Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 16
16 28. september 2018FRÉTTIR Samsæriskenningar flugu á opnum fundi Krýsuvíkursamtakanna Í vikunni héldu velunnarar Krýsuvíkursamtakanna opinn fund í húsnæði Samfylkingar- innar í Hafnarfirði. Staða sam- takanna er tvísýn því á dögunum var tilkynnt að styrkur ríkisins til samtakanna yrði ekki endurnýj- aður. Blaðamaður DV mætti á fundinn og fylgdist með aðstand- endum samtakanna henda á milli sín samsæriskenningum um annarlegar hvatir á bak við frétta- flutning blaðsins. Ein þeirra var sú að DV væri að liðsinna lögmanni sem ásældist fasteign samtak- anna. Stórfé í glæsikerru Að undanförnu hefur DV ítar- lega fjallað um málefni Krýsu- víkursamtakanna og þau ýmsu mál sem hafa komið upp varð- andi rekstur samnefnds með- ferðarheimilis. Á síðasta ári var Krýsuvíkursamtökunum úthlut- að 106 milljónum á fjárlögum. Rúmar níu milljónir fóru í glæsi- kerru fyrir forstöðumann með- ferðarheimilisins á sama tíma og Sigurlína Davíðsdóttir, stjórnar- formaður Krýsuvíkursamtakanna, hafði kvartað undan hversu lítið fé samtökin hefðu á milli hand- anna. Það var ekki einu sinni hægt að kaupa nagladekk fyrir bílinn sem ferjar ráðgjafa og aðra starfs- menn upp í Krýsuvík. Á sama tíma voru keypt dekk fyrir þrjú hund- ruð þúsund undir glæsikerruna. Ótal heimildarmenn DV upplýstu að Þorgeir Ólason, forstöðumað- ur heimilisins, hafi átt í óeðlileg- um samskiptum við kvenkyns skjólstæðinga heimilisins, jafnvel ástarsamböndum. Sigurlína Dav- íðsdóttir hefur staðfest það og Þor- geir var sendur í tveggja mánaða leyfi og sneri svo aftur til starfa. DV sagði einnig frá þremur öðr- um starfsmönnum sem hafa átt kynferðislegt samneyti við skjól- stæðinga. Einn þeirra hefur nú þegar verið kærður til lögreglu. Á fundinum gátu áhugasamir spurt stjórnarmeðlimi út í framtíð samtakanna og stöðuna sem kom- in er upp eftir að Sjúkratryggingar Íslands sögðu upp 120 milljóna króna samningi við samtökin. Um 15 manns mættu á fundinn, meðal annars fyrrverandi skjólstæðingar Krýsuvíkur. Fljótlega eftir að fund- urinn hófst spurði einn fundar- gestanna hvort Lovísa og Þorgeir myndu starfa áfram fyrir samtök- in ef þeim yrði bjargað. Svaraði þá einn stjórnarmanna á þá leið að allt væri óvíst í þeim málum og engin ákvörðun hafi verið tek- in varðandi það. Bætti þá sami fundargesturinn við að þau sætu á þessum fundi vegna þeirra frétta sem DV hefði skrifað um mál- efni Krýsuvíkur og þau alvarlegu mál sem sviðsljósinu hefði ver- ið beint að. „Við sitjum hérna inni út af ákveðnu máli,“ sagði fundar- gesturinn. Greip þá einn stjórnar- manna inn í og sagði að fréttaum- fjöllunin hefði ekkert að gera með þá stöðu sem samtökin væru í: „Við sitjum hérna aðallega út af því að afstaða stjórnvalda hefur breyst og það á ekkert skylt við þetta mál.“ Fundargesturinn var þá fljót- ur að svara og sagði: „Þessi fundir hérna væri ekki ef þetta mál hefði ekki komið upp um Krýsuvík.“ Þá sagði stjórnarmaðurinn: „Þessi fundur myndi vera vegna þess að við stöndum í baráttu við stjórn- völd, það er stóra málið.“ Fundar- gesturinn sagði þá að bragði: „Út af hlutum sem gerðust inn- an Krýsuvíkur.“ Svar áðurnefnds stjórnarmanns var: „Nei, nei, nei.“ Að aðstoða lögfræðing út í bæ Mikið var rætt á fundinum um fréttaumfjöllun DV um Krýsuvík. Á einum tímapunkti hófst um- ræða sem snerist um hver væri hin raunverulega ástæða fyrir skrif- um DV, það hlyti að vera eitthvert markmið. Upplýsti þá einn stjórn- armanna að samtökunum hefði borist kauptilboð frá lögfræðingi úti í bæ í fasteign samtakanna. „Er þetta einstaklingur sem langar að jarða þessa stofnun? Mig langar að vita hvort það er eitthvað sem hangir þarna á spýt- unni,“ spurði einn fundargestur- inn. Svar eins stjórnarmanna var: „Ég er að viss um það. Það er ekk- ert launungarmál að það er lög- fræðingur úti í bæ sem hefur lang- að að eignast húsið.