Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 58
58 28. september 2018TÍMAVÉLIN Þ ann 18. nóvember 1978 fyrir­ skipaði Jim Jones, leiðtogi Peoples Temple kirkjunnar, öllum meðlimum hennar, sem bjuggu í Jonestown í Gvæjana að fremja „byltingarkennt sjálfsvíg“ með því að drekka eitrað púns. Alls létust 918 manns þennan dag í Jo­ nestown, þar af var þriðjungurinn börn. Fjöldasjálfsvígin í Jonestown var allt þar til hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin í septem­ ber 2001 sá atburður þar sem flestir Bandaríkjamenn höfðu látist í einu en náttúruhamfarir eru þar undan­ skildar. Jim Jones stofnaði söfnuðinn 1956 og var fólk af öllum kynþátt­ um velkomið í hann en það var harla óvenjulegt á þessum tíma. Meginmarkmið kirkjunnar var að sögn að aðstoða fólk í neyð. Í fyrstu var kirkjan staðsett í Indi­ anapolis í Indiana en var flutt til Redwood Valley í Kaliforníu 1966. Jones átti sér draum um samfé­ lag byggt á gildum kommúnisma þar sem allir lifðu saman í friði og sátt og legðu sitt af mörkum fyrir samfélagið. Honum tókst að koma skipulagi sem þessu á í litlum mæli í Kaliforníu en átti sér draum um að stofna búðir utan Bandaríkj­ anna. Þessar búðir áttu að vera að fullu undir hans stjórn og meðlim­ ir Peoples Temple áttu að hjálpa fólki á svæðinu. Til að þetta gæti gengið upp og áhrifa bandarískra stjórnvalda gætti ekki áttu þess­ ar búðir að vera fjarri Bandaríkj­ unum. Jones fann afskekkt svæði í Gvæjana, sem er í Suður­Ameríku, sem hentaði þörfum hans. Hann samdi um leigu á landsvæði 1973 við þarlend stjórnvöld og hófst þá mikil vinna við að ryðja skóg svo hægt væri að reisa búðir fyrir safn­ aðarmeðlimi. Uppbyggingin tók langan tíma enda þurfti að flytja allt byggingaefni til Jonestown sem hét fullu nafni Jonestown Agricultural Settlement. Þegar kom fram á árið 1977 bjuggu aðeins um 50 manns í búðunum og Jones var sjálfur enn í Bandaríkjunum. Draumaríkið En það breyttist fljótt þegar Jones frétti að verið væri að vinna að um­ fjöllun um hann þar sem hann yrði afhjúpaður. Greinin var við að fara í prentun og innihélt meðal annars viðtöl við fyrrverandi safnaðar­ meðlimi. Nóttina áður en grein­ in var prentuðu flaug Jones ásamt nokkur hundruð safnaðarmeðlim­ um til Gvæjana. Fólkið settist að í Jonestown. Jonestown átti að vera draumaríki en þegar safnaðar­ meðlimirnir komu þangað voru hlutirnir ekki eins og þeir höfðu búist við. Ekki var búið að byggja nægilega mörg hús til að hýsa alla og því höfðu kojur verið settar upp í húsunum, sem voru tilbúin, og því var þröngt á þingi. Kynjaskipt var í húsin þannig að hjón máttu ekki vera í sama húsinu. Hitinn og rakinn í Jonestown var kæfandi og margir veiktust. Þá þurftu safn­ aðarmeðlimirnir að vinna langa vinnudaga í hitanum, stundum allt að 11 klukkustundir. Hátalarar voru settir upp úti um allt í búðun­ um og var nær endalausum pré­ dikunum Jones útvarpað. Hann hafði mikið að segja og talaði oft heilu næturnar svo örþreytt fólk­ ið átti erfitt með svefn. Sumir voru mjög sáttir við að búa í Jonestown en aðrir vildu gjarnan losna þaðan en það var ekki auðvelt. Búðirnar voru í miðjum frumskógi og vopn­ aðir verðir stóðu vörð um þær. Þeir sem vildu fara þurftu að fá leyfi hjá Jones til þess og slík leyfi vildi hann ekki veita. Þingmaður kemur í heimsókn Leo Ryan, þingmaður frá Kaliforníu, hafði heyrt ávæning af að eitthvað slæmt væri á seyði í Jonestown. Hann ákvað því að fara þangað og kanna ástandið. Í för með honum voru ráðgjafi hans og kvikmynda­ tökulið frá NBC­sjónvarpsstöðinni auk nokkurra ættingja safnaðar­ meðlima. Ekki var annað að sjá en allt væri í góðu