Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 57
TÍMAVÉLIN 5728. september 2018
Eftir yfirheyrslur var þeim sleppt
og skömmu síðar var nafn manns-
ins sem lést opinberað. Vaidas
Jucevicius, 27 ára gamall frá Lit-
háen. Þeir höfðu sést á ferðalagi á
leigðum Pajero-jeppa en sögðust
aðeins hafa verið í heimsókn, enda
Grétar frá Neskaupstað.
Eftir frekari yfirheyrslur og rann-
sókn voru þremenningarnir hand-
teknir föstudaginn 20. febrúar og
leitað á heimilum þeirra á höfuð-
borgarsvæðinu og í bifreiðum. Í
einni bifreiðinni fannst blóð úr
Vaidasi og voru þeir úrskurðaðir í
gæsluvarðhald.
Þremenningarnir voru yfir-
heyrðir næstu daga og ekki leið
á löngu þar til Grétar játaði aðild
sína að málinu. Þeir voru þó alls
ekki sammála um málavöxtu og
almenningur fékk lítið að vita um
framvindu málsins. Hjá lögreglu
voru málin þó tekin að skýrast og
miðvikudaginn 24. febrúar var
þeim sleppt úr varðhaldi en biðu
ákæru.
Dauðastríðið í Kópavogi
Tomas hafði verið búsettur á Ís-
landi í tæplega þrjú ár og hann var
sá sem fékk Vaidas til að flytja tæp-
lega 225 grömm af amfetamíni til
Íslands. Efnunum var smyglað frá
Litháen til Kaupmannahafnar og
Vaidas flaug síðan með þau inn-
vortis til Keflavíkur. Íslendingarnir
ætluðu að hagnast sem milligöngu-
menn og sjá um dreifingu hér á
landi. Yfirskin þessarar starfsemi
var félag að nafni MMRO, réttinda-
samtök sjávar spendýra, en engin
góðgerðarstarfsemi var nokkurn
tímann unnin í því félagi.
Mánudagskvöldið 2. febrú-
ar lenti vélin í Keflavík og þrem-
enningarnir keyrðu á völlinn til
að sækja Vaidas. Grétar ók bílnum
og Jónas fór inn með spjald með
nafni Vaidasar. Hann fann hann
hins vegar ekki og óku þeir aftur til
Reykja víkur en höfðu þá samband
við Vaidas sem hitti þá við Hótel
Loftleiðir.
Þaðan lá leiðin að heimili Tom-
asar við Furugrund í Kópavogi og
biðu þeir eftir því að náttúran skil-
aði efnunum úr Vaidasi. Ekkert kom
niður úr Vaidasi og á þriðjudegin-
um fór að hann að veikjast. Hann
fékk sára verki í magann, kviðurinn
þandist út og hann kastaði upp. Fé-
lagarnir gripu til þess ráðs að gefa
honum hægðalosandi lyf en ekkert
hreyfðist. Þess í stað veiktist Vaidas
meira og meira.
Ástandið í Furugrundinni var
nú orðið alvarlegt. Alla vikuna
vöktu þeir yfir honum, gáfu honum
Contalgin til að lina kvalirnar og
Grétar lagðist á bæn með honum.
Aldrei fóru þeir með hann til lækn-
is heldur ákváðu þeir að koma hon-
um úr landi.
Föstudagsmorguninn 6. febrúar
óku þremenningarnir með hann í
átt að Keflavíkurflugvelli en Grétar
yfirgaf bifreiðina við Dalveg í Kópa-
vogi. Vaidas hins vegar orðinn svo
veikur að hann treysti sér ekki til
þess að fara í flugið. Á þessum tíma-
punkti var hann farinn að æla blóði.
Við Grindavíkurafleggjarann
sneru þeir bílnum við, sóttu Grét-
ar á heimili hans og héldu aftur í
Furu grundina. Skömmu eftir kom-
una þangað lést Vaidas.
Illviðri á Austurlandi
Félagarnir þrír stóðu nú uppi með
lík sem þeir þurftu að losa sig við.
Skömmu síðar settu þeir lík Vai-
dasar í plastpoka og vöfðu filtteppi
utan um það, bundu bönd utan um
og límdu. Tomas vildi grafa líkið í
útjaðri Reykjavíkur en ákveðið var
að keyra með líkið austur. Settu þeir
líkið í skottið á Pajero-jeppa sem
þeir höfðu leigt.
Grétar flaug samdægurs til
Neskaupstaðar þar sem móðir hans
bjó en Jónas og Tomas keyrðu af stað
austur. Þessa helgi var blindbylur á
Austurlandi og ákváðu þeir að bíða
hann af sér á Djúpavogi. Þar gistu
þeir á Hótel Framtíð í tvær nætur en
héldu sig að mestu leyti inni á her-
bergi og létu færa sér vistir þangað.
Á sunnudeginum keyrðu þeir
áleiðis til Neskaupstaðar og hittu
Grétar þar síðdegis. Þeir óku um
bæinn í leit að góðum stað til að losa
sig við líkið og ákváðu loks að setja
líkið í höfnina. Um miðnætti óku
þeir að netagerðarbryggjunni og
tóku líkið úr skottinu. Þeir fjarlægðu
teppið og bundu kaðal um háls, búk
og fætur. Því næst festu þeir keðju
utan um háls og þungan gúmmí-
bobbing við fætur.
Það var á þessum tíma að Grétar
dró upp hnífinn og stakk líkið fimm
sinnum. Vangaveltur höfðu risið um
hvort stungurnar hefðu verið ör-
væntingarfull tilraun til að ná efn-
unum út úr líkinu en í rauninni var
þetta gert til að líkið þembdist ekki
út og flyti. Eftir þetta sökktu þeir lík-
inu í sjóinn og óku aftur til Reykja-
víkur.
