Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Blaðsíða 48
48 28. september 2018LÍFSSTÍLL - KYNLÍF Ég skal sjá um að rassskella kvikindið É g veit ekki hvort þetta á erindi í tölvupóst, en þetta er mál sem ég einhvern veginn get ekki hugsað mér að reifa við neinn mér tengdan, en er samt að ræna mig sálarrónni Mig vantar alveg sárlega hlutlaust álit á atriði sem er búið að angra mig mikið upp á síðkastið. Málið er að í vor hóf ég frekar lauslegt „samband“ við mann sem ég hitti á Tinder og leist vel á. Í fyrsta skiptið sem við stunduðum kynlíf sagði hann mér fljótlega að leik loknum að ég ætti endilega að hug- leiða alvarlega að fara í brjóstastækkun – ég yrði svo miklu meira sexí þannig! Nú er ég í frekar góðum málum líkamlega miðað við rúmlega fertuga konu; ég er grönn og frekar há og í góðu formi og bara frekar lagleg, en hef aldrei verið brjóstamikil (B breyttist í A eða minna fljót- lega eftir brjóstagjöf fyrir 21 ári og hefur aldrei kom- ið til baka). Ég er líka frekar axlabreið og með stóran brjóstkassa sem hjálpar heldur ekki til. Samt er ég ekki marflöt – en ég get ekki sagt að brjóstahaldara- kaup séu nein skemmtun fyrir mig; á tvö stykki sem eru örugglega orðin fimm ára. Ég tók þetta mjög nærri mér og leið mjög illa yfir þessu og var á tímabili öskureið, en við héldum samt áfram að hittast og alltaf var hann að núa mér upp úr þessu (jafnvel í miðjum klíðum) – auk þess sem hann tók fram að hann hefði engan áhuga á mér nema fyrir kynlífið. Við vorum samt ágætir vin- ir og spjölluðum mikið saman – en nýlega ákvað ég að slíta þessu því ég get ekki stundað kynlíf án þess að bindast viðkomandi tilfinningalega Það versta er kannski að fyrir þremur árum sleit ég sambúð við mann sem lét eins út af brjóstunum á mér – hann var reyndar fíkill og fyllibytta líka sem var nú aðalástæða þess að ég fór. Nú var sem sagt kominn annar í viðbót sem var svona brútal hrein- skilinn (án þess að ég hafi beðið um álit) á þennan útlitsgalla minn. Þar áður hafði ég verið gift í þrettán ár og sá maður hafði alltaf blásið á áhyggjur mínar af brjóstunum og sagt að ég væri fín eins og ég væri, ég þyrfti ekki að stækka þau fyrir hann. Mér hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel á deit- markaðnum síðastliðin þrjú ár, hef ekki orðið neitt meira en „booty call“ hjá neinum og nú er ég far- in að ímynda mér að karlmenn flýi bara ef ég fer úr að ofan og ég verði að leggjast undir hníf- inn ef ég ætli ekki að verða ein til æviloka. Ég meina, vill einhver elska brjóstalausa konu? Ég á pantaðan tíma hjá lýtalækni eftir nokkra daga, en eftir margra vikna um- hugsunartíma þá eru tilfinningar mín- ar gagnvart þessu samt afar blendnar. Mun mér líða eitthvað betur eða líka betur við sjálfa mig? Ég fór síðast í svoleiðis viðtal fyrir fjórum árum, en guggnaði á að fara í aðgerðina. Hluta af mér langar í aðgerðina, en í aðra röndina er ég sárreið við sjálfa mig að ætla að lúffa fyrir hégóma í einhverjum fá- bjánum. Verður þetta eitthvað sem peppar sjálfkrafa upp á sjálfs- traustið, sem er eiginlega brotið í þús- und mola þessa dagana? Með fyrirfram þökk, Harðbrjósta Valkyrjan É g er brjáluð og það sýður gjörsamlega á mér. Mig langar að hringja í þennan sataníska Tinder-mann og gefa honum orð í eyra, mjög mörg orð raunar. Hvers kon- ar framkoma er þetta við konu sem ákveður að deila líkama sínum, tíma og tilfinningum með honum? Djöfuls dratthali að voga sér að gagn- rýna líkama þinn á þennan hátt. Það er morgun- ljóst að svona maður hefur engan áhuga á ÞÉR heldur vill hann hafa holdlega runkmúffu af mjög ákveðinni stærð til að stinga sínum óverð- skuldaða skaufa í og hrista hann til. Og hann á ekkert betra skilið fyrr en hann lærir mannasiði! Ef álíka drullusokkur slysast einhvern tíma aftur upp í ból hjá þér ætla ég að biðja þig lengstra orða að sparka honum fram úr, og það fast og hratt! Gerðu kröfur um almenna kurteisi og falleg samskipti. Ef einhver nær honum ekki upp vegna þinna prýðilegu A-brjósta er það HANN sem á við vandamál að stríða og þarf að eiga við það á sinn hátt. Ég lendi oft í að hughreysta menn sem telja sig vera með of lítil typpi og halda að þeir muni aldrei finna konu sem getur sætt sig við þá eins og þeir eru. Þá segi ég blíðlega að ef typpi þeirra sé það sem geri útslagið, og þeirra helsti mannskostur, sé nú ekki mikið varið í þá. Það sama segi ég við þig – ef brjóstin eru það sem eiga að gera þig að girnilegri konu, frábærri mann- eskju og skemmtilegri ástkonu getur varla margt annað verið í gangi. Úr bréfi þínu les ég hins vegar allt annað – þú hefur HEILMIKIÐ til brunns að bera og ert greinilega bráðgreind og glæsileg kona. Prófaðu að setja bestu vinkonu þína í sporin þín. Hvað mundirðu ráðleggja henni? Að leggj- ast undir hnífinn? … Ég hélt ekki! Vertu stolt af því sem þú hefur og gerðu kröfur, kona! Ef þú lætur fylla brjóstin þín af svona ástæðu er alls ekki lík- legt að sjálfsmynd þín styrkist. Spáðu frekar í aðrar leiðir til að styrkja þig og æfðu þig í að setja mörk. Vertu góð við þig! Ég skal sjá um að rass- skella þetta kvikindi ef ég rekst einhvers staðar á hann! Baráttu- kveðjur, Ragga Sæl Ragga Elsku, elsku Valkyrja Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi. raggaeiriks.com raggaeiriks@gmail.com „ Í fyrsta skiptið sem við stunduðum kynlíf sagði hann mér fljótlega að leik loknum að ég ætti endilega að hugleiða alvarlega að fara í brjóstastækkun – ég yrði svo miklu meira sexí þannig!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.