Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 22
22 FÓLK - VIÐTAL 28. september 2018
Í
október verður kvikmyndin
Undir halastjörnu frumsýnd.
Hún er byggð á líkfundar-
málinu svokallaða frá árinu
2004 sem öll þjóðin fylgdist með.
Myndin er fyrsta leikna kvikmynd
Ara Alexanders Ergis Magnússon-
ar í fullri lengd en hann hefur lengi
starfað við kvikmyndagerð, mynd-
list og fleira. DV ræddi við Ara um
myndina, föðurmissinn og Síberíu
en þaðan fluttist móðir hans til Ís-
lands á sjöunda áratugnum.
Afi dó á vígvellinum
Það styttist í frumsýningardag og
leikstjórinn hefur í mörgu að snú-
ast. Hann þarf að vinda sér til Nor-
egs í lokafrágang á hljóðvinnslu
því allt þarf að vera fullkomið
þegar stóri dagurinn rennur upp.
Við erum stödd á heimili hans í
miðbæ Reykjavíkur í snoturri íbúð
með mörgum listmunum. Listin
hefur fylgt Ara alla tíð og bæði for-
eldrar hans og systkini haft sitt
viðurværi af sköpun.
Æska Ara og uppruni hefur
mótað hann alla tíð. Hann er alinn
upp í leikarafjölskyldu, þriðja barn
Magnúsar Jónssonar og Kjuregej
Alexöndru Argunova sem kemur
frá Rússlandi.
„Mamma kemur frá Jakútíu í
norðausturhluta Síberíu,“ segir
Ari. „Hún missti föður sinn ung.
Afi var einn af þeim sem var send-
ur á vígvöllinn í stríðinu þegar
Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin
og kom aldrei til baka. Hann var
aðeins 27 ára gamall þegar hann
féll í Úkraínu. Stríðið var mikil
blóðtaka fyrir landið og 27 millj-
ónir sem týndu lífi. Ungir strák-
ar úr veiðimannasamfélögum á
borð við Jakútíu voru óspart sett-
ir í fremstu víglínu og notaðir sem
byssufóður.“
Snemma kom í ljós að Kjure-
gej hafði hæfileika á listasviðinu
og vann hún hæfileikakeppni í
sinni heimaborg. Í Sovétríkjun-
um var ætlast til þess að hæfileika-
fólk gengi menntaveginn og sneri
til baka til að auðga sína heima-
byggð. Hún fór því með Síber-
íuhraðlestinni vestur til höfuð-
borgarinnar Moskvu, margra daga
ferðalag, til þess að innritast í há-
skólanám.
„Ég hef oft farið á heimaslóðir
mömmu og tekið upp nokkr-
ar myndir þar. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á þessari bak-
sögu hennar. Í háskólanum í
Moskvu kynntist hún Magnúsi,
föður mínum, sem var þá í kvik-
mynda- og leikstjórnar námi.
Hún var í leiklistarnámi en þau
bjuggu á sömu hæð á mörg hund-
ruð manna háskólagörðum. Þar
var fjöldi skemmtilegs hæfileika-
fólks og einn daginn fékk hann
hana til að strauja skyrtu fyrir sig
fyrir skólaball og þau felldu hugi
saman.“
Magnús og Kjuregej giftust,
bjuggu saman í nokkur ár í Moskvu
og eignuðust þar sitt fyrsta barn.
Árið 1966 fluttu þau til Íslands en
það gekk þó ekki vandræðalaust.
„Þau kláruðu sitt nám í Moskvu
en pabbi missti trúna á sovéska
kerfinu. Það reyndist hins vegar
nokkuð erfitt fyrir mömmu að fá
fararleyfi því það var ætlast til þess
að hún nýtti sitt nám heima. En
það gekk eftir og ég er fæddur á Ís-
landi.“
Öðruvísi fjölskylda
Ari fæddist árið 1968 og ólst upp í
Vogahverfinu í Reykjavík.
„Kristján Davíðsson mynd-
listarmaður bjó í götunni fyrir
neðan mig og sem barn lá maður
á glugganum á vinnustofu hans,
hann var rammgöldróttur líkt og
Thor Vilhjálmsson rithöfundur
sem bjó tveimur götum fyrir ofan
mig. Maður skynjaði sköpunar-
kraftinn og ég bar mikla virðingu
fyrir þeim. Síðar á námsárum mín-
um í París varð Thor einn af mín-
um nánustu vinum enda var hann
þar með annan fótinn. Sannarlega
sakna ég samvista okkar og er með
stóra mynd af honum í eldhúsinu
hjá mér, þannig að Thor er aldrei
langt undan.“
Eins og gefur að skilja umgeng-
ust foreldrar Ara marga listamenn
og annað skapandi fólk og ávallt
var eitthvað á seyði. Faðir hans var
mikill vinur Ragnars Arnalds, Úlfs
Hjörvar, Brynju Benediktsdóttur,
Jökuls Jakobssonar, Þórhildar Þór-
leifsdóttur, Styrmis Gunnarsson-
ar, Vigdísar Finnbogadóttur, Atla
Heimis, Guðrúnar Ásmundsdóttur
og Ara Jósefssonar ljóðskálds, sem
Ari er nefndur eftir. List var haldið
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Ari Alexander gekk
með líkfundarmálið
í maganum í fjórtán ár
n Móðir frá Síberíu n Leikstýrir kvikmynd um líkfundarmálið
n Föðurmissirinn olli gremju n Átti ósýnilegan vin
Samúð með persónunum. „Þegar þú er
barn eða unglingur þá ætlar þú ekkert að verða
dópisti, glæpamaður eða handrukkari.“
MYNDIR: HANNA