Hótanir frá Litháen
Eins og áður sagði játaði Grétar þátt
sinn í málinu og skömmu síðar ját-
aði Tomas en sögum þeirra bar þó
ekki saman. Til dæmis sagði Grétar
að hann hefði ekki vitað að líkið yrði
flutt austur, hann hefði flogið þang-
að til að komast úr aðstæðunum.
Tomas fullyrti hins vegar að Grétar
hefði skipulagt flutninginn og flogið
austur til að undirbúa komu þeirra.
Jónas neitaði aðild og þvertók fyrir
að hafa vitað að líkið væri meðferðis
í Pajero-jeppanum.
Krufning benti til þess að vel hefði
verið hægt að bjarga Vaidasi hefðu
þeir gripið fyrr inn í og komið hon-
um undir læknishendur. Mjógirnis-
veggurinn var ekki brostinn og engin
drep í líffærum.
Grétar sagðist hafa viljað fara
með Vaidas á spítala en hótanir að
utan hefðu stöðvað hann. Tomas
hefði verið í stöðugu símasambandi
við samverkamenn sína í Litháen,
mafíuna, sem hefðu bannað þeim
að ljóstra upp um innflutninginn.
Þessar hótanir hafi ekki einungis
beinst gegn þeim sjálfum heldur ást-
vinum. Grétar setti þá kröfu að lög-
reglan tryggði öryggi unnustu hans
áður en hann játaði. Sjálfur hafði
hann verið í Litháen og séð hvernig
glæpaklíkur þar í landi höguðu sér.
„Ég braut af mér og það er eitt-
hvað sem verð að lifa með,“ sagði
hann í opinskáu viðtali við Frétta-
blaðið 27. mars. „Ég var búinn að
ljúga og koma óheiðarlega fram við
mitt fólk. Ég var fastur í stórum lyga-
vef og það var mikill léttir að játa
glæpinn fyrir lögreglunni.“
Hann sagði að tíminn þar til lík-
ið fannst hafi verið honum erfiður og
hann hefði verið manna fegnastur
þegar upp komst hver maðurinn var.
„Ég hugsaði stöðugt til fjölskyldu
Vaidasar. Mér fannst það hræðileg
tilhugsun að ef til vill kæmist fólkið
hans aldrei að því hvað orðið hefði
um hann.“
Jafn sekir
Grétar, Jónas og Tomas voru allir
ákærðir fyrir fíkniefnainnflutning,
brot gegn lífi og líkama Vaidasar og
fyrir ósæmilega meðferð á líki hans.
Auk þess var Grétar ákærður fyr-
ir brot á vopnalögum því við húsleit
hjá honum fundust ólöglegur riffill,
lásbogi, kylfa og fjölmargir fjaður- og
kasthnífar.
Mánudaginn 18. október hófst
aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Jónas neitaði enn sök
og sagðist hafa ætlað að hitta Vaidas
til að eiga við hann sumarbústaða-
viðskipti. Hann hafi fyrst séð hann
morguninn sem hann dó.
Tomas neitaði fyrir dómi að vera
tengdur litháískri glæpaklíku. „Maf-
ía er bara til í bíómyndum,“ sagði
hann. Tveir frændur Grétars, sem
hittu Jónas og Tomas á leiðinni aust-
ur, sögðu „ógeðslega vonda lykt“
hafa verið í Pajero-jeppanum.
Dómur var uppkveðinn í mál-
inu þann 9. nóvember og var Grétar
einn viðstaddur uppkvaðninguna.
Töldu dómarar að þremenningarn-
ir hefðu gerst sekir um fíkniefnainn-
flutning og bæru ábyrgð í dauða Vai-
dasar. Þeir hefðu átt að grípa inn í og
koma honum undir læknis hendur.
Allir fengu þeir jafn langa dóma,
tveggja og hálfs árs fangelsisvist.
Töldu þeir sannað að Jónas hefði
átt aðild að málinu þrátt fyrir neitun
hans. Einnig að Grétar hefði lagt á
ráðin um að flytja líkið austur. Dóm-
ararnir neituðu hins vegar ekki fyrir
að ógn frá mafíunni hefði verið til
staðar.
Hæstiréttur Íslands staðfesti
dóminn þann 28. apríl árið 2005.
Ólíkar áttir
Tomasi var veitt reynslulausn í
september árið 2006 en var hon-
um þá jafnframt vísað úr landi af
Útlendingastofnun. Rúmlega ári
eftir að hann fór úr landi var hann
handtekinn á Íslandi fyrir að brjóta
endurkomubannið en þá gekk hann
undir nafninu Tomas Arlauskas. Við
handtökuna fundust 25 grömm af
amfetamíni á honum.
Jónas Ingi kom aftur við sögu í
stóru sakamáli árið 2009. Þá voru
hann og Tindur Jónsson sakfelldir
fyrir að standa að framleiðslu am-
fetamínefna í stórum stíl í Hafnar-
firði. Lagt var hald á nægt efni til
að framleiða rúm 14 kílógrömm af
hreinu amfetamíni og með því að
drýgja það hefði verið hægt að fram-
leiða 353 kíló. Jónas játaði aðild og
hlaut tíu ára dóm en Tindur átta ár.
Grétar lauk afplánun á Vernd í
febrúar árið 2007 og sneri sér að afl-
raunum. Hann hefur meðal annars
tekið þátt í keppninni Sterkasti mað-
ur Íslands í nokkur skipti.n
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
DV 14. febrúar 2004 Teikning af líkinu í höfninni.