“ Annar stjórnarmaður hélt þá umræðunni um DV áfram: „Þeir hakka á sömu vitleysunni í grein eftir grein, sem er haugalygi og vit- leysa. Ég skil ekki hver hvatinn er bak við þessi skrif og ég lít á þetta einfaldlega sem mannvonsku. Þeir eru að skrifa um einhvern bíl sem átti að vera gefinn einhverj- um og þannig vitleysu, þá hugsar maður hvort það sé eitthvað ann- að bak við þetta.“ Falleinkunn frá Landlækni Landlæknir gerði úttekt á starf- semi og meðferð heimilisins árið 2016 og gerði nokkrar alvarlegar athugasemdir. Hálfu ári síðar fylgdi Landlæknir úttektinni eftir en þá kom í ljós að stjórnendur höfðu virt athugasemdir hans að vettugi. Það virðist þó ekki hafa haft nein- ar afleiðingar gagnvart Landlækni eða velferðarráðuneytinu sem veitir heimilinu fjárframlög. Þvert á móti, því fjárframlögin hafa auk- ist frá því úttektin var gerð. Helsta gagnrýni Landlæknis var að engir starfsmenn væru á heimilinu eftir klukkan fjögur á daginn og enginn um helgar. Afstaða stjórnenda heimilisins var og er enn sú að því fyrirkomulagi verði ekki breytt. Einnig benti Landlæknir á að það vantaði gæðahandbók og skrán- ingarkerfi ásamt því að það vant- aði fleiri heilbrigðisstarfsmenn. Á fundinum kom fram að búið væri að koma upp bæði skráningarkerfi og gæðahandbók, en ekki hafi ver- ið hægt að fara að kröfum Land- læknis vegna annarra mála og sökum fjárskorts. Þann 31. janúar sendi Landlæknir bréf þess efnis að embættið gæti ekki sætt sig við að á Krýsuvík yrði rekin heilbrigð- isstofnun, þar sem samtökin upp- fylltu ekki kröfur embættisins. Stóraukin fjárframlög ríkisins síðustu ár Meðferðarheimilið hefur um árabil notið framlaga frá ríkinu samkvæmt fjárlögum. Lengst af nam framlagið um 70 milljónum króna. Árið 2015 óskaði Sigurlína opinberlega eftir því að framlag- ið yrði hækkað upp í 105 millj- ónir, því „staðan á okkur er sú að við rétt skrimtum.“ Árið 2016 var framlagið hækkað í 106 milljónir og árið 2018 verður það 114 millj- ónir króna. Samtökin keyptu í maí í fyrra stóran pallbíl sem með öllu kost- aði vel á tíundu milljón króna. Kostnaðurinn nemur því tæplega 10 prósentum af því fjárframlagi sem samtökin njóta frá ríkinu á ári. Bíllinn var keyptur fyrir forstöðu- manninn. Árið 2012 keypti Lovísa Christiansen bifreið fyrir 4,7 millj- ónir sem starfsmannabifreið fyrir sig, þó svo skrifstofa hennar væri eingöngu 300 metrum frá heimili hennar í Hafnarfirði. „Ég heyrði ekki þessi ummæli“ Eftir fundinn hafði DV samband við Lovísu Christansen vegna þeirra ummæla sem féllu á fund- inum um DV og fréttaflutning blaðsins. „Við höfum engar sann- anir fyrir því. Við vitum af fólki sem vill kaupa húsnæðið en það er engan veginn tengt DV það fólk,“ sagði Lovísa þegar hún var spurð út í samsæriskenninguna um lögfræðinginn. Blaðamaður minnti þá Lovísu á að einn stjórn- armanna hafi sagt þetta á fundin- um. „Þessi ummæli … hver lét þau falla? Við vitum hver hefur áhuga á að kaupa húsnæðið en það er ekkert DV. Ég heyrði ekki þessi ummæli, ég heyrði ekki þetta, ég man ekki eftir því. Ég veit ekki hvað þú ert að tala um.“ Hún sagði einnig aðspurð hvort svona um- mæli væru eðlileg: „Það er náttúr- lega kannski eðlilegt að fólk velti fyrir sér af hverju þið eru búnir að hafa svona rosalega mikið fyrir því koma höggi á okkur, það eru nátt- úrlega allir sem velta því fyrir sér.“ Blaðamaður spurði hana þá hvort það hefðu verið einhverjar rang- færslur í umfjöllun DV um mál- efni Krýsuvíkur og svaraði hún: „Við höfum ekkert rætt það og ætl- um ekkert að ræða það.“ Lovísa var einnig spurð hvort það hefði verið eðlilegt að fjárfesta í bifreið fyrir um 8,5 milljónir þegar sam- tökin sjálf áttu í fjárhagsörðugleik- um, og þótti henni ekkert óeðlilegt við það. Þegar blaðamaður spurði frekar út í bifreiðakaup samtak- anna skellti Lovísa á hann. n Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is Lovísa Christiansen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.