Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 57
TÍMAVÉLIN 5728. september 2018 Eftir yfirheyrslur var þeim sleppt og skömmu síðar var nafn manns- ins sem lést opinberað. Vaidas Jucevicius, 27 ára gamall frá Lit- háen. Þeir höfðu sést á ferðalagi á leigðum Pajero-jeppa en sögðust aðeins hafa verið í heimsókn, enda Grétar frá Neskaupstað. Eftir frekari yfirheyrslur og rann- sókn voru þremenningarnir hand- teknir föstudaginn 20. febrúar og leitað á heimilum þeirra á höfuð- borgarsvæðinu og í bifreiðum. Í einni bifreiðinni fannst blóð úr Vaidasi og voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þremenningarnir voru yfir- heyrðir næstu daga og ekki leið á löngu þar til Grétar játaði aðild sína að málinu. Þeir voru þó alls ekki sammála um málavöxtu og almenningur fékk lítið að vita um framvindu málsins. Hjá lögreglu voru málin þó tekin að skýrast og miðvikudaginn 24. febrúar var þeim sleppt úr varðhaldi en biðu ákæru. Dauðastríðið í Kópavogi Tomas hafði verið búsettur á Ís- landi í tæplega þrjú ár og hann var sá sem fékk Vaidas til að flytja tæp- lega 225 grömm af amfetamíni til Íslands. Efnunum var smyglað frá Litháen til Kaupmannahafnar og Vaidas flaug síðan með þau inn- vortis til Keflavíkur. Íslendingarnir ætluðu að hagnast sem milligöngu- menn og sjá um dreifingu hér á landi. Yfirskin þessarar starfsemi var félag að nafni MMRO, réttinda- samtök sjávar spendýra, en engin góðgerðarstarfsemi var nokkurn tímann unnin í því félagi. Mánudagskvöldið 2. febrú- ar lenti vélin í Keflavík og þrem- enningarnir keyrðu á völlinn til að sækja Vaidas. Grétar ók bílnum og Jónas fór inn með spjald með nafni Vaidasar. Hann fann hann hins vegar ekki og óku þeir aftur til Reykja víkur en höfðu þá samband við Vaidas sem hitti þá við Hótel Loftleiðir. Þaðan lá leiðin að heimili Tom- asar við Furugrund í Kópavogi og biðu þeir eftir því að náttúran skil- aði efnunum úr Vaidasi. Ekkert kom niður úr Vaidasi og á þriðjudegin- um fór að hann að veikjast. Hann fékk sára verki í magann, kviðurinn þandist út og hann kastaði upp. Fé- lagarnir gripu til þess ráðs að gefa honum hægðalosandi lyf en ekkert hreyfðist. Þess í stað veiktist Vaidas meira og meira. Ástandið í Furugrundinni var nú orðið alvarlegt. Alla vikuna vöktu þeir yfir honum, gáfu honum Contalgin til að lina kvalirnar og Grétar lagðist á bæn með honum. Aldrei fóru þeir með hann til lækn- is heldur ákváðu þeir að koma hon- um úr landi. Föstudagsmorguninn 6. febrúar óku þremenningarnir með hann í átt að Keflavíkurflugvelli en Grétar yfirgaf bifreiðina við Dalveg í Kópa- vogi. Vaidas hins vegar orðinn svo veikur að hann treysti sér ekki til þess að fara í flugið. Á þessum tíma- punkti var hann farinn að æla blóði. Við Grindavíkurafleggjarann sneru þeir bílnum við, sóttu Grét- ar á heimili hans og héldu aftur í Furu grundina. Skömmu eftir kom- una þangað lést Vaidas. Illviðri á Austurlandi Félagarnir þrír stóðu nú uppi með lík sem þeir þurftu að losa sig við. Skömmu síðar settu þeir lík Vai- dasar í plastpoka og vöfðu filtteppi utan um það, bundu bönd utan um og límdu. Tomas vildi grafa líkið í útjaðri Reykjavíkur en ákveðið var að keyra með líkið austur. Settu þeir líkið í skottið á Pajero-jeppa sem þeir höfðu leigt. Grétar flaug samdægurs til Neskaupstaðar þar sem móðir hans bjó en Jónas og Tomas keyrðu af stað austur. Þessa helgi var blindbylur á Austurlandi og ákváðu þeir að bíða hann af sér á Djúpavogi. Þar gistu þeir á Hótel Framtíð í tvær nætur en héldu sig að mestu leyti inni á her- bergi og létu færa sér vistir þangað. Á sunnudeginum keyrðu þeir áleiðis til Neskaupstaðar og hittu Grétar þar síðdegis. Þeir óku um bæinn í leit að góðum stað til að losa sig við líkið og ákváðu loks að setja líkið í höfnina. Um miðnætti óku þeir að netagerðarbryggjunni og tóku líkið úr skottinu. Þeir fjarlægðu teppið og bundu kaðal um háls, búk og fætur. Því næst festu þeir keðju utan um háls og þungan gúmmí- bobbing við fætur. Það var á þessum tíma að Grétar dró upp hnífinn og stakk líkið fimm sinnum. Vangaveltur höfðu risið um hvort stungurnar hefðu verið ör- væntingarfull tilraun til að ná efn- unum út úr líkinu en í rauninni var þetta gert til að líkið þembdist ekki út og flyti. Eftir þetta sökktu þeir lík- inu í