Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 29
Snæfellsnes 6 júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Markmið okkar er að vera lókal í öllu sem við gerum. Allur fiskur kemur úr firðinum og allt lambakjöt sem við notum kemur frá bænum Helgafelli, við tökum 200 skrokka frá þeim í heimtöku, vinnum allt kjöt frá grunni og nýtum allt af lambinu. Nautakjötið kaupum við frá ýmsum nálægum stöðum, við látum slátra fyrir okkur, tökum heim, úrbeinum og gerum úr því hamborgara,“ segir Sæþór H. Þorbergs- son, bryti á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi. Sæþór og eiginkona hans, Steinunn Helgadóttir, eru eigendur staðarins. Narfeyrarstofa er gróinn staður þar sem sífelld þró- un og nýsköpun á sér stað í matargerð. „Við höfum átt þetta síðan 2001 og erum enn á sömu kennitölunni, geri aðrir betur,“ segir Sæ- þór. Aukinn ferðamanna- straumur til landsins síð- ustu ár hefur haft sín áhrif á gestasamsetninguna: „Hér eru erlendir túristar í miklum meirihluta en við erum líka með töluvert af innlendum fastakúnnum og það er ekki bara fólk sem býr hér í nágrenninu heldur líka aðkomufólk.“ Narfeyrarstofa hefur blómstrað hin síðari ár og er opið á staðnum allan ársins hring. „Síðasta vetur var opið alla daga vikunn- ar, ég hef aldrei séð ann- að eins. Það er líka mikið gistipláss hér í Stykkishólmi, samtals 900 rúm í gistirými á gistihúsum, hótelum og í Airbnb-gistingu.“ Í sumar er opið frá 11:30 til 22 alla daga vikunnar og er heitur matur í boði á öllum tímum dagsins. Að sögn Sæþórs sækja erlend- ir ferðamenn mikið í sjáv- arfangið enda mikið úrval af spriklandi ferskum fiski í boði og afar ljúffengum og hugvitsamlegum sjávar- réttum. „Hér er alltaf fiskur dagsins í boði, í dag er það hlýri og á morgun verður það langa. Síðan er það það þorskur, bláskel, hörpu- skel og margt fleira.“ Lambakjötið er líka vinsælt og mjög fjölbreytt- ir réttir í boði af fersku lambakjöti sem er fullunnið á staðnum: „Við erum alltaf með steik dagsins sem er breytileg eftir atvikum, það getur verið hryggur, læri, innanlæri, skanki eða lund; síðan er alltaf gúllassúpa í boði og sérstakar lamba- pylsur sem við framleiðum eru á hádegismatseðlinum.“ Ódýr og hollur matur fyrir börnin Narfeyrarstofa er fjöl- skylduvænn veitingastaður sem gerir hann að áhuga- verðum kosti fyrir fjölskyld- ur á faraldsæti. „Við erum með sérstakan barnamat- seðil með þremur réttum þar sem enginn réttur kostar meira en 1.250 kr. og ódýrasti rétturinn er á 850 kr. Þetta er allt ferskur og góður matur, fiskréttur, kjötbollur sem við vinnum hér sjálf og hamborgari. Engir kjúklinganaggar eða eitthvert drasl. Við bjóðum börnum upp á ferskan og hollan mat á vægu verði.“ Þess má geta að í júní síðastliðnum útskrifaði Narfeyrarstofa sinn fyrsta matreiðslunema, Þorberg Helga Sæþórsson, sem er sonur þeirra hjóna. Narfeyrarstofa er til húsa að Aðalgötu 3, Stykk- ishólmi. Símanúmer er 533 1119. Nánari upplýs- ingar á vefsíðunni narf- eyrarstofa.is. NARFEYRARSTOFA: Framúrskarandi matur í fallegu umhverfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.