Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 23
KYNNING
65“ OLED B7 sjónvarpstækið frá LG er loksins
komið aftur og er nú á HM-
tilboði í Raflandi á aðeins
329.990 krónur (fullt verð
439.990).
LG OLED sjónvarpanna
ættu flestir tækniunnendur
að þekkja en önnur sjón-
varpstækni stenst engan
samanburð. LG OLED færir
þér allra bestu mögulegu
sjónvarpsupplifunina og
styður allar HDR-gerðir
sem eru í boði með 4K upp-
lausn. OLED skapar eins-
taka myndskerpu milli ljóss
og myrkurs með óviðjafnan-
legum svörtum lit sem eykur
dýpt lita í myndinni. Í OLED
sjónvarpi stýrir hver einasti
pixill sínu eigin ljósi.
B7 OLED sjónvarpið hefur
örþunnan skjá sem skilar
ótrúlegri mynd með tærum
litum og fullkomnum svört-
um sem gefa nýja dýpt og
meiri litabreidd en áður
þekktist. OLED er eina skjá-
tæknin á markaðnum í dag
sem býður þessi ótrúlegu
myndgæði þar sem myndin
verður svo ljóslifandi að þú
gleymir því að myndin er á
sjónvarpsskjá en ekki raun-
veruleg. B7 hefur innbyggð-
an stuðning við Dolby Vision
sem og HDR10 og HLG
ásamt því að geta hækkað
gæðin í öðru myndefni upp í
nánast HDR gæði. Litir sem
mæta fullkomnum svörtum í
LG OLED verða enn bjartari
en áður því einstök OLED
skjátæknin stýrir birtustigi
og lit af nákvæmni með því
að styðja við hvern einstak-
an undirpixil. Það þýðir að
þú getur séð yfir 1 milljarð
litatóna.
B7 hefur einnig Dolby
Atmos þrívíddarhljóðkerfi
sem hámarkar sjónvarps-
upplifunina ásamt einstak-
lega þægilegu webOS 3.5
sniðmáti og Magic Remote
fjarstýringu sem gerir þér
kleift að streyma beint af
efnisveitum, gefur einfald-
an aðgang að forritum auk
vafra og auðveldar samstill-
ingu við leikjatölvur. Þannig
verður allt viðmót notenda-
vænna og tryggir hnökra-
lausa upplifun í samskiptum
við önnur tæki á heimilinu.
B7 sjónvarpið er auk þess
glæsilega hannað eins og
LG er einum lagið, með afar
stílhreinum þunnum ramma
og innbyggðum hágæða
Dolby Atmos hátölurum
sem gefa mikinn hljóm en
eru samt sem áður faldir í
rammanum. Í OLED sjón-
varpinu eru allir litirnir jafnir,
sama frá hvaða sjónarhorni
er horft, þannig getur sjón-
varpsstofan verið full af fólki
en allir njóta myndarinnar,
nú eða HM leiksins, jafnt.
Þú getur skoðað 65“ B7
OLED sjónvarpstækið frá
LG í Raflandi, Síðumúla 2
eða í vefverslun Raflands,
rafland.is
LG OLED:
Fullkomnir litir á fullkomnum
svörtum