Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 52
50 MENNING 6. júlí 2018 8 Á stærsta samskiptamiðli heims leynist óneitanlega margt skemmtilegt. Face- book-hópar, opnir sem lokaðir, ganga fyrir sig eins og lítil samfélög, uppfull af fjölbreyti- legu fólki og allskonar skoðun- um. Það er óhætt að fullyrða að allir geti fundið sér eitthvað við hæfi hvort sem viðkomandi hef- ur eitthvað að selja, þarf létta á sér, þrasa eða einfaldlega leita að nýjum tækifærum til þess að fiska eftir upplýsingum eða finna fólk með sameiginleg áhugasvið. Galdurinn er vissulega að vita hvar á að leita. DV fór því á stúfana og leitaði uppi nokkra skemmtilega Face- book-hópa sem enn hafa ekki enn náð fótfestu hjá íslenska meginstraumnum, en eiga svo sannarlega erindi þangað. n Tómas Valgeirsson tomas@dv.is skemmtilegir Facebook-hópar Það er ekki hægt að vera í of mörgum Facebook-hópum Hraðamælinga Tips Það er frekar óvinsælt sport að vera stöðvaður af lögreglunni. Í hópnum Hraða- mælinga Tips er að finna samansafn af miskunnsömum samverjum sem fylgjast grannt með hvar lögreglan mælir hraða á götum og lætur aðra vita. Þarna er einnig bent á hægri umferð, vegaframkvæmdir eða aðrar seinkanir. Hvernig upplýsingarn- ar sem finnast í þessum hópi eru notaðar eru alfarið á ábyrgð hvers og eins, en eflaust hafa ófáir sloppið við hraðasektir vegna hópsins. Svo getur hver og einn velt fyrir sér hvort það sé gott eða slæmt. Sannar íslenskar draugasögur Það kannast trúlega einhverjir við tilfinninguna að smella af einni ljósmynd af vinum eða ættingjum, en þá laumast dularfullur skuggi inn á myndina sem fær ímyndaraflið til að fara á flug. Í þessum hóp skiptist fólk á reimleikasögum og upplifunum sem vekja aðra til umhugsunar um hvort það sé eitthvað yfirnáttúrulegt á sveimi eða hvort þetta hafi bara verið kám á linsunni. Samtök um bíllausan lífsstíl Samtök um bíllausan lífsstíl er hópur fólks sem hefur það sameiginlega áhugamál að vinna að því að gera bíllausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti en nú er. Gísli Marteinn Baldursson er andlegur leiðtogi hópsins. Kannski er kominn tími á að segja skilið við bílinn eða blása rykið af reiðhjólinu. Heimur batnandi fer „Hérna á ekki heima nein svart- sýni eða bábilja, né það sem má kalla óttastjórn- un,“ segir í lýsingu stjórnenda hópsins Heimur batnandi fer. Kjarnamarkmið þessa hóps er að benda á það góða og jákvæða sem er allt í kringum okkur, enda er af nægu að taka. Birtar eru upplífgandi fréttir og skilaboð sem vinna gegn þeim hremmingum sem aðrir miðlar eiga til að einblína á og ekki síður falskar fréttir eða villandi tölfræðiupplýsingar um þá hrörnandi veröld sem við búum í. Sérð þú glasið sem hálffullt? Þá er um að gera að líta við með bros á vör og neikvæðnina í aftursætinu. Algjörlega óáhugaverðar fótboltaupplýsingar Margir vilja meina að það sé ekkert til sem heitir „gagnslausar upplýsingar“, en tónskáldið John Cage sagði eitt sinn að það væri hægt að gera leiðinlega hluti áhugaverða með mikilli ástundun. Í þessum líflega hópi sitja landsmenn sem rýna í leiðinlegustu atriði fótbolta til þess eins að „íþróttin geti orðið skemmtileg fyrir börnin okkar sem vilja helst bara hanga heima og lesa ljóð“ eins og segir í lýsingu hópsins. Alþingismaðurinn Kolbeinn Óttarson Proppé stofnaði hópinn sem vettvang fyrir misáhugaverða pósta Stefáns Páls- sonar, vinar síns, um knattspyrnuliðið Luton Town. Í ljós kom að æði margir höfðu áhuga á slíkum óáhugaverðum fróðleik og meðlimir hópsins eru nú orðnir yfir 5.000 talsins. Stefán er enn virkur penni og Kolbeinn geispar á meðan. Góð dægrastytting fyrir fólk sem hefur áhuga á því að sýna fótbolta áhuga en veit ómögulega hvar skal byrja. Innkaupakerrur heimsins Það nota allir innkaupakerrur þegar lagt er í stórinnkaupaleiðangur. Þegar verslunaferðinni er lokið hefur kerran þjónað tilgangi sínum, að minnsta kosti hjá flest- um. Því miður eiga óprúttnir viðskiptavinir það stundum til að taka kerrurnar trausta- taki og bruna með þær í burtu og skilja þær síðan eftir langt frá „heimahögum“ sínum. Hópurinn Innkaupakerrur heimsins hefur það markmið að finna þessar yfirgefnu kerrur. Meðlimir taka ljósmyndir af kerrum sem verða á vegi þeirra og birta þær í hópnum með þá von í brjósti að kerrurnar komist aftur til síns heima. Allir vinna. Vinir lúpínunnar Hér snúa ýmsir landsmenn bökum saman um leið og þeir titla sig vini umdeildasta blóms landsins, lúpínunnar. Meðlimir hafa meðal annars mótmælt ómálefnalegum tillögum starfshóps umhverfisráðherra um að útrýma lúpínu í gróðursnauðasta landi Evrópu. Gakktu í hópinn ef þig þyrstir að stórefla landgræðslu og skógarækt svo endurheimta megi töpuð landgæði á Íslandi. Hópurinn hyggst stuðla að uppgangi og útbreiðslu lúpínunnar eftir bestu getu. Ef þessi skilaboð tala til þín, er gráupplagt að smella á hnappinn „Join Group“. Aðrir kostulegir hópar eða síður sem DV mælir með: n Áhugafólk um eineltismál n Áhugafólk um skegg n Skammarleg ummæli Íslendinga n Góð kaup á ÍSLANDI, myndir og verð! n Sama myndin af Ingvari E. Sigurðssyni á hverjum degi n Frír matur n Góð combo n Léleg combo n Skipulagsfíklar n Hópur um hópa n Hrós dagsins Fullorðnir aðdáendur teiknimynda Oft kemur fyrir að aðdáendur teiknimynda bíða spenntir eftir að bregða sér á nýja teiknimynd frá Pixar eða frá öðrum heims- hornum, en þá er hún aðeins sýnd með íslensku tali. Tilgangur þessa hóps er að skapa umræður um ýmsar ólíkar teikni- myndir og sýna dreifingaraðilum kvikmynda á Íslandi að til sé stór hópur fullorðinna aðdáenda teiknimynda sem vill sjá þær í kvikmyndahúsum, helst á kvöldin og á frummálinu. Gísli Einarsson, eigandi Nexus, leiðir hópinn sem hefur farið ört vaxandi. geirsgötu 8 / s. 553 1500 Hamingja í hverri skeið Hádegistilboð breytilegt eftir dögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.