Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 9
MENNING 928. september 2018 Leikhóparnir Miðnætti og Lost Watch fyrir barnasýninguna Á eigin fótum í Tjarnarbíó; leikstjóri Agnes Wild. Leikendur eru bæði fólk og brúður. Sagan gerist fyrir löngu og segir með látbragði, tónlist og frum­ legri sviðsvinnu, en nánast orðalaust, frá því þegar Ninna fer sex ára í sveit til vandalausra. Hugarangri barnsins er komið vel til skila á hæfilega kímilegan hátt og afar vel sýnt hvernig hún aðlag­ ast smám saman lífinu í sveitinni. Fyrst eru það dýrin á bænum sem ná til hennar. Þau urðu til úr alls konar tilfallandi dóti fyrir framan augu heillaðra leikhúsgesta og voru gríðarlega skemmtilega gerð. Þetta er spennandi og fróðleg saga sem gaman er að tala um við börn auk þess sem hún geymir sanna leikhústöfra. Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Gísli Örn Garðarsson og Ólafur Egill Egilsson fyrir Elly í uppfær- slu Vesturports og Borgarleik- hússins. Lífshlaupi einnar dáðustu dægur­ lagasöngkonu landsins eru gerð framúrskarandi skil í hugvitsam­ legu handriti Gísla Arnar og Ólafs Egils. Þar gegnir tónlistin lykilhlut­ verki, en höfundarnir hafa valið ríflega fjörutíu lög frá ferli Ellyjar sem flutt eru að hluta eða í heild til að skapa réttu stemninguna hverju sinni. Gísli Örn heldur sem leik­ stjóri utan um alla þræði uppfær­ slunnar af miklu öryggi og sterkri listrænni sýn þar sem hjartað og húmorinn ráða ríkjum í þeim leik­ húsgaldri sem skapaður er. Katrín Halldóra geislar í hlutverki Ellyjar, enda býr hún yfir miklum sviðs­ sjarma, góðum kómískum tíma­ setningum og stórkostlegri rödd sem snert hefur streng í hjarta þjóðarinnar. Eggert Þorleifsson fyrir tit- ilhlutverkið í Föðurnum eftir Florian Zeller undir stjórn Krist- ínar Jóhannesdóttur í Kassa Þjóðleikhússins. Eggert leikur verkfræðinginn André, reffilegan fullorðinn mann sem þolir illa tilraunir dóttur sinn­ ar til að ráða handa honum hús­ hjálp. En fljótlega kemur í ljós að André stríðir við minnisglöp sem verða æ verri þegar líður á verk­ ið. Áhorfendur upplifa sterkt líð­ an hans í viðsjárverðum heimi þar sem allt er ótryggt, ástvinir koma og hverfa, ókunnugt fólk legg­ ur undir sig híbýli hans, er hann heima hjá sér eða annars stað­ ar? Það er jafnvel talað við hann eins og hann sé fáviti. Eggert sýn­ ir glöggt hæga leið manns inn í tómið, yfirborðshroka hans með­ an hann heldur ákveðnu sjálfsör­ yggi, vaxandi óöryggi uns kemur að hjartaskerandi niðurbroti að lokum. Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir hlutverk sitt í Guð blessi Ísland eftir Mikael Torfason og Þorleif Örn Arnarsson í leikstjórn Þor- leifs Arnar Arnarssonar á Stóra sviði Borgarleikhússins. Brynhildur fer með hlutverk Dav­ íðs Oddssonar í verki sem byggt er á Rannsóknarskýrslu Alþingis. Hún birtist fyrst í verkinu stand­ andi á þaki líkbíls sem ekur fram á sviðið og ryður um leið frá sér gríðarlegum fjölda af vandlega uppröðuðum hvítum garðstól­ um. Margt mátti lesa úr þessari innkomu sem sannarlega var ein sú magnaðasta á árinu. Bryn­ hildur nýtti sér kraft innkomunn­ ar og hélt áhorfendum í hendi sér til loka með sívaxandi dýpt og óvæntum vinklum, allt þar til hún afklæddist hlutverkinu í sýningar­ lok. Persónusköpun hennar í hlut­ verki Davíðs var svo tæknilega fáguð, margslungin og skemmti­ leg að ekki verður séð að nokkur hefði getað betur farið í hans gervi. Tyrfingur Tyrfingsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Ólafur Egill Egilsson fyrir Kartöfluæt- urnar á Litla sviði Borgarleik- hússins. Tyrfingur hefur einstakt lag á að beina sjónum áhorfenda að flókinni dýnamík ofbeldissam­ banda. Í Kartöfluætunum mat­ reiðir hann meðvirkni, stjórnsemi og leyndarhyggju með sótsvörtum húmor, laus við alla pólitíska rétt­ hugsun. Uppfærsla Borgarleik­ hússins var kraftmikil og ögrandi undir úthugsaðri leikstjórn Ólafs Egils þar sem persónur fóru aldrei stystu leið að markmiði sínu. Sig­ rún Edda hafði meistaraleg tök á hinni margræðu ættmóður sem notaði óhikað sjarma sinn og kyn­ þokka til að sveigja aðra að vilja sínum. Valdbeitingin var klædd sem umhyggja, en tilfinningaleg­ ur kuldi persónunnar og andleg vannæring leyndi sér ekki í með­ förum Sigrúnar Eddu. Í dómnefnd sátu Bryndís Lofts- dóttir, Silja Björk Huldudóttir og Silja Aðalsteinsdóttir RÁIN Hafnargata 19a Keflavík S. 421 4601 FERSK OG FALLEG ÞJÓNUSTAR ÞIG Í MAT OG DRYKK TILNEFNINGAR TIL MENNINGARVERÐLAUNA DV 2017 Leiklist Tyrfingur Tyrfingsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Ólafur Egill Egilsson eru tilnefnd fyrir verkið Kartöfluæturnar. Eggert Þorleifsson Leikhóparnir Miðnætti og Lost Watch eru tilnefndir fyrir barnasýn- inguna Á eigin fótum. Framhald á síðu 10 Íris Ellenberger
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.