Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Blaðsíða 49
BLEIKT 476. júlí 2018
pilateskennari frá Mexíkó. Við
vorum á sama stað, óvinnufær og
föst í foreldrahúsum. Fernanda
fær enga örorku í Mexíkó þar sem
sjúkdómurinn er of nýr og hefur
ekki komist inn í kerfið. Hún er
því með öllu launalaus, fær ekk-
ert, enga framfærslu.“
Á milli Friðjóns og Fernöndu
myndaðist einstakt samband þar
sem þau skildu hvort annað vel og
gáfu hvoru öðru styrk í þessari erf-
iðu stöðu. „Eftir nokkra mánuði
ákvað ég að safna fyrir ferð til
Mexíkó og heimsækja hana. Það
var þar sem við urðum hrifin af
hvort öðru. Á sama tíma og lífið
varð fallegra varð það erfiðara þar
sem Fernanda varð ólétt.“
Óléttuna skipulögðu Frið-
jón og Fernanda alls ekki enda
nýorðin ástfangin. Þar sem þau
eru hins vegar bæði komin yfir
þrítugsaldurinn ákváðu þau að
taka barninu opnum örmum og
gera sitt besta úr kringumstæðun-
um. Tekjur Friðjóns og Fernöndu
eru í grunninn 188 þúsund krón-
ur á mánuði í framfærslu sem eru
örorkubæturnar sem hann fær.
„Óléttan hefur áhrif á milli-
vefjablöðrubólguna hennar og
veskið okkar. Við fórum af stað
um leið að undirbúa flutning
Fernöndu og ófædds barnsins
til Íslands. Við lögðum hausinn í
bleyti varðandi hvernig við gæt-
um fengið tekjur til þess að fram-
fleyta okkur. Í dag er Fernanda
komin fjóra mánuði á leið og
heilsast vel en pappírsvinnan hef-
ur tekið svo langan tíma sökum
hægagangs skrifræðis í Mexíkó að
það klárast ekki fyrr en í júlí og þá
fyrst getum við flutt heim. Þá eru
fimm mánuðir í að barnið komi í
heiminn og við munum fara beint
í það að gifta okkur og sækja um
landvistarleyfi til þess að geta
búið saman sem fjölskylda.“
Þurfa að borga fæðinguna úr
eigin vasa
Friðjóni var greint frá því af
Útlendingastofnun að ferlið tæki um
þrjá til sex mánuði þar til hún yrði
komin í íslenskt heilbrigðiskerfi og
tryggð fyrir fæðingunni. Ef hún yrði
ekki komin inn í kerfið gætu þau
tryggt hana fyrir spítalakostnaði.
„Við ætluðum að taka séns-
inn. Svo fékk ég þær fréttir frá
tryggingarfélögunum að með-
ganga sé ekki tryggð að neinu
leyti svo ég hafði samband við
löfræðing sem sendi mér þessa
köldu kveðju.“
Sæll Friðjón.
Því miður er staðan
sú að engin sjúkra-
trygging tryggir kostn-
að vegna meðgöngu
og fæðingu. Konan
þín mun heldur ekki
fara inn í heilbrigð-
iskerfið, þ.e. fá kostn-
að greiddan á sama
hátt og aðrir með lög-
heimili á Íslandi, fyrr
en sex mánuðum eftir
að lögheimili hennar
hefur verið skráð hér
á landi. Að fá dvalar-
leyfi fyrir hana tekur
einhvern tíma svo ég
tel nánast fullvíst að
barnið fæðist áður en hún
verður komin inn í heil-
brigðiskerfið. Kostnaður-
inn af fæðingunni mun því
lenda á ykkur, síðast þegar
ég vissi var hann um ein
milljón.
Vegna veikinda sinna verður
Fernanda ekki fær um að sinna
fullu starfi eftir barnsburð, en
Friðjón segir að eftir að barnið
komi í heiminn muni hún sækja
um hlutastarf til þess að þau geti
aukið tekjurnar aðeins. Fram að
þeim tíma mun Fernanda verða
launalaus að öllu leyti.
„Félagsþjónustan í Hafnarfirði
segir mig, öryrkjann, vera með of
háar tekjur til þess að Fernanda
eigi rétt á félagsbótum og þar að
auki er ekkert laust húsnæði fyr-
ir okkur þar sem biðlistarnir eru
svo langir. Við munum því þurfa
að búa í 10 fermetra herbergi hjá
foreldrum mínum, væntanlega
næstu tvö árin.“
Vegna þessa flækjustigs þurfa
Friðjón og Fernanda sjálf að
borga fyrir mæðraskoðun, sónar
sem og fæðingu barns þeirra án
allrar niðurgreiðslu.
Mannréttindi að fá að eiga
barnið í heimalandinu
„Ferlið mun nema að minnsta
kosti 1,5-2 milljónum króna. Ef
við ákveðum að eignast barnið á
Íslandi. Ef við ákveðum að eign-
ast barnið í Mexíkó þá má ég vera
þar í fimm mánuði í senn án þess
að missa örorkuna. Samkvæmt
reglum Mexíkó má ég bara vera
þrjá mánuði í landinu sem túristi
og svo þarf ég að fara úr landi og
koma aftur. Ef ég vil vera lengur
en þrjá mánuði í Mexíkó þarf ég
því að fljúga til Íslands og standa
í því að redda pappírum og fljúga
svo aftur til Mexíkó, sem ég
hef ekki efni á. Ég hef ekki
rétt á örorku ef ég sæki um
landvistarleyfi í Mexíkó, svo
það varð ekki fyrir valinu að
eignast barnið hér. Við fljúg-
um því heim til Íslands í byrjun
júlí.“
Sem faðir barnsins hef-
ur Friðjón engan rétt á niður-
greiðslu vegna læknisskoðana né
fæðingunnar þar sem fóstur hafa
engin mannréttindi á Íslandi.
„Barnið er mitt líka og þó það
sé ófætt finnst mér það vera mín
mannréttindi að fá að eignast
barnið í mínu heimalandi.“
Friðjón og Fernanda brugðu
því á það ráð að óska eftir stuðn-
ingi í þeim erfiðu aðstæðum sem
þau takast nú á við í þeirri von að
þau geti eignast barnið sitt á Ís-
landi án mikilla fjárhagsáhyggja.
Hægt er að styrkja þau með því
að leggja inn á neðangreindan
reikning. n
Rkn: 0544 26 067362
Kt: 191285-2129
„Mann-
réttindi
að fá að eignast
barnið í mínu
heimalandi.
Friðjón og
Fernanda
á góðri
stundu.
Friðjón og
Fernanda
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Travel John ferðaklósett
leysa málið
Fyrirferðalítil, létt, einföld og hreinleg í notkun.
Engin kemísk efni, engin þrif, aðeins tvöfaldur
poki með efni sem gerir vökva að geli og eyðir
lykt. Pokanum er lokað eftir notkun, einfaldara
verður það varla. Pokana má nota í venjuleg
ferðaklósett til að losna við að þrífa þau.
Travel John pokar fyrir þvag eða uppköst gelgera
vökvann og eyða lykt. Verð 3 stk. í pakka
kr. 1.280,- Klósettpokar 3 stk. í pakka kr. 1.370,-
Klósettstóll kr. 6.820,- Tilboð ásamt 3 pökkum
af pokum kr. 8.500,- fæst hjá Donnu, Móhellu 2,
Hafnarfirði. Póstsendum.
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Mikið úrval af
stillanlegum
rúmum
Til hamingju með árangurinn