lagi. Um kvöldið var boðið til veislu með góðum mat og dansleik. Þá laumaði einhver miða til eins úr kvikmyndatökuliðinu með nöfnum fólks sem vildi gjarn­ an yfirgefa búðirnar. Þá varð hópn­ um ljóst að sumum var haldið gegn vilja sínum í Jonestown. Næsta dag, 18. nóvember 1978, tilkynnti Ryan að hann væri reiðu­ búinn til að taka alla þá sem vildu yfirgefa Jonestown með til Banda­ ríkjanna. Aðeins örfáir safnaðar­ meðlimir þáðu boðið en fólk óttað­ ist viðbrögð Jones. Fólkið var flutt á brott í vörubíl en Ryan ákvað að verða eftir til að tryggja að enginn, sem vildi fara, hefði orðið eftir. Þá réðst einn safnaðarmeðlima á hann og reyndi að skera hann á háls. Það tókst ekki en ljóst var að Ryan og hópur hans voru í hættu og yfirgaf hann því búðirnar. Vöru­ bíllinn komst á leiðarenda á flug­ völlinn en flugvélarnar voru ekki tilbúnar til brottfarar þá. Á með­ an fólkið beið var dráttarvél með tengivagn ekið upp að þeim. Af tengivagninum stukku safnaðar­ meðlimir sem hófu skothríð á fólk­ ið. Fimm féllu, þar á meðal Ryan. Margir til viðbótar særðust. Fjöldasjálfsvígin Í Jonestown fyrirskipaði Jones öll­ um að safnast saman við veislu­ skálann. Þegar allir voru komn­ ir ávarpaði Jones söfnuð sinn. Hann var örvæntingarfullur og virtist pirraður. Hann var ósáttur við að einhverjir safnaðarmeð­ limir hefðu yfirgefið Jonestown og lét eins og hlutirnir yrðu að gerast hratt. Hann sagði fólkinu að ráðist hefði verið á Ryan og fylgdarmenn hans og að vegna þessa væri Jone­ stown ekki lengur öruggur staður. Hann var fullviss um að bandarísk yfirvöld myndu bregðast harka­ lega við vegna árásarinnar. „Þegar fallhlífarhermennirn­ ir koma munu þeir skjóta sum af saklausu börnunum okkar.“ Hann sagði söfnuðinum að eina leiðin út úr þessu væri að fremja „byltingarkennt sjálfs­ víg“. Ein kona tók til máls og and­ mælti honum en hann færði rök á móti og söfnuðurinn setti sig þá upp á móti konunni. Þegar frétt­ ist að Ryan væri dáinn lá Jones enn meira á og virtist enn æstari. Hann hvatti safnaðarmeðlimi til sjálfsvígs og sagði að ef hermenn kæmu myndu þeir pynta börnin og gamla fólkið, það væri ekki hægt að lifa við. Stórir pottar voru fylltir af gos­ drykkjum og blásýra og valíum sett út í. Kornabörn og börn voru fyrst færð að pottunum og sprautur notaðar til að koma eitruðum drykknum upp í þau. Því næst drukku mæðurnar eitr­ ið. Því næst var röðin komin að öðrum safnaðarmeðlimum. Sumir voru dánir áður en aðr­ ir gátu drukkið eitrið. Ef fólk var ekki samvinnuþýtt sáu vopnaðir verðir um að „hvetja“ það áfram. Það tók fólk um fimm mínútur að deyja eftir að það drakk eitrið. 912 manns létust af völd­ um eitursins. Af þeim voru 276 börn. Jones lést af völdum skots í höfuðið en ekki er vitað hvort hann skaut sig sjálfur eða ekki. Í heildina létust 918 manns á flug­ vellinum og í Jonestown. Örfáir lifðu þetta af, annaðhvort með því að flýja inn í skóginn eða fela sig í búðunum. Af hverju? Líklegast fæst aldrei svar við af hverju fólkið kaus að fylgja Jones í dauðann og svipta sig lífi en eins og svo oft er raunin í trúar­ söfnuðum virðist sem leiðtoginn, Jones, hafi haft eitthvert heljartak á safnaðarmeðlimum og hafi get­ að stýrt þeim nánast að vild. n JONESTOWN-FJÖLDAMORÐIN OG FJÖLDASJÁLFSVÍGIN Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is n Af hverju fylgdu 918 manns leiðtoga sínum til Gvæjana og sviptu sig lífi?„Þegar fall- hlífarher- mennirnir koma munu þeir skjóta sum af saklausu börnunum okkar Jonestown 909 meðlimir sértrúarsafnaðar dóu. Jim Jones Viðstaddur mót- mæli í San Francisco árið 1977.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.