Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 57
6. júlí 2018 FRÉTTIR 55 A ð sumri til á tólftu öld átti- undarlegur atburður sér stað í þorpinu Woolpit í Suffolk á Englandi. Á með- an á uppskerutímanum stóð birt- ust tvö börn skyndilega upp úr djúpum skurðum sem voru not- aðir sem úlfagildrur. Húð barn- anna, stráks og stelpu, var græn- leit. Þau voru í undarlega litum fatnaði sem var búinn til úr óþekktum efnum. Þau ráfuðu um í nokkrar mínútur og virtust ráð- villt áður en þorpsbúar gáfu sig að þeim og tóku þau með heim í þorpið. Enginn skildi tungumálið sem börnin töluðu og því var erfitt að eiga samskipti við þau. Þau voru flutt heim til landeigandans. Þau neituðu að borða brauð og ann- að sem var borið á borð fyrir þau og grétu. Svona gekk þetta dögum saman þar til þorpsbúar færðu þeim nýjar baunir sem voru enn á stilk- unum. Sagan segir að börnin hafi lifað á baunum og stilkum þeirra mánuðum saman eða þar til þau höfðu sætt sig við að borða brauð. Eftir því sem tíminn leið varð strákurinn, sem var yngri, þung- lyndur, veiktist og dó á endan- um. Stúlkan aðlagaðist hins vegar og var skírð. Húð hennar missti græna litinn með tímanum og hún varð heilbrigð ung kona sem lærði ensku og giftist manni í næstu sýslu. Saga stúlkunnar Þegar stúlkan var síðar spurð um fortíð sína hafði hún aðeins óljós- ar minningar um hvaðan þau hefðu komið og hvernig þau komu til Woolpit. Hún sagði þau hafa verið systkin sem hafi komið frá „landi Saint Martin“ þar sem var alltaf rökkur og allir væru græn- ir á litinn eins og þau höfðu verið. Hún var ekki viss um hvar landið var en sagði að annað „skínandi“ land sæist hinum megin við „tölu- verða á“ sem aðskildi löndin. Hún sagði að þau systkinin hefðu verið að gæta hjarðar föðursins á ökrun- um og hafi elt dýrin inn í helli. Þar inni heyrðu þau bjölluhljóm sem þau heilluðust af og eltu lengi vel í myrkrinu þar til þau komu í hellis- munna þar sem þau blinduðust af sól. Þau lögðust ringluð niður fyrir utan hellinn en hljóðin frá þorps- búum hræddu þau og þau stóðu upp og reyndu að flýja en tókst ekki að finna hellismunnann áður en þorpsbúar náðu þeim. Hvaðan komu þau? Flestir telja að hér sé um þjóðsögu að ræða en málsins er getið í forn- um heimildum. En tvær skýringar hafa verið nefndar til sögunnar sem þær líklegustu. Önnur gengur út á að þetta sé þjóðsaga þar sem fundum venjulegs fólks við „fólk frá ævintýraheimi“ er lýst. Ævin- týraheimurinn er þá ójarðneskur og börnin eru geimverur. Hin skýr- ingin er að þetta hafi gerst í raun og veru en ómögulegt sé að vita hvort hér sé um sögu að ræða sem er byggð á frásögn barna eða full- orðna. Í grein í tímaritinu Analog 1996 setti stjörnufræðingurinn Duncan Lunan fram þá kenningu að börn- in hafi fyrir mistök verið send til Woolpit frá heimaplánetu sinni þegar „efnissendir“ bilaði. Hann sagði að heimapláneta barnanna gæti verið á læstri braut um sól sína sem skýri þá frásögn stúl- kunnar um eilíft rökkur á milli mjög heits yfirborðs og frosinnar dökkrar hliðar. Græna húðlit barn- anna skýrir hann sem hliðarverk- un af neyslu þeirra á erfðabreytt- um plöntum. Þá hafa einnig verið settar fram kenningar um að börnin hafi kom- ið frá hliðstæðum heimi en sum- ar kenningar ganga út á að til sé fjöldi hliðstæðra alheima, hugsan- lega óendanlega margir, þar sem er jafnvel að finna plánetur sem svipar til jarðarinnar okkar. Einnig hafa verið settar fram sögulegar skýringar á borð við þá að börnin hafi verið af ætt- um flæmskra innflytjenda í aust- anverðu Englandi en þeir komu þangað á tólftu öld og voru ofsótt- ir eftir að Henry II varð konungur 1154. Því hefur verið varpað fram að börnin hafi hugsanlega kom- ið frá Fornham St Martin en þar bjuggu flæmskir innflytjendur og að þau hafi flúið þaðan þegar til átaka kom. Þau hafi verið í flæmskum fatnaði, talað flæmsku og hafi því verið mjög undarleg í augum þorpsbúa. Þau eru einnig sögð geta hafa verið með grænu veikina sem var afleiðing nær- ingarskorts. Græna veikin hefði síðan horfið um leið og börnin fengu betri næringu. Kenningarnar eru margar og skemmtilegar en líklega má slá því föstu að við munum aldrei komast til botns í uppruna grænu barn- anna frá Woolpit.n Leyndardómurinn um grænu börnin frá Woolpit n Hvaðan komu þau? n Hver voru þau? „Þá hafa einnig verið settar fram hugmyndir um að börnin hafi komið frá hliðstæð- um heimi en sumar kenn- ingar ganga út á að til sé fjöldi hliðstæðra alheima, hugsanlega óendanlega margir, þar sem er jafn- vel að finna plánetur sem svipar til jarðarinnar okkar. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Skilti sem vísar í goðsögnina af grænu börnunum frá Woolpit. GIMLI FASTEIGNASALA Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík s. 570 4800 / gimli@gimli.is Næsti kafli hefst HJÁ OKKUR hafðu samband
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.