sjóinn og óku aftur til Reykja- víkur. Hótanir frá Litháen Eins og áður sagði játaði Grétar þátt sinn í málinu og skömmu síðar ját- aði Tomas en sögum þeirra bar þó ekki saman. Til dæmis sagði Grétar að hann hefði ekki vitað að líkið yrði flutt austur, hann hefði flogið þang- að til að komast úr aðstæðunum. Tomas fullyrti hins vegar að Grétar hefði skipulagt flutninginn og flogið austur til að undirbúa komu þeirra. Jónas neitaði aðild og þvertók fyrir að hafa vitað að líkið væri meðferðis í Pajero-jeppanum. Krufning benti til þess að vel hefði verið hægt að bjarga Vaidasi hefðu þeir gripið fyrr inn í og komið hon- um undir læknishendur. Mjógirnis- veggurinn var ekki brostinn og engin drep í líffærum. Grétar sagðist hafa viljað fara með Vaidas á spítala en hótanir að utan hefðu stöðvað hann. Tomas hefði verið í stöðugu símasambandi við samverkamenn sína í Litháen, mafíuna, sem hefðu bannað þeim að ljóstra upp um innflutninginn. Þessar hótanir hafi ekki einungis beinst gegn þeim sjálfum heldur ást- vinum. Grétar setti þá kröfu að lög- reglan tryggði öryggi unnustu hans áður en hann játaði. Sjálfur hafði hann verið í Litháen og séð hvernig glæpaklíkur þar í landi höguðu sér. „Ég braut af mér og það er eitt- hvað sem verð að lifa með,“ sagði hann í opinskáu viðtali við Frétta- blaðið 27. mars. „Ég var búinn að ljúga og koma óheiðarlega fram við mitt fólk. Ég var fastur í stórum lyga- vef og það var mikill léttir að játa glæpinn fyrir lögreglunni.“ Hann sagði að tíminn þar til lík- ið fannst hafi verið honum erfiður og hann hefði verið manna fegnastur þegar upp komst hver maðurinn var. „Ég hugsaði stöðugt til fjölskyldu Vaidasar. Mér fannst það hræðileg tilhugsun að ef til vill kæmist fólkið hans aldrei að því hvað orðið hefði um hann.“ Jafn sekir Grétar, Jónas og Tomas voru allir ákærðir fyrir fíkniefnainnflutning, brot gegn lífi og líkama Vaidasar og fyrir ósæmilega meðferð á líki hans. Auk þess var Grétar ákærður fyr- ir brot á vopnalögum því við húsleit hjá honum fundust ólöglegur riffill, lásbogi, kylfa og fjölmargir fjaður- og kasthnífar. Mánudaginn 18. október hófst aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jónas neitaði enn sök og sagðist hafa ætlað að hitta Vaidas til að eiga við hann sumarbústaða- viðskipti. Hann hafi fyrst séð hann morguninn sem hann dó. Tomas neitaði fyrir dómi að vera tengdur litháískri glæpaklíku. „Maf- ía er bara til í bíómyndum,“ sagði hann. Tveir frændur Grétars, sem hittu Jónas og Tomas á leiðinni aust- ur, sögðu „ógeðslega vonda lykt“ hafa verið í Pajero-jeppanum. Dómur var uppkveðinn í mál- inu þann 9. nóvember og var Grétar einn viðstaddur uppkvaðninguna. Töldu dómarar að þremenningarn- ir hefðu gerst sekir um fíkniefnainn- flutning og bæru ábyrgð í dauða Vai- dasar. Þeir hefðu átt að grípa inn í og koma honum undir læknis hendur. Allir fengu þeir jafn langa dóma, tveggja og hálfs árs fangelsisvist. Töldu þeir sannað að Jónas hefði átt aðild að málinu þrátt fyrir neitun hans. Einnig að Grétar hefði lagt á ráðin um að flytja líkið austur. Dóm- ararnir neituðu hins vegar ekki fyrir að ógn frá mafíunni hefði verið til staðar. Hæstiréttur Íslands staðfesti dóminn þann 28. apríl árið 2005. Ólíkar áttir Tomasi var veitt reynslulausn í september árið 2006 en var hon- um þá jafnframt vísað úr landi af Útlendingastofnun. Rúmlega ári eftir að hann fór úr landi var hann handtekinn á Íslandi fyrir að brjóta endurkomubannið en þá gekk hann undir nafninu Tomas Arlauskas. Við handtökuna fundust 25 grömm af amfetamíni á honum. Jónas Ingi kom aftur við sögu í stóru sakamáli árið 2009. Þá voru hann og Tindur Jónsson sakfelldir fyrir að standa að framleiðslu am- fetamínefna í stórum stíl í Hafnar- firði. Lagt var hald á nægt efni til að framleiða rúm 14 kílógrömm af hreinu amfetamíni og með því að drýgja það hefði verið hægt að fram- leiða 353 kíló. Jónas játaði aðild og hlaut tíu ára dóm en Tindur átta ár. Grétar lauk afplánun á Vernd í febrúar árið 2007 og sneri sér að afl- raunum. Hann hefur meðal annars tekið þátt í keppninni Sterkasti mað- ur Íslands í nokkur skipti.n MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK DV 14. febrúar 2004 Teikning af líkinu í höfninni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.