.
Eftir sýninguna er síðan hægt að
ræða og kryfja hvað fram fór á
sviðinu,“ segir Friðrik. „Hér eru allir
velkomnir, hvort sem þeir eru að
fara á sýningu eða ekki og hægt að
setjast niður og fá sér veitingar þó
að sýning sé inni í sal, það heyrist
ekkert á milli. Eftir sýningu má oft
finna leikarana úr sýningu kvöldsins
á Tjarnarbarnum og þá er tilvalið að
heilsa upp á þá. Einnig eru þeir oft í
hádegismat hér.“
Tjarnarbarinn er ekki rekinn í
gróðaskyni, heldur rennur hagnað-
ur hans til sjálfstæðu leikhópanna.
Einnig er leiklistarbókasafn á staðn-
um sem tilvalið er að glugga í.
Dagskráin í Tjarnarbíói fyrir ára-
mót
Dagskrá sem er framundan í nóv-
ember og desember er þétt. Þann
30. nóvember er frumsýning á nýju
verki sem heitir Rejúníon og verða
sýningar í desember og svo aft-
ur eftir áramót. Verkið fjallar um
fæðingarþunglyndi, málefni sem
hefur verið allt of lítið í kastljósinu.
„Ævintýrið um Augastein er jólasýn-
ingin okkar en Felix Bergsson hefur
glatt unga sem aldna leikhúsgesti
með verkinu síðastliðin 17 ár. Nú hef-
ur hann þó ákveðið að breyta til og í
ár verður sýningin á sviði hjá okkur í
síðasta sinn!“ segir Friðrik.
„Jólaævintýri Þorra og Þuru
er nýtt jólaleikrit fyrir yngstu leik-
húsgestina og fjölskyldu þeirra og
fjallar um gildi jólanna. Svanurinn,
spunahópur úr Improv Ísland, verður
með sprenghlægilega jólasýningu
hjá okkur. Föstudagslögin, sem
samanstendur af Stefáni Jakobs-
syni og Andra Ívarssyni, verða með
þrenna jólatónleika og Ari Eldjárn
ætlar að koma og hita upp fyrir
áramótaskopið sitt. Hann verður
með svona prufukeyrslu hér í mun
minni sal og fyrir minni hóp en í Há-
skólabíói,“ segir Friðrik. „Það er fullt
af viðburðum framundan og yfir-
leitt nóg um að vera fimmtudaga til
sunnudaga. Oft á laugardögum og
sunnudögum eru barnasýningar hjá
okkur. Hér er notalegt og skemmti-
legt andrúmsloft.“
Allar upplýsingar um Tjarnarbíó
og viðburði þar má finna á heima-
síðunni tjarnarbio.is, Facebook-síðu:
Tjarnarbíó, síma 527-2100 og á net-
fanginu tjarnarbio@tjarnarbio.is. n
TJARNARBÍÓ:
Fjölbreytt leikhúsflóra,
mannlíf og stemning
Rejúníon
fjallar um
fæðingar-
þunglyndi
Þorri og Þura flytja jólaævintýri
Felix Bergsson flytur Ævintýrið um Augastein í
síðasta sinn núna fyrir jólin
Svanurinn spunahópur