Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Side 29
Snæfellsnes
6 júlí 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Markmið okkar er að vera lókal í öllu sem við gerum. Allur
fiskur kemur úr firðinum
og allt lambakjöt sem við
notum kemur frá bænum
Helgafelli, við tökum 200
skrokka frá þeim í heimtöku,
vinnum allt kjöt frá grunni
og nýtum allt af lambinu.
Nautakjötið kaupum við frá
ýmsum nálægum stöðum,
við látum slátra fyrir okkur,
tökum heim, úrbeinum og
gerum úr því hamborgara,“
segir Sæþór H. Þorbergs-
son, bryti á Narfeyrarstofu
í Stykkishólmi. Sæþór og
eiginkona hans, Steinunn
Helgadóttir, eru eigendur
staðarins.
Narfeyrarstofa er gróinn
staður þar sem sífelld þró-
un og nýsköpun á sér stað í
matargerð. „Við höfum átt
þetta síðan 2001 og erum
enn á sömu kennitölunni,
geri aðrir betur,“ segir Sæ-
þór. Aukinn ferðamanna-
straumur til landsins síð-
ustu ár hefur haft sín áhrif
á gestasamsetninguna:
„Hér eru erlendir túristar
í miklum meirihluta en við
erum líka með töluvert af
innlendum fastakúnnum og
það er ekki bara fólk sem
býr hér í nágrenninu heldur
líka aðkomufólk.“
Narfeyrarstofa hefur
blómstrað hin síðari ár og
er opið á staðnum allan
ársins hring. „Síðasta vetur
var opið alla daga vikunn-
ar, ég hef aldrei séð ann-
að eins. Það er líka mikið
gistipláss hér í Stykkishólmi,
samtals 900 rúm í gistirými
á gistihúsum, hótelum og í
Airbnb-gistingu.“
Í sumar er opið frá 11:30
til 22 alla daga vikunnar
og er heitur matur í boði á
öllum tímum dagsins. Að
sögn Sæþórs sækja erlend-
ir ferðamenn mikið í sjáv-
arfangið enda mikið úrval
af spriklandi ferskum fiski í
boði og afar ljúffengum og
hugvitsamlegum sjávar-
réttum. „Hér er alltaf fiskur
dagsins í boði, í dag er það
hlýri og á morgun verður
það langa. Síðan er það
það þorskur, bláskel, hörpu-
skel og margt fleira.“
Lambakjötið er líka
vinsælt og mjög fjölbreytt-
ir réttir í boði af fersku
lambakjöti sem er fullunnið
á staðnum: „Við erum alltaf
með steik dagsins sem er
breytileg eftir atvikum, það
getur verið hryggur, læri,
innanlæri, skanki eða lund;
síðan er alltaf gúllassúpa í
boði og sérstakar lamba-
pylsur sem við framleiðum
eru á hádegismatseðlinum.“
Ódýr og hollur matur fyrir
börnin
Narfeyrarstofa er fjöl-
skylduvænn veitingastaður
sem gerir hann að áhuga-
verðum kosti fyrir fjölskyld-
ur á faraldsæti. „Við erum
með sérstakan barnamat-
seðil með þremur réttum
þar sem enginn réttur
kostar meira en 1.250 kr.
og ódýrasti rétturinn er á
850 kr. Þetta er allt ferskur
og góður matur, fiskréttur,
kjötbollur sem við vinnum
hér sjálf og hamborgari.
Engir kjúklinganaggar eða
eitthvert drasl. Við bjóðum
börnum upp á ferskan og
hollan mat á vægu verði.“
Þess má geta að í júní
síðastliðnum útskrifaði
Narfeyrarstofa sinn fyrsta
matreiðslunema, Þorberg
Helga Sæþórsson, sem er
sonur þeirra hjóna.
Narfeyrarstofa er til húsa
að Aðalgötu 3, Stykk-
ishólmi. Símanúmer er
533 1119. Nánari upplýs-
ingar á vefsíðunni narf-
eyrarstofa.is.
NARFEYRARSTOFA:
Framúrskarandi matur í
fallegu umhverfi