Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 37
Íslensk framleiðsla 28. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Lopinn er einstakt náttúruefni sem hefur sinn karakter frá íslensku sauðfé með sitt tog og
þel. Framleiðsluferlið er að mörgu
leyti flókið og þarf nána samvinnu
frá bónda til spuna. Það þarf allt að
koma saman: góð ull, natni bænda
við búskapinn, fagmannlegur rún-
ingur, flutningur um vetrartíma um
allt land, ullarþvottur á Blönduósi og
reynsla spunafólks í Mosfellsbæ. Lop-
inn hefur stóran aðdáendahóp, ekki
bara á Íslandi heldur um allan heim.
Hann er kannski ekki mýksta bandið
og kitlar suma pínulítið, en hann er
hlýr, fallegur og sterkur,“ segir Sig-
urður Sævarsson, framkvæmdastjóri
Ístex, fyrirtækis sem hefur haldið á
keflinu í íslenskri lopavinnslu frá 1991
eftir Álafoss.
„Í dag eiga bændur um 80% í
félaginu en almennir fjárfestar af-
ganginn. Við erum ekki með verslun
sjálf heldur seljum bara beint í búðir
og til fyrirtækja, ekki bara á Íslandi,
heldur um nánast allan heim. Lopinn
fer mjög víða og er vinsæll meðal
ákveðins hóps enda eru ekki margir
í svona framleiðslu á heimsvísu, á
svona 100% náttúrubandi með sögu
með rætur til íslenskra víkinga og
víkingakvenna,“ segir Sigurður.
Ístex hefur notið þeirrar gæfu að
bjóða með vörumerkinu Lopa margs
konar vörulínur eins og Plötulopa,
Álafosslopa, Bulkylopa, Léttlopa
og Einband. Einbandið verður til að
mynda 50 ára á næsta ári. Ístex
framleiðir og selur einnig ullarteppi,
gefur út handprjónabækur með
fjölbreyttri hönnun og framleiðir vél-
prjónaband.
„Nýlega hefur orðið sú nýjung
í starfseminni að bætt var við
blöndunarklefum á Blönduósi, sem
gerir hráullina betri og mun jafnari,“
segir Sigurður.
Að sögn Sigurðar eru fastir starfs-
menn 43, en við önnur árstíðabundin
verkefni þá bætast við um 10 manns
sem verktakar eða starfsmenn.
„Fyrir utan lopa og garn selur
Ístex ullarteppi en ekki aðrar fram-
leiðsluvörur úr efninu, aðrir sjá um að
framleiða slíkar vörur og við þjónust-
um þá sem við best getum. En Ístex
gefur líka út prjónabækur sem njóta
mikilla vinsælda og í októbermánuði
er væntanleg á markað ný prjóna-
bók eftir Vigdísi Jónsdóttur hönnuð,
sem beðið er eftir með mikilli eftir-
væntingu.“
Sjá nánar um úrvalið, sölustaði,
samstarfsaðila, uppskriftir og margt
fleira á vefsíðunni istex.is.
ÍSTEX:
Lopinn hefur sinn karakter
og sín sterku einkenni