Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 34
Snæfellsnes Helgarblað 6.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
Helga býður upp á heimagerðan mat og
grillmat á tveimur stöðum á Snæfellsnesi
„Við viljum bjóða
upp á heimil-
islegt og afslappað
andrúmsloft og ég er
með frábært starfs-
fólk“
Hjónin Helga Magnea Birk-isdóttir og Ólafur Sólmunds-son reka tvo staði á Snæfells-
nesi, Prímus kaffihús á Hellnum og
Stapann veitingastað á Arnarstapa.
Hjónin tóku u-beygju í lífinu árið
2014 þegar þau fluttu úr Keflavík
vestur á Snæfellsnes. Þar una þau
sér vel, umvafin fallegri náttúru og
góðum nágrönnum. Nóg er að gera
á báðum stöðum og gestirnir eru
bæði erlendir og innlendir, ferða-
menn, heimamenn og sumarhúsa-
eigendur.
„Við lentum bara hérna,“ seg-
ir Helga og hlær. Hjónin bjuggu í
Sandgerði og Keflavík og voru ekkert
í veitingabransanum þar. „Ég var
búin að hugsa um að opna kaffihús,
en var kannski of hrædd til að stíga
skrefið. Kaffihús hafa ekki gengið of
vel í Keflavík.“
Helga og Ólafur tóku svo af skarið
saman, seldu húsið í Keflavík, fluttu
að Hellnum og stofnuðu fyrirtækið
Birkisól, sem nefnt er eftir feðrum
þeirra og í framhaldinu kaffihúsið
Prímuskaffi. Fyrir ári síðan opnuðu
þau síðan veitingastaðinn Stapann á
Arnarstapa.
„Það var kominn tími til að
gera eitthvað,“ segir Helga, sem
segist hafa verið komin í góðan
þægindaramma.
Heimagert af Helgu sjálfri
„Á Prímuskaffi leggjum við áherslu
á heimatilbúinn mat,“ segir Helga.
Leggjum metnað í að hafa sem mest
heimagert. Bollurnar eru uppskrift
úr hausnum á mér, þær eru með
brúnni sósu, kartöflum og hrásalati
og auðvita sultu. Þær eru alveg að
slá í gegn,“ segir Helga. Súpurnar
eru þrenns konar: sveppa-, fiski- og
kjötsúpa og sama á við þær, allt
heimagert.
Kaffihúsið er frekar stórt og þar
voru áður fjárhús. Prímus er vinsælt
meðal ferðamanna og fullt af gest-
um sem koma þangað með rútum og
er til dæmis fullt að gera í hádeginu.
Prímus kaffi getur tekið á móti allt að
160 manns og eru þrír salir á staðn-
um. Það er opið kl. 11-20 og matseð-
illinn er í boði allan daginn.
„Við viljum bjóða upp á heimilislegt
og afslappað andrúmsloft og ég er
með frábært starfsfólk,“ segir Helga.
„Starfsfólkið mitt er metnaðarfullt,
hrikalega dugleg og leggur sig fram
við að læra íslensku.“
HM stendur nú yfir og eru allir leik-
ir sýndir á Prímuskaffi í sérsal. „Við
sýnum alla leikina á 75 tommu sjón-
varpi og það var frábær stemning,
mikið gaman og fullur salur þegar
Ísland keppti. Við höldum áfram að
sýna leikina á HM en áhorfið hef-
ur aðeins minnkað. Útlendingarnir
komu uppáklæddir í HÚH bol og það
var gaman hvað þeir voru mikið að
hvetja Ísland.“
Stapinn – Grillstaður og eitthvað í
boði fyrir alla
Þó að aðeins sé fimm mínútna
keyrsla á milli staðanna og sömu
eigendur, eru þeir ólíkir í stíl og úrvali.
Stapinn er grillstaður og þar er hægt
að fá eitthvað af öllu.
„Hér reynum við að koma til móts
við þarfir allra, bjóðum upp á mat af
grillinu, bæði hamborgara, vegan-
borgara, kjúklingaborgara, lamba-
snitsel og fish’n chips. Við notum
besta hráefni þorskhnakka í fish’n
chips og koma þeir úr héraði og við
leggjum mikla áherslu á gæðin. Við
erum líka með salsa, heita osta,