Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 34
Íslensk framleiðsla 28. september 2018KYNNINGARBLAÐ
Þóra Björk Schram hefur fengist við listsköpum meirihluta ævi sinnar en á síðustu árum hefur
sköpunarkraftur hennar fengið sífellt
meiri útrás í fallegum nytjahlutum, til
dæmis veggskúlptúrum, stólkollum
með fögrum sessum, rekaviðarkollum
með sessum í sauðalitum og litríkum
púðum.
„Ég fæst við málverkið og vatnslitina
inni á milli en ég er textílhönnuður að
mennt og stefndi alltaf leynt og ljóst
að iðnhönnun eða vöruhönnun,“ segir
Þóra Björk sem lærði í Bandaríkjunum
auk þess að ljúka textílnámi frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands. Yfirfær-
slan í vöruhönnun tók mikinn kipp fyrir
örfáum árum þegar Þóra Björk komst
í stærri vinnuaðstöðu: „Ég var með
vinnustofu á Korpúlfsstöðum í átta ár
og var þar í dásamlegu umhverfi. En ég
flutti mig um sett í Gufunes fyrir þrem-
ur árum. Ég fékk þar stóra vinnustofu í
nýja lista- og kvikmyndaþorpinu sem er
að rísa þar. Þá fór ég að geta víkkað út
vinnuna og gert mun stærri og meira
krefjandi hluti,“ segir Þóra Björk.
Íslensk náttúra – þetta fagra og smáa
„Ég sæki innblásturinn fyrst og
fremst í íslenska náttúru. Tek gjarnan
myndir af plöntum og það heillar mig
að reyna að gefa þessum litlu blóm-
um og jurtum rödd – til
dæmis dýjamosa,
blóð- bergi og
geldinga- hnappi,
svona jurt- um
sem okkur
hættir til að ganga yfir án þess að taka
eftir,“ segir Þóra Björk.
Þóra Björk hefur átt í gefandi sam-
starfi við húsgagnahönnuðinn Ólaf
Þór Erlendsson um hönnun á stólkoll-
um undir merkinu SPOT Iceland. Þóra
Björk hannar sessur á kollana: „Ég nota
þarna íslensku ullina sem ég læt lita og
spinna fyrir mig áður en hún er nýtt í
sessurnar. Ég útfæri mínar hugmyndir
í lit og formi af íslenskum plöntum og
þegar ég er búin að finna plöntuna
gef ég henni gps-punktinn, nákvæma
staðsetningu þar sem ég fékk inn-
blásturinn – og þær upplýsingar fylgja
SPOT kollinum.“
Þóra Björk er einnig þekkt fyrir mjög
fallega púða sem hún hannar. „Við
púðagerðina er ég alveg í núvitundinni
og það er gott að fara í þá til að hvíla
sig á öðru – ég kemst alveg í trans.“
Auk þess hannar Þóra Björk
hljóðskúlptúra, vegg- og gólfteppi sem
tengjast sama efni auk þess að mála
og taka ljósmyndir.
Mæltu þér mót við listamanninn
Nánar má skoða list og hönnun Þóru
Bjarkar á Facebook, Þóra Björk Design,
SPOT Iceland og thorabjorkdesign.is. Til
að þreifa á verkunum og hugsanlega
kaupa eða leggja inn pöntun er gott að
mæla sér mót við Þóru Björk í galler-
íi hennar að Vatnsstíg 3. Er þá fyrst
hringt í listamanninn í síma 822-7510.
Samtalið getur síðan þróast með þeim
hætti að farið er með Þóru Björk upp í
vinnustofu hennar í Gufunesi.
Sjá einnig Instagram-síðu Þóru
Bjarkar: https://www.instagram.com/
thorabjorkdesign/.
ÞÓRA BJÖRK SCHRAM:
Vöruhönnun innblásin af
íslenskri náttúrufegurð