Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 48
46 BLEIKT 6. júlí 2018 E ftir nokkur ár af misheppn- uðum læknisskoðunum fékk Friðjón Guðlaugsson loks greiningu sem útskýrði þá hræðilegu verki sem hann hef- ur þurft að takast á við undanfar- in ár. „Ég greindist með millivefja- blöðrubólgu sem er sjúkdómur þess eðlis að ónæmiskerfið ræðst á blöðruna sem veldur hrörn- un sem tærir slímhúðina innan í blöðrunni og heldur svo áfram að tæra sig inn í vef blöðrunnar þar sem taugar skemmast,“ segir Friðjón í samtali við blaðamann. „Millivefjablöðrubólgunni fylgja miklar bólgur, krónískir verkir og taugaverkir þar sem brenndu taugarnar senda frá sér boð nokkrum sinnum á sekúndu til heilans. Þessi sjúkdómur er settur í topp fimm fyrir verstu verki sem einstaklingur getur þurft að þola vegna sjúkdóms.“ Svefnvana í fjögur ár Sjúkdómurinn gerði Friðjón óvinnufærann að mestu þegar hann var einungis 32 ára gam- all og hefur hann verið svefn- vana í um fjögur ár. „Ég hef ekki sofið lengur en tvo klukkutíma í senn í fjögur ár og þarf að tæma blöðruna á tveggja tíma fresti á nóttunni. Á daginn þarf ég vana- lega að tæma blöðruna á hálf- tíma freksti. Ég er með síþreytu og vefjagigt vegna svefntruflanna og verkja.“ Friðjón segir að það hafi verið erfitt að horfast í augu við þá stað- reynd að hann væri með ólækn- andi sjúkdóm sem kæmi í veg fyr- ir að hann gæti unnið fyrir sjálfum sér. „Ég þurfti að sætta mig við það að vera orðinn öryrki. Ég fór á örorkubætur sem var mikið og langt ferli, ekki bara skrifræðilega heldur andlega. Ég var eiginlega að enduruppgötva sjálfan mig því sjálfsmynd mín var brotin.“ Framtíðarsýn Friðjóns var ekki björt og segist hann alltaf hafa langað til þess að eignast sína eig- in fjölskyldu. „En karlmenn sem hafa ekki fulla heilsu og eiga litla peninga eru ekki beint mark- aðsvænir í augum kvenna.“ Kynntist ástinni á Facebook Friðjón leitaði stuðnings í hóp á Facebook fyrir fólk sem þjáist af millivefjablöðrubólgu. Þar kynnt- ist hann Fernöndu, sem þjáist af sama sjúkdómi og hann. „Fern- anda er fyrrum atvinnuleikari og Þarf að borga allt að 2 milljónum fyrir fæðingu barns síns Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is n Friðjón er öryrki vegna kvalafulls sjúkdóms n Kynntist mexíkóskri unnustu sinni á Facebook„Ég hef ekki sofið lengur en tvo klukkutíma í senn í fjögur ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.