Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 43
Íslensk framleiðsla 28. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Meiri orka, bætt minni, meira þol, aukinn blóðhagur o.fl. eru aðeins örfá dæmi um
það sem fólk sem hefur skrifað um
vörur íslenska fyrirtækisins Pure
Natura á heimasíðu þess, en fyrir-
tækið framleiðir íslensk bætiefni úr
hreinum íslenskum hráefnum, sem
seld eru út um um allan heim.
Vörur fyrirtækisins eru fram-
leiddar úr íslenskum lambainnmat
og kirtlum auk þess sem notaðar
eru íslenskar jurtir í framleiðsluna.
Vörulínan samanstendur í dag af
fjórum vörum, en fyrirtækið vinn-
ur nú að því í samstarfi við MATÍS,
með fjármagni frá Tækniþróunar-
sjóði, að þróa fleiri vörur.
Vinsælasta varan: Pure Liver
„Vinsælasta varan okkar hefur
verið Pure Liver, sem inniheldur
lambalifur, birkiblöð, hvannafræ og
fíflarót og gefur því góðan skammt
af fjölmörgum vítamínum og stein-
efnum sem nauðsynleg eru fyrir
efnaskipti og orkuframleiðslu, s.s.
B-vítamín, járn og A-vítamín, sink,
selen o.fl., á náttúrulegu formi sem
líkaminn þekkir og kann að nýta sér.
Jurtirnar eru svo bólgueyðandi,
vatnslosandi og hreinsandi,“ seg-
ir Hildur Þóra, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
„Næstvinsælasta varan okkar
er svo Pure Power en hún er orku-
aukandi blanda og hentar öllum
sem eru undir miklu álagi, bæði
líkamlegu og andlegu. Pure Power
inniheldur blöndu af lambalifur,
lambahjörtum, íslenskri burnirót og
lífrænum hvítlauk.“
Hugsjónin vekur athygli
Eins og fram hefur komið selur
fyrirtækið nú vörur sínar um allan
heim, þótt enn sé framleiðslan á
smáum skala, í gegnum vefverslun
sína www.purenatura.is, vefversl-
un Amazon í Bandaríkjunum og
dreifingaraðila í Bretlandi, Banda-
ríkjunum og Svíþjóð.
„Það virðist vera sem hugsjón
okkar og hugmyndafræði veki
athygli enda markmið okkar í stóra
samhenginu að bæta heiminn. Við
berum virðingu fyrir skepnunni sem
nýtt er í framleiðsluna og viljum
fullnýta afurðir hennar betur. Með
því að taka aukaafurðir sem annars
yrði hent og nýta þær á þennan
hátt minnkum við einnig matarsó-
un og aukum verðmæti íslenskra
afurða á sama tíma og við bætum
heilsu og vellíðan viðskiptavina okk-
ar,“ segir Hildur Þóra.
Ný vara sem er sérsniðin er fyrir
karlmenn
Sigríður Ævarsdóttir, vöruþró-
unarstjóri fyrirtækisins, segist vera
sérlega spennt fyrir næstu vöru
sem fyrirtækið mun setja á mark-
að en sú vara verður sérsniðin fyrir
karlmenn. Í dag má nálgast vörur
Pure Natura á Íslandi hjá sérvöldum
söluaðilum sem finna má á vef-
síðu Pure Natura og í öllum helstu
heilsuvöruverslunum landsins.
Sjá nánar á purenatura.is
PURE NATURA:
Íslensk framleiðsla sem hefur
áhrif á líðan fólks um allan heim